Morgunblaðið - 12.11.2012, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
H
a
u
ku
r
1
0
.1
2
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í•
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
Fyrirtæki í innflutningi á sérhæfðum efna- og tæknivörum til notkunar í•
fyrirtækjum. Fyrirtækið nýtur álits á markaði og hefur trygga
viðskiptavini. Ársvelta 100 mkr.
Heildverslun með heilsutengdar vörur. Þekkt merki og sterk staða á•
markaði. Ársvelta 150 mkr. EBITDA 25 mkr.
Gott fjárfestingatækfæri. Lykilstarfsmenn eru að kaupa spennandi•
fyrirtæki sem hefur mikla vaxtamöguleika. Fjárfestir óskast til að leggja
fram 20 mkr. sem er um 25% hlutafjár. Í boði er örugg og góð
lágmarksávöxtun á láni eða hlut með sölurétti eftir 3 ár.
Þekkt tískufataverslun í Kringlunni. Góð umboð.•
Heildverslun með tæknivörur fyrir matvælaiðnaðinn. Ársvelta 80 mkr.•
Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki tengt byggingariðnaði. Stöðug•
ársvelta um 150 mkr. og rúmlega 20 mkr. EBITDA.
Þekktur skyndibitastaður. Ársvelta 70 mkr.•
Innflutningsfyrirtæki með tæknivörur á vaxandi markaði. Ársvelta 60•
mkr. og yfir 100% álagning.
Lítil en rótgróin bókaútgáfa sem sérhæfir sig á ákveðnu sviði. Stöðug•
velta allt árið.
Árleg sultukeppni var haldin í
tengslum við Safnahelgi sem haldin
var dagana 2.-4. nóvember í Bjark-
arhóli í Reykholti og hún fór vel fram
að sögn aðstandenda.
Dómarar voru Hallgrímur Magn-
ússon læknir, Ragnhildur Þórarins-
dóttir garðyrkjumeistari Flúðum og
Sölvi Hilmarsson matreiðslumeistari
á Sólheimum.
Verðlaun fyrir bestu sultuna fékk
Sigurlaug Jónsdóttir, fyrir holl-
ustusultuna Sigurjón Sæland og fyrir
nýstárlegustu sultuna Bergþór G.
Úlfarsson.
Sulta Sigurlaugar var úr berjum úr
garði hennar, sólberjum, hindberjum,
jarðarberjum og rifsberjum. Sulta
Sigurjóns var úr aðalbláberjum og
Bergþórs var úr stikkilsberjum og
rósanýpum úr garði hans.
Sultukeppnin er árlegur viðburður
og hefur fest sig í sessi á Safnahelgi
síðastliðin þrjú ár.
Einnig voru veitt verðlaun fyrir
þátttöku í prjónagraff-verkefninu
sem byrjaði í mars sl. þegar prjónað
var utan um ljósastaurana í Reyk-
holti.
Verðlaun fyrir frumlegasta graffið
fékk Sigurlaug Jónsdóttir en hún
prjónaði utan um ljósastaurana sitt
hvorum megin við húsið þeirra Hall-
gríms læknis á Bjarkarbraut. Karl og
konu sem tákna þau hjónin, hann með
hlustunarpípuna en hún með prjón-
ana.
Sú langafkastamesta var Inga Ósk
Jóhannsdóttir í Kistuholti en hún
prjónaði og heklaði utan um hvorki
meira né minna 72 staura.
Fjórar berjategundir í
sigursultu Sigurlaugar
Inga Ósk í Kistuholti prjónaði utan um 72 ljósastaura
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Keppnin Gleði ríkti hjá keppendum og dómurum í hinni árlegu sultukeppni
sem haldin er í Borgarfirðinum. Að sögn aðstandenda fór keppnin vel fram.
Í fjármálaráðuneytinu er enn unnið að endurskoðun á
áformum stjórnvalda um að hækka virðisaukaskatt á
gistingu í ferðaþjónustunni og sömuleiðis liggur enn ekki
fyrir hvort undanþága á vörugjöldum af innfluttum bíla-
leigubílum verður felld niður, eins og fjárlagafrumvarp
næsta árs kveður á um.
„Ég mun fara yfir þetta með félögum mínum á næst-
unni en það er ekki komin niðurstaða,“ sagði Katrín Júl-
íusdóttir fjármálaráðherra um endurskoðunarvinnuna í
gær.
Morgunblaðið sagði frá því í síðustu viku að samkvæmt
áreiðanlegum heimildum innan stjórnarmeirihlutans á
Alþingi væri ljóst að ekki væri meirihlutastuðningur á
þingi við tillöguna um að hækka virðisaukaskattinn á
gistinguna úr 7% í 25,5%. Hins vegar væru mildari að-
gerðir til umræðu, þ.e. að tekið yrði upp milliþrep í virð-
isaukaskattskerfinu og að gistiþjón-
ustan yrði hækkuð úr 7% í nýtt 14%
skattþrep.
Katrín sagði í gær að nýtt 14%
skattþrep hefði verið í umræðunni en
hún gæti ekki staðfest hvort það yrði
ofan á. Sagði hún að niðurstaðan yrði
ljós þegar hún kynnti bandorminn
sem fylgir fjárlagafrumvarpinu en
það gæti orðið á föstudag.
Áformum um hækkun virðisauka-
skatts á gistingu hefur verið harðlega
mótmælt af aðilum í ferðaþjónustunni og talið er að kaup-
geta bílaleignanna á nýjum bílum muni minnka um nærri
helming verði af hækkunum á vörugjöldum á innfluttum
bílaleigubílum. holmfridur@mbl.is
Engin ákvörðun enn
Enn unnið að endurskoðun áforma um hækkun virðisauka-
skatts á gistingu Niðurstaða hugsanlega ljós á föstudag
Katrín
Júlíusdóttir
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Aðalhættan er þessi að það vaxi hér upp kyn-
slóð sem hefur það á tilfinningunni að íslenska
sé gamaldags og ófullkomið tungumál sem henti
ekki innan nýrrar tækni,“ segir Eiríkur Rögn-
valdsson, fulltrúi í stjórn Íslenskrar mál-
nefndar, en evrópsk könnun á stöðu 30 Evrópu-
tungumála gagnvart tölvu- og upplýsingatækni
hefur leitt í ljós að íslenska stendur höllum fæti
á sviði máltækni.
Brýnt að bregðast við
Í ályktun íslenskrar málnefndar um stöðu ís-
lenskrar tungu 2012, sem kynnt verður í Þjóð-
menningarhúsinu á morgun, eru lagðar til ýms-
ar aðgerðir. Ein þeirra er að gerð verði áætlun
til næstu tíu ára um uppbyggingu og þróun ís-
lenskrar máltækni með það að markmiði að ís-
lenska verði gjaldgeng sem víðast innan tölvu-
og upplýsingatækninnar. Einnig er lagt til að
stofnaður verði þróunarsjóður íslenskrar mál-
tækni með a.m.k. 20 milljóna króna árlegu
framlagi á fjárlögum.
Rannsóknin, sem gerð var í fyrra, er hluti af
stóru Evrópuverkefni sem nefnist META-NET
en gerð var úttekt á stöðu allra opinberra
tungumála Evrópusambandsins og evrópska
efnahagssvæðisins gagnvart tækninni og hvern-
ig þau væru undir þróun búin. Með máltækni er
m.a. átt við tæknilegan stuðning við tungumálið
á borð við leiðréttingarforrit fyrir stafsetningu
og málfar, þýðingarforrit og talgervla og
-greina svo fátt eitt sé nefnt.
„Tungumálin voru borin saman og var nið-
urstaðan sú að í raun eru það einungis stærstu
tungumálin sem standa þokkalega að vígi,“ seg-
ir Eiríkur en þá er einkum átt við ensku, þýsku,
frönsku og spænsku. Bendir hann á að af þeim
30 tungumálum sem könnunin tók til sé talið að
21 standi frammi fyrir hugsanlegum „stafræn-
um dauða“.
Er íslensk málstefna lítt þekkt?
„Það er þó ekki þar með sagt að tungumálin
séu í útrýmingarhættu á næstu árum en þau
eru í þeirri hættu að það verður ekki hægt að
nota þau við allar aðstæður í tölvuheiminum og
þar með sé verið að grafa undan notkun þeirra
til lengri tíma litið.“
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar
hafnaði íslenska í næstneðsta sæti en einungis
maltneska er talin standa verr að vígi. Eiríkur
bendir þó á að staða íslenskunnar gæti hafa
skánað eilítið frá því að könnunin var gerð, m.a.
vegna tilkomu nýs talgervils sem Blindrafélagið
lét gera og nýs talgreinis sem hannaður er fyrir
Android-stýrikerfi.
Í íslenskri málstefnu, sem samþykkt var á Al-
þingi í mars árið 2009, er kveðið á um að allur al-
mennur notendahugbúnaður í íslensku skóla-
kerfi verði á íslensku innan þriggja ára. Hins
vegar bendir Eiríkur á að í könnun sem gerð
var fyrr á þessu ári sögðu 70 skólastjórar af 170
það ekki opinbera stefnu síns skóla að hafa ís-
lenskt notendaviðmót á þeim tölvum sem nem-
endur hafa aðgang að. Eiríkur segir þessa nið-
urstöðu vissulega hafa komið sér á óvart en
hann telur að margir skólastjórar þekki ekki
stefnuna og það skýri að hluta til þessa nið-
urstöðu.
Fram kemur í ályktun íslenskrar málnefndar
að um 40% skóla noti enn Windows-stýrikerfið á
ensku þrátt fyrir að kerfið hafi verið til á ís-
lensku um árabil en stýrikerfi Macintosh-tölva
hefur ekki verið þýtt á íslensku undanfarin ár.
Segir Eiríkur þessa þróun mikið áhyggjuefni
og bendir t.a.m. á að venjist nemendur notenda-
hugbúnaði á ensku gæti það haft áhrif á viðhorf
þeirra til móðurmálsins og svo gæti farið að þeir
teldu íslensku gamaldags tungumál. „Þá spyr
maður: Verður íslenska bara eins og latína?“
Íslenska stendur höllum fæti á sviði máltækni samkvæmt evrópskri könnun sem tók til 30
Evróputungumála Fulltrúi í stjórn Íslenskrar málnefndar segir þróunina mikið áhyggjuefni
Tungan heldur ekki í við tæknina
Morgunblaðið/Eggert
Tækni Nemendur eru margir hverjir byrjaðir
að nota spjaldtölvur í námi sínu.