Morgunblaðið - 12.11.2012, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
GÆÐI, ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ - ÞAÐ ER TENGI
Opið virka daga frá 8 -18 • www. tengi.is • tengi@tengi.is
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050
ALLT FYRIR BAÐHERBERGIÐ HJÁ TENGI
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Enn er ósamið milli SÁÁ og Sjúkra-
trygginga Íslands um almenna
göngudeildarþjónustu fyrir áfengis-
og vímuefnasjúklinga. „Því miður
verður að segjast að það horfir ekki
vel í þeim samningum,“ segir Gunnar
Smári Egilsson, formaður SÁÁ.
Bæjarráð Akureyrar tók fyrir helgi
beiðni SÁÁ um framlag til verkefn-
isins Betra líf – mannúð og réttlæti.
Erindið var ekki afgreitt en bæjarráð
skoraði á SÁÁ að tryggja nú þegar
rekstur starfsemi sinnar á Akureyri.
Þar hafa samtökin verið með starf-
semi í nærri aldarfjórðung og göngu-
deildarþjónustu lengst af.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjar-
stjóri segir sveitarfélagið eitt fárra
sem greiði til SÁÁ til að það geti hald-
ið úti sinni starfsemi. „Okkur finnst
við vera farin að bera stærsta hluta
kostnaðarins á Akureyri,“ segir Ei-
ríkur. Með bókuninni segir hann að
hafi verið vísað til þess að ef SÁÁ fái
10% af áfengisgjaldinu þá fari þeir
fjármunir einnig í starfsemina á Ak-
ureyri en ekki allt til Reykjavíkur.
„SÁÁ hefur rekið þessa þjónustu á
Akureyri með miklum halla og það
gengur ekki lengur. Á endanum mun
einlægur vilji stjórnvalda til að skerða
heilbrigðisþjónustu gagnvart þessum
hópi koma fram og bitna á sjúkling-
unum og fjölskyldum þeirra. Og það
er vandséð hvernig SÁÁ á að koma í
veg fyrir það,“ segir Gunnar Smári og
bendir á að í samningum við ríkisvald-
ið hafi ekki verið gert ráð fyrir þessari
þjónustu við Norðlendinga, heldur
hafi SÁÁ borið kostnaðinn. „Samtök-
in hafa hins vegar takmarkað bol-
magn til þess lengur enda hafa stjórn-
völd ekki staðið við umsamda
samninga við samtökin heldur skorið
einhliða niður greiðslur og neitað að
verðbæta samninga. Akureyrarbær
greiddi í fyrra um þriðjunginn af hall-
anum við reksturinn á Akureyri og
hefur gefið vilyrði fyrir að gera slíkt
hið sama á þessu ári,“ segir Gunnar
Smári og telur nær fyrir ríki og sveit-
arfélög að leita til Alþjóða gjaldeyr-
issjóðsins eða slíkra aðila eftir aðstoð
til að halda hér uppi lágmarks heil-
brigðisþjónustu en að biðla til SÁÁ.
Taka ekki álfa upp í
„SÁÁ hefur fá úrræði önnur en að
selja álfa til að borga fyrir þessa þjón-
ustu. En því miður hafa sveitarfélögin
til dæmis verið ófáanleg til að taka
álfa upp í fasteignagjöld, svo mögu-
leikar SÁÁ til að aðstoða ríki og borg
eru miklum takmörkunum háðir.“
Óvissa um starf-
semi á Akureyri
Bæjarráð bókar um starfsemi SÁÁ
Gunnar Smári
Egilsson
Eiríkur Björn
Björgvinsson