Morgunblaðið - 12.11.2012, Síða 18
Kæru borgarbúar,
hjálpið okkur í hjólastól-
unum að verjast ógnandi
stjórnmálamönnum
Í helgarblaði DV 19.-21. október
2012 gefur Björk Vilhelmsdóttir inn-
sýn í lífshlaup sitt.
Þar segir hún að þau hjónin hafi átt
við geðræn vandamál að stríða, en
gæti þess að taka meðulin sín. Hún
sagðist meðal annars hafa verið svína-
hirðir og að sér hafi liðið eins og tröll-
skessu. Því er til að svara, að svína-
hirðing er eins og hvert annað
virðingarvert starf, en þó er munur á
því og mannaforráðum.
Að vera fatlaður og eiga allt sitt
undir öðrum er skelfilegra en svo, að
hægt sé að ætlast til að almenningur
átti sig á því. Hinsvegar á Björk Vil-
helmsdóttir, sem vinnur hjá velferð-
arsviði, að vita betur. Það kom því eins
og skrattinn úr sauðarleggnum, þegar
lagt var til, að hennar áeggjan sér-
staklega, að Ferðaþjónusta fatlaðra
yrði lögð niður og þjónustan síðan boð-
in út.
Þó langt sé síðan ég heyrði að slík
aðför að fötluðu fólki gæti átt sér stað,
kom mér aldrei í hug að nein valda-
manneskja væri svo köld og veru-
leikafirrt, að hún gerði alvöru úr því.
Reyndar skiptir það ekki svo miklu
fyrir gangandi fólk, en fyrir fólk í
hjólastólum er það allsherjar martröð.
Fyrirmynd Bjarkar er Ferðaþjónusta
fatlaðra í Kópavogi, en hún er þekkt
fyrir tillitsleysi við farþega sína, enda
byggð á gróðahyggju. Þjónustan
kaupir eingöngu ódýra bíla og eftir því
óþægilega. Í þá er fólki safnað saman
um alla borg, þar til bíllinn er fullset-
inn. Allar tímasetningar fara úr skorð-
um og fólk er í bið-
stöðu um alla
borgina. Í skottinu
er svo hjólastóla-
fólkinu komið fyr-
ir. Þarna er mann-
úð og skilningur
víðsfjarri. Seint
hefði mér komið til
hugar, að til væri
fólk á svo lágu
plani, að það gerði sér ógæfu annarra
að féþúfu.
Einstaklingar eða fyrirtæki sem
bjóða í þjónustu við fatlaða gera það til
að græða og eru því á slíku plani. Án
þess að gera sér það ljóst er Björk að
grafa sína pólitísku gröf. Allir nema
hún sjá hvílíkt dómgreindarleysi það
er, að stefna á þing á sama tíma og
hún ræðst á það fólk sem verst er sett
í borginni. Hún gerir sér ekki ljóst að
borgarbúar munu aldrei líða henni að
gera líf okkar sem erum í hjólastólum,
verra en það þegar er. Fyrir mig
þýddi breytingin nær algjöra frels-
isskerðingu, því spengt bak og háls
vegna brota í slysi, þyldi ekki hristing í
farangursgeymslu við afturhurð. Sam-
kvæmt alþjóðalögum mega fatlaðir
halda þeirri þjónustu sem þeim líkar
og hafna annarri. Ég skora á Björk að
afturkalla uppsögn á Ferðaþjónustu
fatlaðra í RVK innan viku. Þá mun allt
vera sem áður. Gott er þó að hún viti
að ég gefst aldrei upp. Það er nefni-
lega svo þægilegt að vera réttum meg-
in við línuna.
Albert Jensen,
Sléttuvegi 3 Rvík.
Frá Albert Jensen
Albert Jensen
18 UMRÆÐAN Bréf til blaðsins
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
MORGUNVERÐARFUNDUR
13. nóvember á Icelandair Hótel Reykjavík Natura, þingsalur 3.
Aðgangur er ókeypis. Húsið opnar kl. 8.00.
Boðið verður upp á léttan morgunverð.
Skráning á www.sa.is.
DAGSKRÁ:
08:30 Setning fundar
Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri SA
08:40 Össur - Sigurborg Arnarsdóttir,
fjárfestatengill
09:00 Oddi - Stefán Hjaltalín, sölustjóri
09:20 ÁTVR - Sigrún Ósk Sigurðardóttir,
aðstoðarforstjóri
09:40 Pallborðsumræður
Finnur Sveinsson, sérfræðingur hjá
Landsbankanum, stýrir umræðum
Samfélagsábyrgð fyrirtækja:
Hvers vegna Global Compact?
Samtök atvinnulífsins bjóða
til morgunverðarfundar um
Global Compact í samvinnu
við Festu, miðstöð um
samfélagsábyrgð fyrirtækja.
Á fundinum munu fulltrúar fyrirtækja
sem hafa skrifað undir Global Compact,
sáttmála Sameinuðu þjóðanna um
samfélagsábyrgð, segja frá reynslu sinni
og ræða mögulegan ávinning.
SA eru tengiliður á Íslandi við Global
Compact SÞ.
Fjölmiðlar hjálpa
Samfylkingunni að
fela óþægilegar stað-
reyndir, þannig að
hinn almenni kjós-
andi gerir sér illa
grein fyrir sjúkleika
flokksins. Svo má
segja að á meðan
sjálfstæðismenn
sætta sig við stöð-
ugar lygar og árásir
frá hendi stuðnings-
manna og forystu Samfylkingar
fær þjóðin ekki að kynnast sann-
leikanum um nýfrjálshyggju-
stefnu jafnaðarmanna.
Flokkurinn hefur reynt að af-
neita nýfrjálshyggjunni og stofn-
aði umbótanefnd til þess.
Í skýrslu umbótanefndar Sam-
fylkingar segir á bls. 9: „Nið-
urstaða umbótanefndar er sú að
Samfylkingin hafi frá upphafi
verið veikari aðilinn í samstarfi
hennar og Sjálfstæðisflokksins og
í raun sætt sig við þá stöðu.“ Ef
efni skýrslunnar er dregið saman
í stuttu máli þá var eftirgjöf
stjórnvalda, varðandi eftirlit, lög
og reglur í tengslum við fjár-
málafyrirtæki Sjálfstæð-
isflokknum einum að kenna.
En skýrslan er ódýr katt-
arþvottur.
Í atvinnustefnu landsfundar
Samfylkingarinnar frá árinu 2007
má sjá grein sem staðfestir
stuðning flokksins við nýfrjáls-
hyggjuna: „Skapa
hagstætt rekstr-
arumhverfi fyrir fyr-
irtæki í fjármálaþjón-
ustu sem standist
fyllilega samkeppni
við það sem best ger-
ist í öðrum löndum“.
Flestir ættu að
muna eftir ofsagróða
fjármálafyrirtækja
árið 2007 og árin á
undan. Í ljósi þess er
það undarlegt að
flokkur sem boðar
jafnaðarstefnu skuli
vilja búa til reglur sem verða til
þess að ríkustu fyrirtæki landsins
græði enn meira.
Samfylkingin fékk við-
skiptaráðuneytið þannig að
bankamálin voru á ábyrgð henn-
ar.
Hinn 27. nóvember árið 2007
sagði ráðherra bankamála sem
kom úr vinstri armi Samfylkingar
á ársfundi FME m.a.: „Þannig
má segja að Ísland hafi í raun
þróast í þá átt að verða íslensk
fjármálamiðstöð og er sú þróun
m.a. tilkomin vegna þess frum-
kvæðisanda sem ríkir meðal
stjórnenda og starfsmanna ís-
lenskra fjármálafyrirtækja.“ Í
viðtali við Viðskiptablaðið 9. júní
sama ár kvað viðskiptaráðherra
Samfylkingar það vera sitt helsta
hlutverk að byggja upp kraftmik-
ið ráðuneyti sem héldi utan um
útrás fjármálafyrirtækja og orð-
rétt sagði ráðherrann úr vinstri
armi Samfylkingar m.a.: „Þessar
greinar þarf að efla og þær verð-
skulda miklu meiri athygli en
aðrar greinar“, þetta er útrásin
og þar eru sprotarnir í uppbygg-
ingu á atvinnulífi okkar í dag.“
Í ljósi þess að þarna talaði ein-
staklingur úr vinstri armi Sam-
fylkingarinnar megum við þakka
fyrir að ráðherra bankamála kom
ekki úr hægri armi flokksins.
Þegar tveir flokkar eru í rík-
isstjórn bera þeir báðir ábyrgð á
stjórn landsins og ef illa tekst til
er ekki hægt að kenna hinum
flokknum um. Umbótanefnd Sam-
fylkingar skilaði lélegu plaggi því
augljóst er að Samfylkingin trúði
á það sem hún í dag kallar „ný-
frjálshyggju“ árið 2007. Skýrasta
dæmið er vitanlega níunda grein
atvinnustefnu landsfundarins árið
2007. Eða dettur einhverjum í
hug að það hafi verið mikilvægt á
þessum árum að hjálpa bönkum
að græða meira en þeir gerðu?
Nýfrjálshyggja
Samfylkingarinnar
Eftir Jón Ragnar
Ríkharðsson » Þegar tveir flokkar
eru í ríkisstjórn
bera þeir báðir ábyrgð á
stjórn landsins og ef illa
tekst til er ekki hægt að
kenna hinum flokknum
um.
Jón Ragnar
Ríkharðsson
Höfundur er sjómaður og formaður
verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins.
Þú slærð ekki slöku við með vitleys-
una, á ég að trúa því, Jóhanna, að þú
sért svona veruleikafirrt? Hvernig
vogar þú þér að drita yfir allt það
sem byggt var hér upp af eldri kyn-
slóðinni og þú og þín stjórn eruð í
gríð og erg að rífa niður og nú síðast
með steyttum hnefa og orðunum að
fólk geti valið um gamla Ísland eða
hið nýja Ísland. Handa hverjum er
hið nýja Ísland? – Jú, handa mennta-
elítunni sem þú hefur sankað að þér,
því þú og þín stjórn talið aldrei um
bændur, sjómenn, verka- eða iðn-
aðarfólk, nema þá hvernig hægt sé
að ná af því fé. Það þurfti þig, Jó-
hanna, og vinstristjórn til þess að
flokka okkur í „þið og við“, sem aldr-
ei fyrr.
Ég mótmæli svona tali og einnig
mótmæli ég því að flestu sé stýrt inn
í háskólana, og sé það rétt að þar fari
fram daglegt tal um dásemdir ESB,
sem á að bjarga öllu hjá okkur, þá er
verið að ala upp ölmusuþjóð sem ætl-
ar að lifa á styrkjum og ég mótmæli
því harðlega. Ég hef skrifað það áður
að þannig verður
sagan, það þurfti
fólk eins og þig og
þína stjórn til
þess að misnota
vald sitt, og það í
nafni menntunar.
Taktu þér tak,
kona, og opnaðu
augu og skilning á
því sem er að ger-
ast í landinu.
Að niðurníða andstæðing eins og
þú gerir við Sjálfstæðisflokkinn, er
þér og þínum ekki til framdráttar, en
þekkt vinnubrögð hjá Samfylking-
unni.
Kona, líttu þér nær, þú sast í hrun-
stjórninni, en hafðir ekki heilindi til
þess að segja af þér – svo að talaðu
varlega.
Enn og aftur mótmæli ég þessu
tali um gamla og nýja Ísland, því að
framtíð Íslands og hins almenna
landsmanns, er ekkert til að hreykja
sér af, Jóhanna Sigurðardóttir.
STEFANÍA JÓNASDÓTTIR,
Sauðárkróki.
Jóhanna og
hið nýja Ísland
Frá Stefaníu Jónasdóttur
Stefanía
Jónasdóttir
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn
grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu not-
anda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.