Morgunblaðið - 12.11.2012, Blaðsíða 23
Hnappadalssýslu 1968-76 og var
síðar formaður Jarðanefndar, var
formaður nefndar vegna frumvarps
að lögum um forfallaþjónustu í
sveitum, sat í undirbúningsnefnd
að stofnun stóðhestastöðvar
Búnaðarfélags Íslands 1972 og í
kynbótanefnd stöðvarinnar, var
einn stofnenda og í stjórn
Hestamannafélagsins Snæfellings í
níu ár og í stjórn Hrossarækt-
arsambands Vesturlands 1964-77,
sat í kynbótanefnd Búnaðarfélags
Íslands í sauðfjárrækt í nokkur ár
frá 1983, var formaður skóla-
nefndar Bændaskólans að Hvann-
eyri 1979-84, var búnaðarþings-
fulltrúi Snæfellinga 1983-84, sat í
stjórn Stofnverndarsjóðs íslenska
hestakynsins, í nefnd hrossasýn-
inga Búnaðarfélags Íslands,
sinnti ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Framsóknarflokkinn, sat í
stjórn Landssambands hesta-
mannafélaga og var formaður
þess.
Leifur sótti á vegum Búnaðar-
félagsins búfjársýningar víða um
land um langt árabil, og var
hrossadómari á fjórðungs- og
landsmótum hestamanna víða um
landið 1957-85:
„Þá kynntist maður fjölda fólks
úr öllum sveitum landsins. Það
voru góð kynni við skemmtilegt
fólk, enda er maður bara venju-
legur Íslendingur, þegar upp er
staðið.“
Fjölskylda
Leifur kvæntist 23.6. 1957 Maríu
Steinunni Gísladóttur, f. 10.11.
1932, húsfreyju. Hún er dóttir
Gísla Jóhannessonar, bónda og
hreppstjóra í Skáleyjum á Breiða-
firði, og k.h., Sigurborgar Ólafs-
dóttur frá Hvallátrum.
Börn Leifs og Maríu Steinunnar
eru Jóhanna Rún Leifsdóttir, f.
27.1. 1958, lengst af bankamaður,
búsett í Mosfellsbæ en maður
hennar er Kristján Á. Bjartmars
húsasmíðameistari og eiga þau tvö
börn; Sigurborg Leifsdóttir, f. 23.1.
1961, sjúkraliði í Stykkishólmi en
maður hennar er Hörður Karlsson
vélvirki hjá Orkuveitu Reykjavíkur
og eiga þau þrjú börn; Heiðrún
Leifsdóttir, f. 3.2. 1962, bankamað-
ur, búsett í Kópavogi en maður
hennar er Lárentsínus Ágústsson
málarameistari og eiga þau þrjú
börn; Eysteinn Leifsson, f. 7.11.
1969, hrossaútflytjandi, búsettur í
Mosfellsbæ en kona hans er Guðleif
Leifsdóttir félagsráðgjafi og eiga
þau þrjú börn; Jófríður Leifsdóttir,
f. 8.11. 1974, starfsmaður hjá Keili
– háskólabrú en maður hennar er
Einar Karlsson lögreglumaður og
eiga þau tvær dætur.
Systkini Leifs: Kristján Jóhann-
esson, f. 23.4. 1931, rakarameistari
og fyrrv. kaupmaður og heildsali,
búsettur í Garðabæ; Sigríður Jó-
hannesdóttir, f. 8.6. 1939, d. 18.9.
2005, lengst af starfsmaður við
Landsbankann; Hallur Jóhannes-
son, f. 3.12. 1941, múrari, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Leifs voru Jóhannes
Guðjónsson, f. 30.1. 1898, d. 31.1.
1950, bóndi á Saurum í Helgafells-
sveit, og k.h., Guðrún Hallsdóttir, f.
2.3. 1903, d. 4.9. 1993, húsfreyja.
Úr frændgarði Leifs Kr. Jóhannessonar
Leifur Kr.
Jóhannesson
Guðfinna Jónsdóttir
húsfr. á Kljá
Illugi Daðason
b. á Kljá
Sigríður Illugadóttir
húsfr. á Gríshóli
Hallur Kristjánsson
b. á Gríshóli í Helgafellssveit
Guðrún Hallsdóttir
húsfr. á Saurum
Jófríður Hallsdóttir
húsfr. í Stóra-Galtardal
Kristján Jóhannsson
b. í Stóra-Galtardal
Steinunn Jónsdóttir
húsfr. á Berserkjahrauni
Jóhannes Einarsson
b. á Berserkjahrauni
Kristín Jóhannesdóttir
húsfr. á Saurum
Guðjón Guðmundsson
b. á Saurum
Jóhannes Guðjónsson
b. á Saurum í Helgafellssveit
Björg Erlendsdóttir
húsfr. á Selvöllum
Guðmundur Jónsson
b. á Selvöllum
Ingibjörg Illugadóttir
húsfr. í Litla-Langadal
Daði Kristjánsson
b. í Drápuhlið
Sigfús Daðason
skáld
Lýður Illugason
í Ögri við Stykkishólm
Kristján Lýðsson
fræðimaður
Leifur Kr. Jóhannesson, hestamað-
ur og ráðunautur.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
Elínborg Lárusdóttir rithöf-undur fæddist á Tunguhálsií Lýtingsstaðahreppi í
Skagafirði 12.11. 1891. Hún var dótt-
ir Lárusar Þorsteinssonar, bónda
þar, og k.h., Þóreyjar Bjarnadóttur.
Elínborg stundaði nám við
Kvennaskólann á Blönduósi, Hús-
stjórnarskólann á Akureyri og
Kennaraskólann. Hún giftist Ingi-
mar Jónssyni sem var
prestur að Mosfelli í Grímsnesi
1922-28 og síðan skólastjóri Ung-
mennaskóla
Reykjavíkur frá stofnun 1928 en
sá skóli nefndist Gagnfræðaskóli
Reykjavíkur frá 1930 og Gagn-
fræðaskóli Austurbæjar frá 1949.
Elínborg var afkastamikill og afar
vinsæll rithöfundur á fjórða, fimmta
og sjötta áratugnum. Hún samdi
jöfnum höndum skáldsógur, smá-
sögur, ævisögur og þætti. Á síðari
hluta ritferils síns skrifaði hún tölu-
vert um dulræn fyrirbrigði, m.a.
tvær bækur um Hafstein Björnsson,
langþekktasta og umsvifamesta mið-
il landsins á þeim árum, en hann hélt
miðilsfundi um allt land, yfirleitt fyr-
ir fullu húsi um áratuga skeið.
Ritverk Elínborgar voru ekki í há-
vegum höfð hjá menningarvitum og
bókmenntafræðingum þjóðarinnar.
Þeir annað hvort þögðu um þennan
vinsæla höfund eða gerðu góðlátlegt
grín að skrifum hennar. Það átti hún
reyndar sammerkt með ýmsum öðr-
um kvenrithöfundum um og fyrir
miðja síðustu öld. Lítið hefur því
verið fjallað um verk hennar af
fræðimönnum.
Meðal ritverka hennar eru Sögur,
1935; Anna frá Heiðarkoti, 1936;
Gróður, 1937; Förumenn, 1939-1940;
Frá liðnum árum, 1941; Strand-
arkirkja, 1943; Úr dagbók miðilsins,
1944; Hvíta höllin, 1944; Símon í
Norðurhlíð, 1945; Miðillinn Haf-
steinn Bjömsson, 1946; Gömul blöð,
1947; Steingerður,
1947; Tvennir tímar, 1949; Í faðmi
sveitanna, 1950; Miðillinn Hafsteinn
Bjömsson, II. 1952; Merkar konur,
1954; Forspár og fyrirbæri, 1957;
Leikur örlaganna, 1958, og Horfnar
kynslóðir.
Elínborg lést 5.11. 1973.
Merkir Íslendingar
Elínborg
Lárusdóttir
90 ára
Baldur Helgason
Benedikt Sigurbjörnsson
Bryndís Elsa Sigurðardóttir
85 ára
Sigurbergur Hávarðsson
Þórhallur Hermannsson
80 ára
Brynhildur Hjálmarsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Sigurður Bjarnason
75 ára
Rafnar Karl Karlsson
70 ára
Hjördís Hannesdóttir
Jóhanna O. Ólafsdóttir
Kristjana Þorkelsdóttir
Kristján Guðbjartsson
Lovísa Ó. Guðmundsdóttir
Steingrímur Guðni
Pétursson
Svala Halldóra
Steingrímsdóttir
60 ára
Elínborg Angantýsdóttir
Guðrún Sigurjónsdóttir
Leifur Guðmundsson
Lilja Rut Berg
Sigurðardóttir
Magnús Torfason
Marteinn B. Heiðarsson
Sigfús Jóhannesson
Þórður Hauksson
50 ára
Bára Höskuldsdóttir
Gunnhildur Loftsdóttir
Jóhann Berg Sigurðsson
Jón Pétursson
Málfríður Linda
Hróarsdóttir
Natalía Chow
Sigrún María Kolbeinsdóttir
Sólveig Jóna Jónasdóttir
Valgerður Hansdóttir
Þorbjörg Þráinsdóttir
40 ára
Eggert Bjarni Richardsson
Elfar Freyr Sigurjónsson
Guðrún Ægisdóttir
Kristín Guðmundsdóttir
Maria Cecilia P. Antioquia
Sigurbjörn Jónsson
Sigurður Heimisson
Sigurlína Margrét Osuala
Steinunn Þorsteinsdóttir
30 ára
Árni Ingi Árnason
Diego Lopez Escudero
Eiríkur Valdimarsson
Elvar Örn Baldursson
Eva Hrönn Jónsdóttir
Gunnar Elí Sigurjónsson
Hulda Ösp Þórisdóttir
Jóhanna Ioana Solomon
Márus Lúðvík Heiðarsson
Raquel Garcia Alvarez
Renata Gardocka
Rui Jorge Mutombene
Sigrún Heiða Sveinsdóttir
Wojciech Hrubczynski
Til hamingju með daginn
30 ára Márus ólst upp á
Akranesi, er rafiðnfræð-
ingur frá HR og er verk-
virki hjá Norðuráli.
Maki: Særún Gestsdóttir,
f. 1978, kennari við
Brekkubæjarskóla.
Sonur: Bjartur Snær, f.
1999.
Foreldrar: Þorbjörg
Helgadóttir, f. 1955, leik-
skólakennari, og Heiðar
Sveinsson, f. 1955, húsa-
smíðameistari og
starfsm. Norðuráls.
Márus Lúðvík
Heiðarsson
30 ára Runólfur lauk
stúdentsprófi frá FVA og
stundar nú nám í sálfræði
við HA og við einkaþjálf-
araskóla Keilis.
Maki: Sunna Dís Jens-
dóttir, f. 1990, stúdent.
Börn: Jóhanna Dalrós, f.
2009, og Ísarr Myrkvi, f.
2012.
Foreldrar: Kristján Guð-
mundsson, f. 1962, raf-
iðnfræðingur, og Sig-
urveig Runólfsdóttir, f.
1959, sjúkraliði og húsfr.
Runólfur Óttar
Kristjánsson
30 ára Sigurþór ólst upp
á Akranesi, lauk sveins-
prófi í húsasmíði frá FVA
og starfar við Norðurál á
Grundartanga.
Systur: Linda Sif Frí-
mannsdóttir, f. 1987,
verkakona; Eydís Frí-
mannsdóttir, f. 1991,
verkakona.
Foreldrar: Frímann Smári
Elíasson, f. 1956, sjómað-
ur, og Guðný Tómasdóttir,
f. 1962, skrifstofumaður á
Akranesi.
Sigurþór
Frímannsson
Þjónusta
Vörubílastöðin Þróttur býður fjöl-
breytta þjónustu s.s. jarðefnaflutninga,
hífingar, fjarlægja tré og garðúrgang
o.fl. og ræður yfir stórum flota
atvinnutækja til margvíslegra verka.
Sjáðu meira á heimasíðunni okkar
www.throttur.is
ÞRÓTTUR TIL ALLRA VERKA
Þekking • Reynsla • Traust þjónusta
Þið þekkið okkur á merkinu
SÆVARHÖFÐA 12 · SÍMI 577 5400 · THROTTUR.IS
• Vörubílar
• Kranabílar
• Flatvagnar
• Körfubílar
• Grabbar
• Grjótklær
• Hellusandur
• Holtagrjót
• og óteljandi
aukabúnaður
Bílar - tækjakostur og efni
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að
Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón