Morgunblaðið - 12.11.2012, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að fá sem mest út úr sköp-
unarþrá þinni og það á bæði við um leik og
starf. Einnig skaltu læra að vera umburð-
arlyndari.
20. apríl - 20. maí
Naut Allir samningar byggjast fyrst og
fremst á málamiðlunum. Þú mátt ekki skella
skollaeyrum við gagnrýni, heldur átt þú
skoða hana vandlega.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ykkur má ljóst vera að mann-
skepnan er lík sjálfri sér hvar sem er. Vertu
því víðsýnn og gefðu skoðunum annarra
gaum og reyndu svo að finna viðunandi mála-
miðlun.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þrá þín til þess að leggjast í ferðalög
fer vaxandi um þessar mundir. Það er einhver
fiðringur í þér og einhver gæti öfundað þig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Framtíðaröryggi þitt er ekki málið, þar
sem nútíð og framtíð eru órjúfanleg heild fyr-
ir þér. Aðalmálið er að stefna í rétta átt.
Mundu að hver er sinnar gæfu smiður.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er líklegt að þú rífist við systkini
þín eða nágranna í dag því allir vilja halda fast
við sínar skoðanir. Takið því upp léttara hjal,
og eigið góðan dag.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú nýtur meiri athygli en þú átt að venj-
ast. Kappsemi þín vekur áhuga og traust á
hugmyndum þínum. Eyddu tímanum ekki í
volæði, heldur taktu til hendinni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Um leið og þú gleðst yfir vel
unnu verki, ertu í þeirri öfundsverðu aðstöðu
að klappað er fyrir þér. Kannski leynist eitt-
hvað í geymslunni sem þú hefur engin not
fyrir lengur.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Láttu hrokann ekki ná yfirhönd-
inni í samskiptum þínum við aðra. Hættu ein-
hverjum einum hlut sem er skaðlegur heilsu
þinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fylgdu málunum eftir jafnvel þótt
þér kunni að leiðast öll smáatriðin. Með þess-
um hætti getur þú hugsað hlutina til enda.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vatnsberinn gengur hugsanlega of
langt í dag. Hann er upptekin af samböndum
sínum og lærir ýmislegt um sig með því að
skoða tengslin við nákomna.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það eru engin takmörk á hugmynda-
flugi þínu, og tilfinningu fyrir undri. Fáðu að-
stoð, ef það er það sem þarf til þess að þú
getir staðið við þitt.
Karlinn á Laugaveginum strauká sér hárlubbann um leið og
hann heilsaði mér fyrir utan Al-
þingishúsið. Hann sagðist hafa séð
Björn Val rétt í svip og sýndist að
honum væri brugðið, enda hefði
hann lítið að sækja norður úr því
sem komið er, – ætlar að bjóða sig
fram hér syðra, sagði hann og taut-
aði:
Fyrir Steingrím verkin vann
vesalings karl-tuskan
fylgið sem að hafði hann
er horfið út í buskann.
Á laugardaginn birtust hér þrjár
stökur eftir Sigurð Hansen bónda á
Kringlumýri og hér koma tvær til
viðbótar:
Blómin falla um börð og mó
blikna fjalla lundir
sumri hallar sé ég þó
sól um allar grundir.
Oft er lífsins áratog
erfiðleikum bundið
þegar vitið vantar og
verður ekki fundið.
Í Skagfirskum skemmtiljóðum er
vísa eftir Sigurð með þeirri skýr-
ingu að í útreiðatúr hafi karl og
kona dregið sig út úr hópnum og
dvalið góða stund í grænni lautu í
hvarfi frá öðru fólki. Einar K. Guð-
finnsson alþingismaður bætti því
svo við, þegar hann kenndi mér sög-
una, að sér hefði verið sagt að þau
hefðu verið komin af léttasta skeiði:
Viku burt af vorri braut
vermd af freistingunum.
Fóru að gera í grænni laut
að gömlu reiðtygjunum.
Bjarni Stefán Konráðsson frá
Frostastöðum er ritstjóri Skag-
firskra skemmtiljóða og fer vel á
því að birta hér limru eftir hann,
sem tekin er úr Limarubókinni:
Hann Bent hafði á vífunum val,
en í vandræðum lenti uppí dal;
hann datt þar um þúfu,
lá þversum á grúfu
en daman lá diagonal.
Og þessi:
Það kúventist heldur hjá Herði
þeim harðskeytta lyganna merði.
Frá frúnni sér brá’ann
en frúin sneri á’ann,
og var bara á meðan á Verði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ætlar að bjóða
sig fram hér syðra
Í klípu
„MIG HEFUR ALDREI
DREYMT UM AÐ GERA ÞETTA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„FORELDRAR HANS, AFAR OG ÖMMUR
OG LANGAFAR OG LANGÖMMUR
LÉKU ÖLL Á PÍANÓ.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að yfirfara alltaf
hjólið hans áður en
hann fer að hjóla.
ÉG ÞARF AÐ TAKA MÉR SMÁ VEIKINDAFRÍ ...
... SEM BYRJAR
NÚNA!
ÞETTA SPARAR
MÖRG SPOR.
SMÁKÖ
KUR
SMÁKÖ
KUR
SMÁKÖ
KUR
Víkverji hefur alla tíð litið á sigsem tæknisinnaðan einstakling.
Á unglingsárunum féll það til dæmis
í skaut Víkverja að sjá um stillingar
á myndbands- og sjónvarpstækjum
heimilisins. Það reyndist reyndar
hálfgert eilífðarverkefni þar sem
aðrir heimilismenn kepptust við að
kippa fyrrgreindum tækjum úr sam-
bandi, án sýnilegrar ástæðu.
Víkverji er líka nýjungagjarn.
Hann var meðal þeirra fyrstu til að
fá sér farsíma. Eftir það var ákveðin
vinstri slagsíða á Víkverja. Ekki
vegna stjórnmálaskoðana, heldur
vegna þess að símavasinn var
vinstra megin í jakka Víkverja. Í þá
daga voru farsímar vigtaðir í kílóum,
en ekki grömmum.
x x x
Síðan eru liðin mörg ár. Nú er Vík-verji ekki það unglamb sem einu
sinni var. Núverandi farsími er tölu-
vert léttari en sá fyrsti, en þykir
ekki merkilegur pappír þar sem
hann er hvorki „snjall“ né með
snertiskjá. Í stofunni er fjórtán ára
gamalt túbusjónvarp, heimilistölvan
er gamall jálkur og þegar Víkverji
keypti sína fyrstu og einu tónhlöðu
var ekki búið að finna upp iPod.
x x x
Víkverji var lengi að koma sér uppfésbókarsíðu, en á enn eftir að
stofna aðgang á Twitter, hvar fólk
tístir víst ótt og títt, í 140 stöfum eða
minna. Það var því ákveðið áfall þeg-
ar Víkverji las fyrir helgi að Bene-
dikt sextándi páfi væri með twitter-
aðgang. Hann hefur að vísu ekki tíst
nema einu sinni, en það er einu
skipti oftar en Víkverji. Og það þótt
páfi sé 85 ára!
x x x
Víkverji er ekki 85 ára. Hann erekki einu sinni hálfnaður í þann
aldur. En fréttirnar af páfa gefa
skýrt til kynna að Víkverji sé orðinn
gamall fyrir aldur fram. Og við því
er líklega engin lækning.
Víkverji hefur því ákveðið að
leggjast í kör. Hér með býðst Þjóð-
minjasafninu formlega að fá Vík-
verja sem gestasýningu, undir yfir-
skriftinni „meira gamalmenni en
páfinn“. víkverji@mbl.is
Víkverji
Að óttast Drottin er upphaf speki, þeir
vaxa að viti sem hlýða boðum hans.
Lofstír hans stendur um eilífð. (Sálm-
arnir 111:10)
HEITT & KALT
Sími: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is | www.heittogkalt.is
Hátíðarstemning
að þínu vali:
Þægileg jólaveisla
Heimilisleg jólaveisla
Klassísk jólaveisla
Jólasmáréttir
Jólaveisla sælkerans
Verð á mann frá: 4.890 kr.
Allar upplýsingar og matseðlar
á www.heittogkalt.is
Jólaveisla
Fyrirtækja- og veisluþjónusta