Morgunblaðið - 12.11.2012, Page 32
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Háfurinn kippti sér lítið upp við það
þótt ég væri að svamla þarna í kring-
um hann. Ég gaf honum smávegis að
éta og hann virtist sallarólegur með-
an ég myndaði,“ segir Erlendur
Bogason kafari, sem í síðustu viku
náði skemmtilegum myndum af háfi
rétt utan við Árskógsströnd í Eyja-
firði. Háfurinn hafi virst undrandi á
aðförum kafarans og jafnvel forvit-
inn, en ekki látið hann trufla sig. Er-
lendur segir að háfurinn hafi verið
um 120 sentimetrar á lengd og senni-
lega stærsti háfur sem hann hafi séð.
Erlendur hefur síðustu ár kafað
víða við Ísland og safnað myndum
neðansjávar. Hann segir takmark
sitt, Hreiðars Þórs Valtýssonar og
fleiri að byggja upp safn mynda og
upplýsinga um lífríkið í sjónum við
Ísland, en til þessa hefur áherslan
verið lögð á Eyjafjörðinn. Nú þegar
má finna margvíslegt efni og ein-
stakar myndir á vefnum vistey.is.
Háfurinn ferðast víða
Þar má m.a. finna eftirfarandi
upplýsingar um hákarla. „Hákarlar
eða háfiskar eru efsta þrepið í fæðu-
keðju hafsins því flestir þeirra eru
öflugir ránfiskar. Tuttugu tegundir
hafa fundist hér við land og eru
helstu tegundirnar beinhákarl (Ce-
torhinus maximus), hámeri (Lamna
nasus), hákarl (Somniosus micro-
cephalus) og háfur (Squalus ac-
anthias). Þetta eru einnig einu há-
fiskarnir sem
fundist hafa í
Eyjafirði. Allar
verða þessar teg-
undir þó, nema
hákarlinn sjálfur,
að flokkast sem
frekar sjaldgæfir
flækingar.
Háfurinn er
líklega algengasti
háfiskurinn við
Ísland en hann er hins vegar sjald-
gæfur í kalda sjónum og þar með í
Eyjafirði. Hann finnst bæði við botn
og uppi í sjó. Hann er einnig þekktur
fyrir að ferðast víða.“
Erlendur fékk ábendingu um háf-
inn frá kunningja sínum, trillukarli á
Árskógsströnd, og beið ekki boðanna
að gera græjurnar klárar og koma
sér í kafarabúninginn. Hann var þó
ekki bjartsýnn á árangur því eftir
norðanveður í langan tíma var sjór-
inn grænn og gruggugur.
Ýmislegt fór úrskeiðis
„Það er hins vegar oft þannig að
þegar maður á síst von á því verður
árangurinn bestur. Akkúrat þegar
ég var að mynda fékk ég fína birtu og
bláan sjó, en háfurinn var bara rétt
undir yfirborðinu. Svo brást flassið
hjá mér, en ég gat lýst upp með
sterku vasaljósi sem ég hélt á í
vinstri hendinni. Ég hef sjaldan
fengið svona gott tækifæri til að
mynda og það var eins gott að ég
klúðraði því ekki,“ segir Erlendur
Bogason.
Undrandi og forvitinn háfur
Byggja upp safn mynda og upplýsinga um lífríkið í sjónum við landið
Ljósmynd/Erlendur Bogason
Forvitinn Það var eins og háfurinn væri forvitinn þar sem hann fylgdist með tilburðum kafarans, en það skemmdi ekki fyrir að hann fékk líka gott að éta.
Erlendur
Bogason
MÁNUDAGUR 12. NÓVEMBER 317. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. „Þjóðin þarf ekki Villa …“
2. „Átti ekki von á þessu“
3. Liverpool náði í stig á Brúnni
4. Tvívegis fengið koss á gluggann
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sópransöngkonan Arndís Halla Ás-
geirsdóttir og píanóleikarinn Antonía
Hevesi halda hádegistónleika á
morgun kl. 12:15 í Norðurljósasal
Hörpu. Fluttar verða þekktar aríur úr
óperum eftir Mozart, Donizetti, Web-
er, Verdi og Offenbach.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flytja þekktar aríur
á hádegistónleikum
Í tilefni þess að
argentínski rithöf-
undurinn Enrique
del Acebo Ibáñez
er staddur hér á
landi stendur
Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur í
erlendum tungu-
málum fyrir há-
degisfyrirlestri á verkum hans í dag.
Kynningin, sem ber yfirskriftina „Ör-
sagan: Bókmenntaform samtímans?“,
verður haldin í stofu 206 í Odda.
Ibáñez á hádegisfyrir-
lestri Háskóla Íslands
Trommuleikarinn Scott McLe-
more leikur ásamt hljómsveit á
KEX hosteli annað
kvöld og í Stofunni
í Aðalstræti 7 á
fimmtudagskvöld.
Hann gaf nýverið
út aðra sólóplötu
sína, Remote
Location, sem
hlotið hefur
prýð-
isdóma.
Scott McLemore
með tónleika á KEX
Á þriðjudag Austlæg átt, 3-10 m/s. Rigning SA-til á landinu, ann-
ars úrkomulítið. Norðaustan 8-13 og él á Vestfjörðum síðdegis. Hiti
0 til 5 stig syðra, en vægt frost fyrir norðan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG SA 18-28 m/s suðvestantil en SA 15-23 í
öðrum landshlutum. Slydda eða rigning S- og V-lands en úrkomu-
minna á N- og NA-landi. Mikil úrkoma SA-til. Lægir eftir hádegi.
VEÐUR
Eggert Gunnþór Jónsson,
landsliðsmaður í fótbolta,
spilar með Charlton sem
lánsmaður næsta mánuðinn
tæpan en hann hefur nær
ekkert fengið að spila með
Úlfunum á tímabilinu.
Eggert gat þó ekki verið
með Charlton í sigri liðsins
í gær því hann var „boðinn
velkominn“ með grófri
tæklingu á fyrstu æfingu
sinni með liðinu. Hann er
stokkbólginn á ökkla. »1
Tæklaður úr leik á
fyrstu æfingu
Gísli Hlynur Jóhanns-
son og Hafsteinn Ingi-
bergsson hafa dæmt
saman handknatt-
leik í þrjá áratugi og
eru enn að. Þeim fé-
lögum reiknast til að
þeir hafi, þegar allt
er tekið saman,
dæmt 1.500
handboltaleiki í
öllum flokkum
og hjá báðum
kynjum eins og
fram kemur í spjalli
við Gísla í íþrótta-
blaðinu í dag. Leikur
númer 1.500 hjá þeim
félögum var stórleikur
FH og Hauka á laugardag-
inn. »4
Gísli og
Hafsteinn
hafa dæmt
1.500 leiki
María Guðmundsdóttir úr Skíðafélagi
Akureyrar fékk góðar fréttir þegar
hún fór í skoðun í Osló í síðustu viku.
Sex mánuðum eftir krossbands-
aðgerð er hún með nægan styrk í fót-
unum til þess að stíga aftur á skíði.
Hún getur þó ekki æft af fullum krafti
í brekkunum fyrr en eftir nokkrar vik-
ur til viðbótar og endurhæfingin
heldur áfram. » 2
Steig aftur á skíði sex
mánuðum eftir aðgerð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á