Morgunblaðið - 12.12.2012, Side 1
Bradford, sem leikur í ensku D-
deildinni í knattspyrnu, gerði sér lít-
ið fyrir og sló Arsenal út í átta liða
úrslitum deildabikarsins í gær-
kvöldi, með því að sigra í víta-
spyrnukeppni eftir að staðan var
jöfn, 1:1, að loknum venjulegum leik-
tíma og framlengingu. Bradford er
65 sætum neðar en Arsenal í deilda-
töflunni í heild.
Bradford náði forystunni strax á
16. mínútu leiksins þegar Garry
Thompson skoraði með fallegu skoti
eftir aukaspyrnu, 1:0. Þannig var
staðan allt þar til þrjár mínútur voru
til leiksloka en þá náði Thomas Ver-
maelen að jafna með skalla eftir fyr-
irgjöf frá Santi Cazorla.
Vítaspyrnukeppnin var dramatísk
en Bradford komst í 2:0 og 3:1.
Taugar leikmanna D-deildarliðsins
voru hinsvegar þandar til hins ýtr-
asta því Wojciech Szezesny í marki
Arsenal hélt úrvalsdeildarliðinu inni
í leiknum með því að verja þriðju og
fimmtu spyrnu Bradford. Thomas
Vermaelen, fyrirliði Arsenal, gat
síðan tryggt sínum mönnum bráða-
bana en hann skaut í stöng í síðustu
spyrnu liðsins og þar með braust út
gífurlegur fögnuður meðal leik-
manna Bradford og stuðnings-
manna þeirra á Valley Parade. Ar-
sene Wenger stillti upp sterku liði,
ekki hálfgerðu varaliði eins og oft
áður í þessari keppni. vs@mbl.is
Lið úr D-deildinni
komið í undanúrslit
Ævintýri Bradford gegn Arsenal
MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2012
ÍÞRÓTTIR
Þýskaland Aron er ánægður með að fá tvo vini sína úr Hafnarfirði í þýska handboltann. Mikil viðurkenning
fyrir handboltann á Íslandi. Er að jafna sig af meiðslum og er tilbúinn í auknar kröfur með landsliðinu. 3
Íþróttir
mbl.is
Matthías Har-
aldsson þjálfari
Þróttar frá Nes-
kaupstað mun
taka við A-
landsliði kvenna
í blaki af Apostol
Apostolov, þjálf-
ara Aftureld-
ingar, sem stýrt
hefur landsliðinu
síðustu fjögur ár-
in. Apostolov snýr sér hins vegar að
þjálfun karlalandsliðsins og tekur
við starfinu af Zdravko Demirev.
Stór verkefni eru framundan á
næsta ári hjá báðum A-landslið-
unum. Þau taka þátt í undankeppni
fyrir HM 2014 og verður það í
fyrsta skipti sem Íslands tekur þátt
í slíkri undankeppni. Einnig keppa
þau á Smáþjóðaleikunum sem fara
fram í Lúxemburg. kris@mbl.is
Skipt um
þjálfara í
blakinu
Apostol
Apostolov
Danska hand-
boltafélagið Vi-
borg ætlar að
leggja höf-
uðáherslu á
kvennalið sitt
samkvæmt frétt
á heimasíðu fé-
lagsins í gær-
kvöldi. Mun
minni kraftur
verða settur í
karlaliðið sem nú er í efstu deild og
er stefnt að því að tefla fram ung-
um leikmönnum en kvennaliðið á að
geta keppt við þau bestu í Evrópu.
Óskar Bjarni Óskarsson þjálfar
karlaliðið og Orri Freyr Gíslason
leikur með því. kris@mbl.is
Breytingar
hjá Viborg
Óskar Bjarni
Óskarsson
AFP
Sigursælar Norsku konurnar fagna sigrinum á þeim sænsku í gær. Liðið er með ólíkindum sigursælt og hefur
unnið síðustu þrjú stórmót og er nú komið í undanúrslit á EM í Serbíu undir stjórn Þóris Hergeirssonar.
Í gærkvöldi gekk
Guðmundur Við-
ar Mete til liðs
við 2. deildarlið
Aftureldingar í
knattspyrnu og
mun leika með
því á komandi
keppnistímabili.
Guðmundur,
sem er 31 árs
gamall varn-
armaður frá Eskifirði, bjó lengi í
Svíþjóð og lék þar með Malmö í úr-
valsdeildinni og með Norrköping í
B-deildinni til ársins 2005, ásamt
því að hann var í stuttan tíma hjá
Midtjylland í Danmörku.
Guðmundur flutti til Íslands 2005
og hefur leikið með Keflavík, Val
og Haukum. Hann náði þó ekkert
að spila með Haukum í 1. deildinni
á þessu ári. vs@mbl.is
Afturelding
fær liðsstyrk
Guðmundur
Viðar Mete
Noregur undir stjórn Þóris Her-
geirssonar mun leika um verðlaun á
EM kvenna í handknattleik sem nú
er í fullum gangi í Serbíu. Noregur
vann Svíþjóð í næstsíðasta leik sín-
um í milliriðli í gær eftir jafna við-
ureign, 28:25. Anja Edin var marka-
hæst hjá Noregi með níu mörk.
Noregur er í efsta sæti í milliriðli
I og spurningin er því bara hverjir
fylgja Norðmönnum í undanúrslit.
Sú barátta opnaðist upp á gátt í gær-
kvöldi þegar Serbía vann Danmörku
29:26.
Serbía er í öðru sæti með fimm
stig en Danmörk og Frakkland hafa
bæði fjögur stig, Svíþjóð er með þrjú
og Tékkland er á botninum án stiga.
Serbíu nægir jafntefli gegn Frakk-
landi í síðustu umferð milliriðilsins
til að komast áfram. Danir þurfa að
glíma við Norðmenn og Svíarnir
spila við Tékkana.
Í milliriðli II liggur fyrir hvaða
þjóðir komast áfram og það eru
Svartfjallaland og Ungverjaland.
Spánverjar og Rússar eyðilögðu
endanlega vonir hvorir annarra um
að komast í undanúrslitin með jafn-
tefli, 25:25, í gær. Ungverjaland
tryggði sér sætið með sigri á Rúm-
eníu 25:19 en Svartfjallaland gat
leyft sér að tapa fyrir Þýskalalandi
27:20. kris@mbl.is
Velgengni Norð-
manna virðist
engan enda taka
Aldís Kara Lúðvíksdóttir, framherji
úr FH, skrifaði í gærkvöld undir
tveggja ára samning við knatt-
spyrnudeild Breiðabliks.
Aldís er 18 ára og var markahæsti
leikmaður FH í Pepsi-deildinni á
síðasta tímabili með 7 mörk í 17
leikjum, og hefur samtals gert 13
mörk í 30 leikjum fyrir Hafnarfjarð-
arliðið í deildinni. Samtals hefur hún
skorað 53 mörk í 54 meistaraflokks-
leikjum með FH.
Aldís á að baki 15 leiki með U17
ára landsliðinu þar sem hún skoraði
18 mörk, sem er markamet í þeim
aldursflokki, og hún hefur einnig
leikið 8 leiki með U19 ára landslið-
inu. vs@mbl.is
Aldís Kara
til liðs við
Breiðablik
Húnar sigruðu SR Fálka, 4:2, þeg-
ar liðin mættust á Íslandsmóti
karla í íshokkí í Egilshöllinni í gær-
kvöld. Staðan var 0:0 eftir fyrstu
lotu, Húnar komust síðan í 2:0 en
Fálkar jöfnuðu í síðustu lotunni,
áður en Húnarnir gerðu tvö síðustu
mörkin.
Með sigrinum komust Húnar
upp fyrir SA Víkinga og í annað
sætið með 17 stig en Björninn er á
toppnum með 25 stig.
Mörk/stoðsendingar Húna:
Brynjar Bergmann 2/1, Gunn-
laugur Guðmundsson 1/0, Matthías
Sigurðsson 1/0, David MacIsaac
0/1, Trausti Bergmann 0/1, Hrólfur
Gíslason 0/1.
Mörk/stoðsendingar Fálka: Egill
Þormóðsson 2/0, Gauti Þormóðsson
0/1.
Húnar lögðu
Fálka og eru
í öðru sæti