Morgunblaðið - 12.12.2012, Page 3

Morgunblaðið - 12.12.2012, Page 3
HANDBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is „Ég tognaði í nára eftir leikinn við Rhein-Neckar Löwen og það tekur sinn tíma að fá sig góðan af slíkum meiðslum. En ég er búinn að grænt ljós frá lækninum um að spila bik- arleikinn annað kvöld (í kvöld),“ sagði landsliðsmaðurinn Aron Pálm- arsson, leikmaður Þýskalands- og Evrópumeistara Kiel, við Morg- unblaðið í gær. Aron hefur ekki verið með Kiel í síðustu tveimur leikjum vegna meiðslanna en þau undur og stór- merki gerðust um síðustu helgi að Kiel tapaði í deildinni og það á heimavelli gegn Melsungen. Kiel hafði ekki tapað í síðasta 51 leik í deildinni og ekki á heimavelli í um þrjú ár. Allir halda ró sinni „Ég upplifði þetta tap úr stúkunni. Þetta var skrýtin tilfinning enda var ég búinn að gleyma því hvenær við töpuðum síðast í deildinni. Auðvitað voru menn svekktir með tapið en það halda allir ró sinni og það er engin krísa í gangi. Ég hélt eins og allir aðrir að við myndum vinna í lokin eins og við erum gjarnir á að gera þrátt fyrir að vera undir en það féll ekkert með okkur. Við klúðruðum mörgum dauðafærum og markvörður þeirra átti örugglega sinn besta leik frá upphafi. Lið Melsungen á hins vegar mikið hrós skilið,“ sagði Aron. Ekki er hægt að sleppa Aroni án þess að spyrja hann út í komu tveggja góðra vina hans í þýsku Bun- desliguna, en á síðustu dögum hafa þeir Ólafur Gústafsson og Stefán Rafn Sigurmannsson gengið í raðir toppliðanna í Þýskalandi. Ólafur yf- irgaf FH og samdi við Flensburg og í fyrradag gekk Stefán Rafn frá samningi við Rhein-Neckar Löwen. Hafnfirðingarnir þrír, sem eru mjög góðir félagar, eru á mála hjá þremur efstu liðunum í deildinni. Stefán á þetta skilið „Þetta er algjör snilld og virkilega ánægjulegt. Þetta sýnir bara hvað við Íslendingar eigum hæfileikaríka handboltamenn. Þarna meiðast leik- menn úr tveimur af bestu liðunum í deildinni og það er leitað til Íslands til að fylla í þeirra skörð. Þetta er gríðarlega mikil viðurkenning fyrir handboltann heima á Íslandi. Stefán Rafn á þetta tækifæri fylli- lega skilið. Hann er búinn að vera bestur í yfirburðaliði landsins og hef- ur sýnt það á landsliðsæfingum að hann á fullt erindi í þetta. Þegar ég sá að Uwe Gensheimer meiddist svona illa þá fannst mér eðlilegt að Gummi myndi sækja Stefán í lið sitt. Auðvitað er þetta stórt stökk en ég hef fulla trú á honum. Hann er stór og sterkur, er fjölhæfur og góður varnarmaður,“ sagði Aron. Óli á bara eftir að verða betri „Óli hefur byrjað virkilega vel hjá Flensburg. Ég sagði við hann daginn fyrir fyrsta leikinn hans að þar sem hann væri óþekkt stærð þá ætti hann frekar að láta taka sig út af fyrir að klikka úr tveimur skotum í röð held- ur en að þora ekki að skjóta á mark- ið. Hans styrkleiki er að koma á ferðinni og negla á markið og hann hefur nýtt tækifæri sitt virkilega vel. Hann hefur ekki bara skorað 5 mörk í síðustu tveimur leikjum heldur hef- ur þjálfarinn verið mjög ánægður með framlag hans í vörninni. Óli á bara eftir að verða betri þegar hann hefur kynnst hlutunum betur og er kominn meira inn í tungumálið,“ sagði Aron. Auknar kröfur og meiri pressa Aron er ekki nema 22 ára gamall en er samt orðinn lykilmaður í lands- liðinu og gegnir æ stærra hlutverki með besta félagsliði heims, Kiel. Tæpur einn mánuður er þar til flaut- að verður til leiks á heimsmeist- aramótinu sem haldið verður á Spáni. Á því móti kemur örugglega til með að mæða mikið á Aroni og mikilvægt fyrir landsliðið að hann verði í sínu besta formi. Spurður hvort hann sé farinn að hugsa um HM sagði Aron: „Maður byrjar alltaf í byrjun des- ember að leiða hugann að stórmót- unum með landsliðinu en það gefst kannski ekki mikill tími. Það er þétt leikið í deildinni. Við eigum til að mynda leik þann 26. desember. Síðan kem ég heim 27. desember, fer beint á æfingu og spila tvo leiki með lands- liðinu 28. og 29. desember. Ég fann fyrir því á Ólympíuleikunum og eftir þá að það eru settar meiri kröfur á mig og það er komin meiri pressa. Ég nýti mér það frekar heldur en að stressast upp. Nú þegar ljóst er að Arnór Atlason verður ekki með á HM þá býst ég við því að fái ennþá minni hvíld en það skapast líka tæki- færi fyrir leikmenn eins og Ólaf Bjarka, Ólaf Guðmundsson og Ólaf Gústafsson. Eins og hefur sýnt sig að undanförnu er eins manns dauði ann- ars brauð.“ Aron segir að fjarvera Arnórs og sú staðreynd að Ólafur Stefánsson sé hættur sé auðvitað blóðtaka fyrir landsliðið en þrátt fyrir það er hann nokkuð bjartsýnn. „Það verður gam- an að mæta á æfingarnar með lands- liðinu núna í lok desember og sjá keppni milli manna. Það er hörku- samkeppni um að komast í hópinn og það getur enginn leyft sér að slaka á. Ég held að við getum spjarað okkur vel á HM og ég held að það henti okkur vel að nú verður ekki milliriðill heldur farið beint í útsláttarkeppni í sextán liða úrslitunum,“ sagði Aron. „Mikil viðurkenning fyrir handboltann á Íslandi“ Morgunblaðið/Ómar Fyrstur Aron Pálmarsson var fyrstur af Hafnfirðingunum ungu til að spila í Þýskalandi og er búinn að festa sig vel í sessi hjá meistaraliði Kiel. Nú eru Ólafur Gústafsson og Stefán Rafn Sigurmannsson líka komnir í topplið.  Aron Pálmarsson ánægður að fá tvo vini sína úr Hafnarfirði í þýsku Bundeslig- una  Tilbúinn á ný eftir meiðsli í nára  Tilbúinn í auknar kröfur með landsliðinu ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 2012 Svíinn ZlatanIbrahimovic var á skotskónum með liði Paris SG í frönsku 1. deild- inni í knatt- spyrnu í kvöld. Svíinn snjalli skoraði þrennu á 25 mínútna kafla þegar Parísarliðið sigraði Val- enciennes, 4:0 á útivelli. Zlatan hefur þar með skorað 14 mörk í þeim 13 leikjum sem hann hefur spilað í deildinni og er hann markahæstur. Paris SG er í öðru sæti deildarinnar, er tveimur stigum á eftir Lyon sem á leik til góða.    Íris Ósk Hilmarsdóttir, 15 áragömul sundkona úr ÍRB, sló 15 ára gamalt Íslandsmet Kolbrúnar Ýrar Kristjánsdóttur í telpnaflokki á Aðventumóti ÍRB í 50 metra laug sem haldið var í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Íris synti 50 metra baksund á tímanum 31,26 sekúndum en gamla metið sem var í eigu Kol- brúnar Ýrar hafði staðið frá árinu 1997.    Kristinn Pálsson, fimmtán árakörfuboltapiltur úr Njarðvík, fór í gær til Rómar á Ítalíu þar sem hann æfir með unglingaliði Stella Azzurra Academy næstu daga og fer síðan með því á sterkt mót í Barce- lona. Þar leikur Kristinn með ítalska liðinu gegn Barcelona og Hospitalet frá Spáni og Værlöse frá Danmörku. Þetta kemur í framhaldi af því að umboðsmaður sá til Kristins með U15 ára landsliði Íslands á móti í Kaupmannahöfn í sumar og falaðist eftir því að fá hann lánaðan til að spila á mótinu á Spáni.    Þýski handboltamarkvörðuinn Jo-hannes Bitter hefur hafið æf- ingar á nýjan leik með þýska liðinu Hamburg en hann sleit krossband í hné í marsmánuði á þessu ári. Bitter verður í leikmannahópi Hamburg í bikarleik gegn Emsdetten í kvöld en hinn stóri og stæðilegi Bitter hefur verið talinn einn af betri markvörð- um heimsins undanfarin ár. Með Emsdetten leika Ólafur Bjarki Ragnarsson og Ernir Hrafn Arn- arson en lið þeirra er í 2. sæti þýsku B-deildarinnar.    Nökkvi Gunn-arsson, kylfingur úr Nes- klúbbnum, held- ur áfram að leika á lítilli mótaröð fyrir atvinnu- menn á Flórída. Nökkvi lauk í gær leik á Eastwood-vellinum og lék hringina tvo á samtals tveimur yfir pari. Nökkvi lék fyrri hringinn á 74 högg- um sem er tvö högg yfir pari og hinn síðari á parinu. Nökkvi segir á Fa- cebooksíðu sinni að völlurinn hafi verið erfiður og hann hafi því verið nokkuð sáttur við skorið. Fólk folk@mbl.is Nicola Leali, 19 ára gamall markvörður Juven- tus, hefur sett sér það takmark að taka við af Gianluigi Buffon hjá aðalliði félagsins eftir þrjú ár. Leali er talinn einn allra efnilegasti mark- vörður Juventus en hann kom til félagsins frá Brescia í sumar. Til að stöðva ekki þróun hans var Lealo lánaður til Lanciano í B-deildinni. „Ég myndi glaður vilja leysa Buffon af eftir þrjú ár,“ segir Leali. „Buffon er fyrimyndin mín. Ég var ótrúlega stoltur að deila búnings- klefa með honum og Marco Storari í byrjun tímabilsins áður en ég var lánaður,“ segir Leali sem ætlar sér að spila fyrir Juventus. „Ég er strax byrjaður að láta mig dreyma um að snúa aftur til Juventus og verða varamaður Buffons,“ segir Leali sem er samningsbundinn Juventus til 2017. tomas@mbl.is Vill taka við af Buffon Nicola Leali Fremsta dómarapar Íslands í handbolta, Ant- on Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson, hafa verið valdir til að dæma á heimsmeistaramóti karla í handknattleik sem fram fer á Spáni dagana 11. til 27. janúar á næsta ári. Anton Gylfi og Hlynur hafa verið á meðal fremstu dómarapara í Evrópu undanfarin ár og fengið stór verkefni í Evrópukeppnum fé- lagsliða, bæði í Meistaradeild og undan- keppnum landsliða. Þeir félagarnir verða á meðal 16 dómara- para sem munu dæma á mótinu. Anton Gylfi og Hlynur dæmdu í úrslitakeppni Evrópumótsins í Serbíu í janúar á þessu ári og fengu mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína. tomas@mbl.is Anton og Hlynur á HM Anton Gylfi Pálsson Will Hughes, 17 ára gamall miðjumaður Derby í ensku B-deildinni í knattspyrnu, hefur slegið rækilega í gegn á tímabilinu eftir að festa sér sæti í byrjunarliðinu. Hann hefur vakið áhuga stórliða í úrvalsdeildinni með frammistöðu sinni en Man. City, Liverpool og Arsenal eru öll sögð fylgjast grannt með Hug- hes sem spilaði sinn fyrsta leik fyrir U21 árs landslið Englands á dögunum. Breskir miðlar greindu frá því um helgina að spænska stórliðið Barcelona væri einnig áhugasamt um piltinn og er hætta á því að hann yfirgefi liðið í janúar. „Við höfum ekki fengið tilboð frá neinum og svo sannarlega ekki Barcelona,“ segir Nigel Clough, knattspyrnustjóri Derby. „Við vissum samt alltaf að hann yrði eftirsóttur.“ tomas@mbl.is Barca horfir til Derby Will Hughes

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.