Morgunblaðið - 23.01.2013, Side 1
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Ég renni dálítið blint í sjóinn með þetta
lið, fer eiginlega út í óvissuna, en ætla að
láta reyna á hvort þetta sé eitthvað sem
getur hentað mér,“ sagði Kristín Ýr
Bjarnadóttir, knattspyrnukona úr Val, við
Morgunblaðið í gær.
Hún var þá á leið til Karlstad í Svíþjóð
þar sem hún æfir með úrvalsdeildarliðinu
Mallbacken til næsta sunnudags. Mal-
lbacken er komið í efstu deild á ný eftir sjö
ára fjarveru og hefur styrkt sig í vetur með
landsliðskonum frá Finnlandi og Skotlandi.
„Þetta var í deiglunni fyrr í vetur en svo
gerðist ekkert og ég skrifaði undir samning
við Val, reyndar með fyrirvara um að geta
farið út ef möguleikar opnuðust. Ég mun
hins vegar ekki fara til Svíþjóðar bara til
þess að fara út. Liðið þarf að henta mér og
ég þarf að vera fullviss um að ég muni bæta
mig með því að spila með því. Ef ekki, þá er
ég í mjög góðu umhverfi hjá Val og það er
ekki síður spennandi að spila þar aftur,“
sagði Kristín, sem skoraði 24 mörk í 22
leikjum fyrir Avaldsnes í Noregi á síðasta
ári.
Stórt stökk úr norsku B-deildinni
„Það er örugglega stórt stökk að fara úr
norsku B-deildinni í sænsku úrvalsdeildina,
en það myndi ekki gefa mér mikið að fara í
lið sem spilaði bara stífan varnarleik. Mér
veitti þó kannski ekki af því að bæta mig
aðeins á því sviði,“ sagði Kristín létt í
lundu.
Erla Steina Arnardóttir, fyrrverandi
landsliðskona, spilaði með Mallbacken síð-
asta þegar liðið lék í úrvalsdeildinni, árin
2005 og 2006.
Kristín, sem er 28 ára gömul, varð
markadrottning með Val árin 2009 og 2010
en hún gerði 23 mörk hvort ár fyrir sig.
Hún hefur samtals gert 98 mörk í 115
deildaleikjum með Val og gert eitt mark í
fimm A-landsleikjum en Kristín var í hópi
Íslands í úrslitakeppni EM í Finnlandi
2009.
Morgunblaðið/Golli
Svíþjóð Kristín Ýr Bjarnadóttir gæti bæst í hóp ís-
lenskra leikmanna í sænsku úrvalsdeildinni.
„Ég fer út í óvissuna“
Kristín Ýr komin til sænska úrvalsdeildarliðsins Mallbacken og
skoðar þar aðstæður Vill ekki fara í lið sem spilar stífan varnarleik
MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013
ÍÞRÓTTIR
Körfubolti Justin Shouse var útnefndur Íþróttamaður Garðabæjar á dögunum en hann fékk íslenskan
ríkisborgararétt vorið 2011. Hann gaf frá sér möguleikann á landsliðssæti af persónulegum ástæðum. 4
Íþróttir
mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik mætir sænska
landsliðinu í tvígang í vináttulandsleikjum hér á landi
helgina 22.-24. mars næstkomandi. Leikirnir verða
fyrsti liðurinn í undirbúningi íslenska landsliðsins fyrir
umspilsleikina tvo við Tékka sem fram fara í byrjun júní.
Um leið verða þetta fyrstu leikir íslenska kvennalands-
liðsins frá því að það tók þátt í lokakeppni EM í byrjun
desember sl. Úrslitin í leikjunum við Tékka skera úr um
hvor þjóðin tryggir sér keppnisrétt á heimsmeist-
aramótinu sem fram fer í Serbíu í desember á þessu ári.
Mikið verður í húfi og leikirnir þar af leiðandi komnir.
Reiknað er með að Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálf-
ari geti stillt upp sínu sterkasta liði í leikjunum við Svía.
Sænska landsliðið fer einnig í umspilsleiki í vor og
mætir Póllandi. Svíar höfnuðu í áttunda sæti á Evr-
ópumeistaramótinu í Serbíu í desember sl. og hefur
nokkrum sinnum á síðustu árum mætt íslenska landslið-
inu í vináttuleikjum, síðast ytra í haust sem leið. Svíar
unnu fyrri leikinn en þeim síðari lauk með jafntefli.
Samhliða undankeppni U17 ára
Leikir Íslands og Svíþjóðar fara fram sömu helgi og
undankeppni U17 ára landsliða kvenna fer fram hér á
landi. Þar glímir íslenska landsliðið í þeim aldursflokki
við jafnaldra sína frá Hollandi, Lettlandi og Þýskalandi
um keppnisrétt í lokakeppni EM sem fram fer í sumar.
Tvö efstu liðin komast áfram í lokakeppnina sem fram
fer í Póllandi 15.-25. ágúst í sumar. iben@mbl.is
Tekið á Svíum í mars
Kærkominn undirbúningur fyrir HM-umspilsleiki gegn
Tékkum Reiknað með sterkasta liði Íslands í leikjunum
Ljósmynd/Sebastian Tataru
Mætir Svíum Rut Jónsdóttir er í
lykilhlutverki í landsliðinu.
Brynja Magnúsdóttir fór hamförum
þegar HK sló Stjörnuna út úr Síma-
bikar kvenna í handknattleik í gær-
kvöldi. HK sigraði 34:32 og er komið í
8-liða úrslit keppninnar eins og Grótta
sem fór til Hafnarfjarðar og sló Hauka
út 24:22.
Brynja skoraði 11 mörk fyrir HK og
hefur á skömmum tíma skorað tutt-
ugu og eitt mark gegn Stjörnunni því
hún skoraði 10 mörk í deildarleik lið-
anna fyrr í mánuðinum. Jóna Margrét
Ragnarsdóttir var markahæst hjá
Stjörnunni með sjö mörk en HK hafði
yfir, 17:16, að loknum fyrri hálfleik.
Grótta hafði fimm marka forskot,
12:7, í leikhléi á móti Haukum. Þórunn
Friðriksdóttir var markahæst með sex
mörk en Karen Helga Díönudóttir var
með níu fyrir Hauka.
Morgunblaðið/Ómar
Markahæst Þórunn Friðriksdóttir var markahæst hjá Gróttu með sex mörk í sigurleiknum á móti Haukum.
Garðbæingar
ráða lítið við
BrynjuVíðir Sigurðssonvs@mbl.is
Rakel Logadóttir, knattspyrnukon-
an reynda í Val, fer til æfinga með
norska félaginu Medkila um næstu
mánaðamót og gæti gengið til liðs
við það fyrir komandi tímabil.
„Ég verð hjá þeim í viku og spila
tvo æfingaleiki gegn Bodö ásamt því
að æfa með liðinu. Mig langar svo
sem ekkert sérstaklega í 1. deildina
en þetta er víst fínt lið. Ég ætla að
taka mér góðan tíma til að ákveða
mig,“ sagði Rakel við Morgunblaðið
í gær.
Hún var leikjahæsti leikmaður úr-
valsdeildarinnar á síðasta tímabili og
er fimmta leikjahæst í efstu deild
hér á landi frá upphafi með 199 leiki,
en í þeim hefur hún gert 90 mörk.
Rakel, sem er 31 árs, hefur spilað 26
landsleiki fyrir Íslands hönd.
Medkila hafnaði í öðru sæti
B-deildarinnar í fyrra, á eftir Íslend-
ingaliðinu Avaldsnes, en tapaði í um-
spili um sæti í úrvalsdeildinni. Liðið,
sem er frá Harstad í Norður-Noregi,
hefur af og til spilað í efstu deild og
einu sinni orðið bikarmeistari.
Hrefna Jóhannesdóttir, fyrrverandi
landsliðskona, spilaði með liðinu
tímabilið 2004.
Rakel á leið
til Medkila
Morgunblaðið/Ernir
Leikreynd Rakel hefur leikið 199
leiki fyrir Val í efstu deild.