Morgunblaðið - 23.01.2013, Side 4

Morgunblaðið - 23.01.2013, Side 4
KÖRFUBOLTI Kristján Jónsson kris@mbl.is Körfuboltamaðurinn snjalli Justin Shouse var á dögunum valinn Íþróttamaður Garðabæjar en hann hefur leikið við hvern sinn fingur í búningi Stjörnunnar. Shouse fékk íslenskan ríkisborgararétt árið 2011 og hefur verið búsettur hér frá árinu 2005. Fyrst í Vík í Mýr- dal, þá í Stykkishólmi og síðustu fimm árin í Garðabænum. Morg- unblaðið settist niður á dögunum með þessum geðþekka íþrótta- manni frá Pennsylvaniuríki í Bandaríkjunum, þegar hann tók við viðurkenningu fyrir að vera í úrvalsliði í fyrri umferð í Dominos- deildinni. Shouse var fyrst spurður hvaða þýðingu það hefði fyrir hann að vera heiðraður af sveitarfélaginu. „Það skiptir mig miklu máli að vera fyrsti körfuboltamaðurinn sem fær þennan heiður í Garðabæ. Á þeim fimm árum sem ég hef bú- ið í bænum hefur körfuboltinn vax- ið jafnt og þétt. Þessi viður- kenning er því ekki bara ætluð mér heldur allri körfuboltahreyf- ingunni í Garðabæ. Á þessum tíma höfum við Jovan Zdravevski, Fannar Freyr Helgason og Kjart- an Atli Kjartansson verið virkir í félaginu. Margir okkar eru mjög virkir í samfélaginu og þessi vöxt- ur í körfuknattleiksdeildinni á örugglega sinn þátt í þessari við- urkenningu. Um leið og ég fæ hamingjuóskir frá bæjarbúum þá vil ég einnig skila þakklæti til þeirra fyrir að taka þátt í upp- byggingunni. Inni á vellinum eru einnig margir leikmenn sem stuðla að því að ég lít vel út sem leik- stjórnandi,“ sagði Shouse hógvær og er greinilega spenntur fyrir Justin Christopher Shouse » Hann er 31 árs gamall, fæddur 16. september 1981, og leikur sem bakvörður með Stjörnunni. » Justin kom til Íslands frá þýska 3. deildarliðinu Bergheim sum- arið 2005 og gerðist spilandi þjálfari 1. deildarliðs Drangs í Vík í Mýrdal. » Hann gekk síðan til liðs við Snæfell sumarið 2006 og lék í Stykk- ishólmi í tvö ár. Hann samdi við Stjörnuna sumarið 2008 og hefur spilað með Garðabæjarliðinu síðan. » Justin er orðinn löglegur með landsliði Íslands en gaf ekki kost á sér í liðið fyrir leiki þess í undankeppni EM. 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 2013 uppgangi íþróttarinnar í bænum en Garðabær var ekki beinlínis þekktur sem körfuboltabær fyrir nokkrum árum. „Þegar maður kemur á nýjan áfangastað þá vill maður gjarnan að viðkomandi félag sé betra eftir aðkomu manns að því. Með þessu er ég þó ekki að ýja að því að ég sé á förum heldur er ánægjulegt að við skulum hafa bætt okkur nánast á hverju ári. Við sjáum sig- urhefð verða til í yngri flokkunum og til að mynda varð 11. flokkur Íslandsmeistari. Margir efnilegir krakkar eru í yngri flokkunum og það er ánægjulegt að sjá,“ sagði Justin sem sjálfur kemur að þjálf- un tveggja flokka hjá Stjörnunni en hans aðalstarf er kennsla í Al- þjóðaskólanum. Velgengni Helm hjálpaði Justin hugsar með hlýhug til fyrsta áfangastaðarins á Íslandi. „Fyrsta árið mitt í Evrópu spilaði ég í Þýskalandi en ég hafði farið í háskóla með Joshua Helm sem spilaði bæði með KFÍ og KR. Þjálfari háskólaliðsins er með tengingu við Sigurð Hjörleifsson. Fyrsta ár mitt í Evrópu var ekk- ert í boði fyrir mig á Íslandi. Helm fór hins vegar til Íslands og frammistaða hans varð til þess að Siggi skoðaði mig betur. Ég hafði áhuga á því að prófa mig áfram í þjálfun og fór til Víkur í Mýrdal sem spilandi þjálfari en þar starf- aði ég með Birni, bróður Sigga. Það var skemmtilegt ár og áhugavert að búa í fjögurhundruð manna bæ. Erfitt er að biðja um myndrænna umhverfi en í Vík á milli tveggja fjalla, sjórinn í hundrað metra fjarlægð og jökull- inn sjáanlegur. Fallegur staður og liðinu gekk ágætlega í 1. deildinni miðað við lið frá litlum bæ. Fyrir vikið fékk ég tækifæri til að spila fyrir Geoff Kotila hjá Snæfelli og var þar í tvö ár. Þar spilaði ég með Nonna Mæju, Hlyni Bærings, Sigga Þorvalds og Magna Haf- steins svo einhverjir séu nefndir. Við unnum bikarinn og fórum í úr- slit Íslandsmótsins.“ Pressa frá landsliðsfyrirliða Þar sem Justin hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar ár eftir ár þá vaknar sú spurning hvort landsliðið geti notað krafta hans. Reyndar háttar þannig til að íslenska landsliðið býr afskaplega vel um þessar mundir þegar kem- ur að bakvörðum en fjórir lyk- ilmanna liðsins: Jón Arnór Stef- ánsson, Jakob Örn Sigurðarson, Pavel Ermolinskij og Logi Gunn- arsson eru allir bakverðir. „Mér var boðið að taka þátt í landsliðsverkefninu í sumar og freista þess að komast í liðið fyrir undankeppni EM. Ég fór heim til Bandaríkjanna í frí í lok maí og á meðan ég var þar þá komu upp veikindi í fjölskyldunni. Hlyn- ur Bæringsson lagði hart að mér að vera með landsliðinu og ég gerði mér grein fyrir því að þetta yrði einstakt tækifæri fyrir mig. Ekki bara að fá að mæta liðum á borð við Svartfjallaland, Serbíu og Ísrael heldur einnig að fá að æfa og spila með Jóni Arnóri, Jakobi og þessum strákum. Ég hef hins vegar látið körfubolt- ann ganga fyrir í mörg ár og ákvað í þessu tilfelli að láta fjölskylduna ganga fyr- ir. Ég velti því þó ennþá fyr- ir mér hvers ég fór á mis og Hlynur eykur á sektar- kenndina hjá mér þegar ég tala við hann. Ég ber gríð- arlega virðingu fyrir hon- um og það hefði verið frá- bært að spila með honum á ný,“ útskýrði Justin og glotti þegar hann lýsti þessum samskiptum sín- um og Hlyns sem er landsliðsfyrirliði. Justin tekur einnig fram að þessar vangaveltur sínar séu með þeim fyrirvara að hann hefði verið val- inn í liðið en hann segir það ekki vera sjálfgefið vegna þess hve landsliðið var vel mannað. Gefur kost á sér í landsliðið Justin segist hafa metn- að til þess að spila með landsliðinu ef tækifærið býðst. „Ég verð 32 ára í september og geri mér grein fyrir því að tækifær- unum til að spila með landsliði á þessum aldri fer fækkandi. Það gerði einnig ákvörðunina erfiða síðasta sumar. Ég hef búið á Íslandi frá því 2005 og er stoltur ríkisborgari. Ég myndi vilja undirstrika það með því að spila með lands- liðinu ef tækifærið býðst og ég fylgdist með leikjum liðsins síðasta sumar. Ís- land á hins vegar marga leikmenn sem eru að standa sig vel erlendis og margir þeirra eru bak- verðir. Það er því ekki sjálfgefið að komast í liðið,“ sagði Just- in Shouse enn- fremur í sam- tali við Morgun- blaðið. Snjall Snilli Justins Shouse á körfuboltavell- inum hefur ekki farið framhjá Garðbæingum. „Stoltur ríkisborgari“  Justin Shouse heiðraður í Garðabæ  Fyrsti körfubolta- maðurinn sem valinn er íþrótta- maður ársins í sveitarfélaginu  Gaf frá sér möguleikann á landsliðssæti af persónulegum ástæðum Serbinn Novak Djokovic lét fimm tíma slag við Stanislas Wawrinka tveimur dög- um áður ekki trufla sig þegar hann mætti Tékkanum Tomas Berdych í átta manna úrslitum Opna ástralska mótsins í tennis í gær. Berdych hugðist nýta sér þreytu Djokovic en hafði ekki erindi sem erfiði. Sá serbneski hafði næga orku og vann leikinn sannfærandi, 6:1, 4:6, 6:1 og 6:4, á tveimur og hálfum tíma. „Eftir fimm tíma leik verður maður að vinna vel í því að ná sér aftur. Ég geri allt sem í mínu valdi stendur og er innan lög- legra marka til að koma mér í stand á ný eftir svona leiki, og það gengur upp,“ sagði Djokovic við fréttamenn eftir sig- urinn. Andstæðingur hans í undanúrslitum verður David Ferrer frá Spáni sem vann landa sinn Nicolas Almagro í löngum leik í gær. Í dag spilar Roger Federer við Jo- Wilfried Tsonga um sæti í undanúrslitum og Andy Murray við Jeremy Chardy. Í kvennaflokki eru Maria Sharapova frá Rússlandi og Na Li frá Kína komnar í undanúrslit og mætast þar en í dag skýr- ist hverjar hinar tvær verða. Serena Williams mætir Sloane Stephens og Vic- toria Azaraenka mætir Svetlönu Kuz- netsovu. vs@mbl.isAFP Einbeittur Novak Djokovic í leiknum við Tomas Berdych í Melbourne í gær. Fimm tíma leikur beit ekki á Djokovic  Mætir David Ferrer í undanúrslitunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.