Morgunblaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013 ÍÞRÓTTIR Grétar Rafn Sáttur við tilveruna á framandi slóðum í Tyrklandi. Skemmtileg lífsreynsla og krefjandi umhverfi en gott að einbeita sér að fótboltanum. Frá keppni fram í mars vegna aðgerðar á hné. Langt bann frá landsliðinu. 2-3 Íþróttir mbl.is Tómas Þór Þórðarson tomas@mbl.is „Þeir hringdu í umboðsmanninn minn í gær og nú bíðum við bara eftir tilboði,“ segir knattspyrnu- maðurinn Halldór Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar, í samtali við Morgunblaðið en hann bíður nú eftir samnings- tilboði frá norska B-deildarliðinu Bryne. Halldór Orri, sem hefur verið lykilmaður í upp- eldisfélagi sínu Stjörnunni um árabil, fór á reynslu til Bryne um síðustu helgi og spil- aði æfingaleik gegn Haugesund. „Mér gekk bara fínt sko. Ég spil- aði þarna hálfan æfingaleik og svo þegar þjálfarinn skutlaði mér út á völl lét hann mig vita að þeir vildu fá mig til liðsins,“ segir Halldór Orri en hann býst við að fá samn- ingstilboð frá Bryne fyrir helgi. Síðasti séns að fara út Bryne er á suðvesturströnd Nor- egs í hálftíma fjarlægð frá Stav- anger en liðið endaði í 10. sæti B- deildarinnar á síðustu leiktíð. „Mér leist vel á aðstæður þarna, þjálfarann og allt í kringum félagið. Þeir eru líka að vinna í því að styrkja liðið ennþá meira. Liðið ætlar sér einhverja hluti í sumar og það skiptir máli. Ég skoða þetta því með opnum huga,“ segir Hall- dór Orri sem hefur í nokkur ár núna langað að komast út í at- vinnumennsku. „Maður fer að verða helvíti gam- all í þessu. Ég verð 26 ára á þessu ári þannig að þetta er síðasti séns ef maður ætlar einhverntíma út. En ég fer ekki út bara til að fara út. Tilboðið verður að vera spenn- andi,“ segir Halldór Orri Björns- son. Bíður eftir tilboði Bryne Halldór Orri Björnsson Aganefnd HSÍ vísaði í gær frá er- indi sem sent var til nefndarinnar vegna tveggja leikmanna karlaliðs Hauka sem voru útilokaðir með rauðu spjaldi frá viðureign Hauka og Fram í undanúrslitum deildabik- arins síðasta laugardag. Dómarar leiksins, Svavar Pétursson og Haf- steinn Ingibergsson, létu þess getið á leikskýrslu við leikslok að ekki myndi fylgja sérstök skýrsla til aganefndar vegna spjaldanna. Þeir skiptu síðan um skoðun og skiluðu síðar inn skýrslu vegna atvikanna. Aganefnd ákvað að taka ekki skýrslur dómaranna til athugunar vegna þess að sérstaklega var getið á leikskýrslu leiksins að ekki fylgdi skýrsla til aganefndar „Að mati aganefndar brýtur það í bága við ákvæði 10. gr. reglugerðar um aga- mál að senda skýrslu vegna útilok- unar eftir að lokið var við uppgjör leiksins. Málinu er því vísað frá,“ segir í úrskurði aganefndarinnar sem birtur var að vef HSÍ í gær- kvöldi. Leikmenn Hauka hafa þar með sloppið með skrekkinn við hugsanlegt leikbann. iben@mbl.is Sloppið með skrekkinn? Wayne Rooney tryggði Manchester United, 2:1, sigur á Southampton á Old Trafford í gærkvöldi. Þar með er United-liðið komið með sjö stiga forskot á nýjan leik í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu en ríkjandi meistarar í Man- chester City töpuðu stigum í fyrra- kvöld í heimsókn sinni QPR á Loftus Road. Það var samt ekki mikill glæsi- bragur á leik Mancehester United lengst af leiksins í gærkvöldi. Gest- irnir komust yfir á 3. mínútu eftir kæruleysi hjá Michael Carrick þeg- ar hann sendi boltann aftur til Dav- id De Gea, markvarðar. Jay Ro- driguez nýtti sér mistökin og skoraði. Fimm mínútum síðan jafn- aði Rooney metin og skoraði síðan annað mark á 27. mínútu. Þar við sat í markaskorun en leikmenn Southampton voru sterkari í síðari hálfleik. Þeim tókst hinsvegar ekki að nýta sér það til þess að skora mark. „Við vorum lánsamir að vinna leikinn,“ sagði Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester Unit- ed, í leikslok. „Mínir menn voru frá- bærir fyrsta hálftímann en eftir það rann af okkur mesti móðurinn. Leikmenn Southampton voru frá- bærir í síðari hálfleik. Þeir eru klár- lega með besta liðið sem heimsótt hefur Old Trafford í deildinni í vet- ur,“ sagði Ferguson. Arsenal svaraði fyrir sig Arsenal og Liverpool skildu jöfn, 2:2, í frábærum leik í ensku úrvals- deildinni í fótbolta í kvöld. Luis Suá- rez og Jordan Henderson komu Liverpool í 2:0 en Oliver Giroud og Theo Walcott skoruðu tvö mörk með tveggja mínútna millibili og björguðu stigi fyrir Arsenal. Reading átti líka ævintýralega endurkomu gegn Chelsea sem komst tveimur mörkum yfir gegn nýliðunum. Juan Mata og Frank Lampard skoruðu mörkin en vara- maðurinn Adam Le Fondre jafnaði metin með tveimur mörkum á loka- mínútum leiksins. Gylfi nærri því að skora Litlu mátti muna að Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Tottenham sig- ur á Norwich en langskot hans var vel varið á 89. mínútu. Gylfi Þór kom inn á sem varamaður tveimur mínútum áður. iben@mbl.is AFP Öflugur Shinji Kagawa lagði upp fyrra mark Man. United. Hér hafa þrír leikmenn Southampton á honum augu. Rooney með tvö  Liverpool missti niður tveggja marka forskot á Emirates  Reading jafnaði á elleftu stundu gegn Chelsea Helena Sverrisdóttir og samherjar hennar í Good Angels Kosice frá Sló- vakíu komust í gærkvöld í efsta sæti B-riðils Meistaradeildar kvenna í körfuknattleik þegar þau unnu tyrk- neska liðið Fenerbahce, 66:63, á heimavelli. Helena lék í 20 mínútur og skor- aði átta stig og tók fimm fráköst, þar af fjögur í vörn. Good Angels Kosice hefur unnið níu af ellefu leikjum sín- um í riðlinum. Fenerbahce er í öðru sæti með átta sigurleiki og ítalskt lið, Famila Schio, er í þriðja sæti með sjö sigra þegar ein umferð er eftir. Good Angels mætir rúmenska liðinu Municipal Targoviste í loka- umferðinni á útivell 6. febrúar. Sigur hjá englunum TOPPLEIKiR! N1-deild kvenna Fram–Valur Framhús | Kl. 19:30 Fim. 31. jan. | N1-deild kvenna Afturelding–Fylkir Varmá | Kl. 16:00 Lau. 2. feb. | N1-deild kvenna Selfoss–HK Selfoss | Kl. 13:30 Lau. 2. feb. | N1-deild kvenna Stjarnan–Grótta Mýrin | Kl. 13:30 Lau. 2. feb. | N1-deild kvenna Haukar–FH Strandgata | Kl. 16:00 Lau. 2. feb. | N1-deild kvenna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.