Morgunblaðið - 31.01.2013, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Tyrkland er vissulega mjög sérstakt
og öðruvísi en annað sem ég hef
kynnst á ferlinum. Fótboltinn hérna
er fínn og það er gífurleg ástríða í
kringum hann. Hérna verður allt vit-
laust ef leikir tapast og haldnir marga
tíma krísufundir sem nánast væri
hægt að selja inná sem skemmtiatriði.
Þegar við vinnum er maður hinsvegar
faðmaður og kysstur í heila viku á eft-
ir. Þetta er allt öðruvísi en í Englandi
þar sem lífið gekk sinn vanagang,
hvort sem leikirnir unnust eða töp-
uðust,“ sagði Grétar Rafn Steinsson,
landsliðsmaður í knattspyrnu og leik-
maður Kayserispor í Tyrklandi, þeg-
ar Morgunblaðið ræddi við hann í
gær.
Grétar er reyndar í hléi frá fótbolt-
anum um þessar mundir en hann hef-
ur misst af síðustu sjö leikjum liðsins
og spilar ekki með því alveg á næst-
unni.
„Ég fór í aðgerð fyrir tíu dögum og
er núna í sjúkraþjálfun tvisvar á dag.
Liðþófi í öðru hnénu var lagaður eftir
hnjask sem ég varð fyrir í leik í nóv-
ember. Ég vissi að það þyrfti að laga
þetta en það var reynt að sleppa við
það og ýta mér af stað þegar við fór-
um í æfingaferð eftir áramótin en það
gekk alls ekki. Sennilega verð ég 4-6
vikur að ná mér þannig að ég ætti að
geta byrjað að spila aftur í mars,“
sagði Grétar um meiðslin.
Ráðlegg ekki ungum mönnum
að koma hingað
Þó Tyrkland tilheyri Evrópu að
forminu til er stærstur hluti landsins í
Asíu og borgin Kayseri, þar sem
Grétar býr, er inni í miðju landi og
beint í norður frá botni Miðjarð-
arhafs.
„Hér í Kayseri býr hátt í milljón
manns og hingað tekur um átta til tíu
tímu að keyra frá Istanbúl þar sem
evrópsku áhrifin eru mest í landinu.
Hérna er maður farinn að nálgast
Sýrland, Írak og Íran og menningin
og mannlífið taka mið af því. Trúar-
brögðin ráða miklu, hérna eru mosk-
ur á hverju strái, en engir barir eða
diskótek. Ég myndi ekki ráðleggja
ungum leikmönnum að koma hingað
því hérna er enginn glamúr. Mér líkar
þetta hinsvegar vel, hérna er hægt að
einbeita sér vel að því að æfa og spila,
læra nýtt tungumál og fá sem mest
útúr því að vinna undir stjórn góðra
þjálfara. Fólkið hérna er gott og lífs-
reynslan á allan hátt skemmtileg.
Aðstaðan hjá félaginu er frábær,
með því flottara sem ég hef nokkurn
tíma séð. Leikvangurinn er stórglæsi-
legur og allt í kringum liðið,“ sagði
Grétar en völlurinn, Kadir Has, er
magnað mannvirki, aðeins fjögurra
ára gamalt, og rúmar 33 þúsund
áhorfendur.
Prosinecki þjálfari sem kennir
og hjálpar
Þegar Grétar kom til Kayserispor
var gamall samherji hans frá AZ
Alkmaar í Hollandi, Shota Arveladze
frá Georgíu, þjálfari liðsins. Þeirra
samstarf varð þó skammvinnt því eft-
ir mjög slæma byrjun liðsins í deild-
inni varArveladze rekinn. Í stað hans
kom Robert Prosinecki, fyrrverandi
landsliðsmaður Júgóslavíu og Króat-
íu, sem m.a. lék með bæði Barcelona
og Real Madrid á sínum tíma.
„Prosinecki er flottur þjálfari og
eftir að hafa kynnst júgóslavneskum
þjálfurum heima á Íslandi, bæði á
Siglufirði og svo Zeljko Sankovic sem
hjálpaði mér mikið áður en ég fór í at-
vinnumennskuna, þá þekki ég hvern-
ig þeir hugsa og starfa. Prosinecki
lætur okkur æfa mikið, mun meira en
áður, en hann er með skemmtilegar
æfingar og það eru hugmyndir á bak-
við allt. Þetta er ekki eins og á Eng-
landi þar sem maður æfði bara til að
æfa framan af vikunni og ekkert fór
að gerast fyrr en á fimmtudegi.
Hérna snýst allt um að kenna mönn-
um og hjálpa og finna lausnir á hinu
og þessu. Prosinecki á eftir að fara
lengra, þetta er bara stökkpallur fyrir
hann.
Sjálfur reyni ég að læra sem mest
sem gæti nýst mér síðar meir, hvort
sem ég fer út í þjálfun eða einhverja
aðra vinnu sem tengist fótboltanum.
Ég reyni að vera opinn fyrir nýj-
ungum og hef þegar lært mikið af
dvölinni hérna.“
Byrjaði á að nota Google trans-
late
Grétar Rafn segir að tyrkneskan sé
erfitt tungumál en hún sé að koma
hjá sér, smátt og smátt.
„Ég er bara nokkuð sleipur í
tungumálum, þó kennararnir mínir á
árum áður séu eflaust ekki allir á
sama máli. Ég lagði hart að mér að ná
valdi á þeim og er með góðan grunn
til að læra ný mál. Fyrir utan tyrk-
neskuna er ég að læra spænsku í fjar-
námi um þessar mundir. Ég get orðið
bjargað mér í öllum grunnsam-
skiptum hérna í Tyrklandi, pantað
mat og annað slíkt. Ef ég kæmi hing-
að aleinn með flugvél myndi ég kom-
ast þangað sem ég ætlaði mér. Fólkið
hérna talar enga ensku að ráði og ég
bjargaði mér til að byrja með á því að
nota „Google translate“ í símanum!“
sagði Grétar sem áður lék í Sviss,
Hollandi og Englandi og er því kom-
inn með talsverða tungumálaþekk-
ingu.
Skoða málin í rólegheitum
Grétar samdi við Kayserispor til
tveggja ára í ágúst og er því samn-
ingsbundinn félaginu næstu sautján
mánuðina. Hann kveðst lítið vera far-
inn að velta framhaldinu fyrir sér.
„Ég sé bara til og skoða mín mál í
rólegheitum. Ég ætla að halda áfram í
fótboltanum enn um sinn, nokkrar
dyr hafa þegar opnast og ef gott tæki-
færi býðst til að gera samning til
nokkurra ára mun ég skoða það mjög
vel.“
Kayserispor er í 13. sæti af 18 lið-
um í Tyrklandi, aðeins tveimur stig-
um fyrir ofan fallsæti en samt aðeins
átta stigum frá fjórða sætinu.
Erfitt að byggja upp sjálfstraust
„Við erum með geysilega sterkan
leikmannahóp og gott lið, en byrj-
uðum deildina hræðilega illa. Liðið
komst engan veginn í gang, síðan
urðu þjálfaraskipti, og þetta er allt
búið að vera mjög þungt. Hérna í
Tyrklandi er meira mál að rífa menn
upp úr slæmu gengi en ég hef áður
kynnst. Tyrkirnir eru mjög þungir yf-
ir tapleikjum og það er erfitt að
byggja upp sjálfstraust á ný. En liðið
er það sterkt að það ætti í raun að
vera að berjast um Evrópusæti.
Deildin er mjög jöfn og ég er viss um
að við endum í betri stöðu.“
Allt brjálað á pöllunum og dóm-
ararnir með heimaliðinu
„Hérna er líka gífurlegur munur á
því hvort spilað er á heimavelli eða
útivelli. Þegar við erum heima leggj-
ast mótherjarnir í vörn, og öfugt.
Umhverfið í útileikjunum er mjög erf-
itt, allt brjálað á pöllunum, alls kyns
drasli kastað í menn og blys og
sprengjur út um allt. Dómararnir eru
mjög erfiðir, þeir vilja líka vera í
Grétar Rafn Steinsson er sáttur við tilveruna og nýja lífsreynslu á framandi slóðum
aðgerðar á hné Faðmaðir og kysstir í heila viku eftir sigurleiki Krefjandi umhver
Hér verður allt vitla
Knattspyrnukonan Kristín Ýr Bjarnadóttir hefur ákveðið að
leika með Val í sumar og huga ekki frekar að því að spila ann-
ars staðar á Norðurlöndum að sinni.
Kristín fór frá Val til Avaldsnes í Noregi í fyrra og skoraði
24 mörk fyrir liðið þegar það tryggði sér sæti í úrvalsdeild-
inni.
Hún kom aftur heim og samdi við Val en var í síðustu viku
boðið til reynslu hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Mallbacken
og var hjá félaginu í nokkra daga.
„Niðurstaðan þar var sú að Mallbacken myndi ekki henta
mér að sinni. Tvö norsk lið komu líka til greina en ég er búin
að ákveða að spila með Val og tel að það sé best í stöðunni.
Ég hef hug að spila aftur erlendis, en hjá Val er ég viss um að ég eigi mesta
möguleika á að bæta mig sem leikmaður og vonandi að komast í landsliðið sem
fer á EM,“ sagði Kristín Ýr við Morgunblaðið í gær.
vs@mbl.is
Kristín Ýr spilar með Val
Kristín Ýr
Bjarnadóttir
Ulrik Wilbek, þjálfari danska karlalandsliðsins í handknatt-
leik, er með magasár að því er danska handknattleiks-
sambandið upplýsti í gær. Eins og frægt er mætti Wilbek
ekki á blaðamannafund eftir úrslitaleikinn á HM á sunnu-
daginn og bar því við að hann hefði verið svo slappur að
hann hefði þurft að fara heim á hótel. Þess í stað las blaða-
fulltrúi danska handknattleikssambandsins upp yfirlýsingu
frá Wilbek á fyrrgreindum blaðamannafundi.
Wilbek er kominn undir læknishendur heima í Danmörku
og ætti þar með að fá bót meina sinna fljótlega. Wilbek
greindi fréttamönnum frá því á mánudaginn að hann hefði
átt erfitt með að sofa síðustu dagana á HM vegna verkja í
maga.
Hvort álagið á HM hafi orðið til þess að Wilbek fékk magasárið skal ósagt
látið en Danir voru sem kunnugt er rassskelltir af Spánverjum í úrslita-
leiknum sem Spánverjar unnu með 16 marka mun. gummih@mbl.is
Ulrik Wilbek er með magasár
Ulrik
Wilbek
Fótbolta.net mót karla
B-DEILD, 2. riðill:
Grótta – Grindavík ................................... 2:0
Staðan:
Grótta 3 3 0 0 6:1 9
Grindavík 3 1 0 2 6:7 3
BÍ/Bolungarv. 2 1 0 1 4:4 3
Afturelding 2 0 0 2 2:6 0
Norðurlandsmót karla
Kjarnafæðismótið í Boganum:
Völsungur – KA 2 ..................................... 2:1
Staðan:
KA 4 4 0 0 20:3 12
Þór 4 4 0 0 17:1 12
Völsungur 4 2 1 1 8:8 7
Dalvík/Reynir 4 1 2 1 14:18 5
KF 6 1 2 3 11:18 5
KA 2 5 1 0 4 12:19 3
Þór 2 5 0 1 4 10:25 1
England
A-DEILD:
Arsenal – Liverpool................................. 2:2
Oliver Giroud 65., Theo Walcott 67. – Luis
Suárez 5., Jordan Henderson 60.
Everton – WBA ........................................ 2:1
Leighton Baines 29., 45. víti – Shane Long
65.
Norwich – Tottenham............................. 1:1
Wes Hoolahan 32. – Gareth Bale 80.
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem
varamaður hjá Tottenham á 87. mínútu.
Fulham – West Ham ................................ 3:1
Dimitar Berbatov 10., Hugo Rodallega 49.,
Mladen Petric 90. – Kevin Nolan 48.
Manch. Utd – Southampton.................... 2:1
Wayne Rooney 8., 27. – Jay Rodriguez 3.
Reading – Chelsea ................................... 2:2
Adam Le Fondre 87., 90.+5 – Juan Mata
45., Frank Lampard 66.
Brynjar Björn Gunnarsson var ekki í
leikmannahópi Reading.
Staðan:
Man. Utd. 24 19 2 3 59:31 59
Man. City 24 15 7 2 45:19 52
Chelsea 24 13 7 4 49:24 46
Tottenham 24 12 6 6 41:29 42
Everton 24 10 11 3 37:27 41
Arsenal 24 10 8 6 48:29 38
Liverpool 24 9 8 7 42:30 35
Swansea 24 8 10 6 34:27 34
WBA 24 10 4 10 34:34 34
Stoke 24 6 12 6 24:29 30
Sunderland 24 7 8 9 27:31 29
Fulham 24 7 7 10 36:41 28
West Ham 24 7 6 11 27:36 27
Norwich 24 6 9 9 25:40 27
Newcastle 24 6 6 12 30:42 24
Southampton 24 5 8 11 31:42 23
Reading 24 4 8 12 30:45 20
Wigan 24 5 5 14 27:45 20
Aston Villa 24 4 8 12 20:46 20
QPR 24 2 10 12 18:37 16
B-DEILD:
Huddersfield – Crystal Palace.................1:0
Staðan:
Cardiff 28 19 3 6 50:30 60
Leicester 28 15 5 8 49:23 50
Hull 28 15 5 8 39:31 50
Watford 29 15 4 10 56:39 49
Cr. Palace 29 13 9 7 50:36 48
Middlesbro 28 15 2 11 47:39 47
Brighton 28 10 12 6 40:30 42
Burnley 29 12 6 11 44:42 42
Millwall 29 11 8 10 40:40 41
Nottingham F. 29 10 11 8 39:40 41
Leeds 28 12 5 11 39:44 41
Charlton 29 10 9 10 39:40 39
Derby 28 10 8 10 42:41 38
Spánn
Bikarkeppnin, undanúrslit, fyrri leikur:
Real Madrid – Barcelona......................... 1:1
Belgía
Bikarkeppnin, undanúrslit, fyrri leikir:
Kortrijk – Cercle Brugge................ frestað
Arnar Þór Viðarsson er leikmaður
Cercle Bruggeþ
Anderlecht – Genk ................................... 1:0
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Ásgarður: Stjarnan – Snæfell ............. 19.15
Grindavík: Grindavík – Þór Þ.............. 19.15
Hertz-hellirinn: ÍR – Njarðvík............ 19.15
Borgarnes: Skallagrímur – Fjölnir..... 19.15
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót kvenna:
Egilshöll: Fylkir – HK/Víkingur.............. 19
Egilshöll: Valur – KR................................ 21
Fótbolta.net mót karla:
Reykjaneshöll: Njarðvík – Haukar..... 18.30
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin:
Framhús: Fram – Valur....................... 19.30
1. deild karla:
Laugardalshöll: Þróttur – Grótta ....... 18.30
SKAUTAR
Norðurlandamótið í listhlaupi á skautum
hefst í Egilshöll í dag en setningarathöfnin
er kl. 15.15. Keppni í drengjaflokki hefst kl.
16 og í stúlknaflokki kl. 17.15. Mótið heldur
síðan áfram til sunnudags.
Í KVÖLD!