Morgunblaðið - 31.01.2013, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 | SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646
LAGER
HREIN
SUN
FACEBOOK.COM/GLERAUGNAMIDSTODIN
40% afsláttur
af umgjörðum
Tottenhamgæti keypt
nýjan framherja
áður en fé-
lagaskiptaglugg-
inn lokast á mið-
nætti í kvöld, en
Jermain Defoe,
sem hefur borið
hitann og þung-
ann af sóknarleik liðsins, spilar kvið-
slitinn. Emmanuel Adebayor er svo
fjarverandi þar sem hann er staddur
í Suður-Afríku að keppa í Afríku-
keppninni með Tógó. Clint Dempsey
hefur leyst Defoe af frammi und-
anfarið. „Við náðum upp stöðugleika
þegar við fórum að spila 4-4-2 þann-
ig að við höfum þann möguleika að
bæta við framherja,“ sagði André
Villas-Boas á blaðamannafundi. „Ég
er bara að reyna að finna út úr því
hvort við eigum að láta slag standa.
Markaðurinn í janúar er mjög erf-
iður. Verðið á leikmönnum er út í
hött,“ segir Villas-Boas.
RomanAbramo-
vich, eigandi
Chelsea, hefur
gert knatt-
spyrnustjóranum
Rafa Benítez það
algjörlega ljóst að
forgangsatriði
liðsins á þessu
tímabili er að ná einu af efstu fjórum
sætum úrvalsdeildarinnar og kom-
ast þannig í Meistaradeildina aftur
næsta vetur. Benítez opinberaði það
á blaðamannafundi að Michael Em-
analo, yfirmaður knattspyrnumála
hjá félaginu, hefði heimsótt Benítez
á æfingasvæði Chelsea til að láta
hann vita hversu mikilvæg Meist-
aradeildin er fyrir eigandann. „Eina
sem ég get sagt er það sem ég veit.
Við höfum fundað. Við töluðum um
stöðuna eins og hún er og það er mér
ljóst að forgangsatriðið er að ná einu
af efstu fjórum sætunum og komast
eins og langt í öðrum keppnum og
hægt er,“ sagði Benítez.
Hollenskilandsliðs-
maðurinn Urby
Emanuelson er á
leið til Fulham á
láni í ensku úr-
valsdeildinni en
hann leikur með
AC Milan á Ítal-
íu. Urby er örv-
fættur og getur bæði leikið í bak-
verði og á kanti en hann hefur lítið
fengið að spila með Milan á tíma-
bilinu. „Ég mun klára tímabilið á
lánssamningi. Ég hef áður unnið
með Martin Jol hjá Ajax og líkaði
vel. Ég er ánægður með að hann gefi
mér tækifæri núna,“ segir Urby
Emanuelson í viðtali við De Telegra-
af.
Brasilíski miðjumaðurinn Phil-ippe Coutinho er formlega
genginn í raðir Liverpool en hann
skrifaði undir langtímasamning við
félagið í gær. Hann er annar leik-
maðurinn sem Liverpool fær í jan-
úarglugganum en áður hafði fram-
herjinn Daniel Sturridge samið við
félagið. Liverpool kaupir Coutinho
af Inter Mílanó fyrir 8,5 milljónir
punda. Þessi 20 ára gamli Brassi hóf
ferilinn hjá Vasco da Gama í heima-
landinu áður en hann flutti sig um
set til Inter á Ítalíu. Hann á að baki
einn landsleik fyrir Brasilíu.
Jerome Fernandez hefur ákveðiðað gefa áfram kost á sér í
franska landsliðið í handknattleik,
en síðustu daga hafa verið uppi
vangaveltur um að hinn tæplega 36
ára gamli handknattleiksmaður
íhugaði að hætt að leika með lands-
liðinu og fylgja þar með í fótspor
þeirra Daouda Karaboue og Didier
Dinart sem léku sína síðustu lands-
leiki á HM á Spáni.
Fólk sport@mbl.is
styrk á sömu forsendum og Birgir
Leifur.
Eygló fór úr C-styrk í A-styrk
Eygló Ósk Gústafsdóttir hækkar
úr C-styrk upp í A-styrk en í fyrra
fengu sjö íþróttamenn C-styrk en
nú eru þeir níu talsins. Kári Steinn
Karlsson hlaupari, Óðinn Björn
Þorsteinsson kúluvarpari og Þor-
móður Árni Jónsson júdókappi
fara úr B-styrk niður í C-styrk.
Sundmaðurinn Anton Sveinn
McKee er áfram á C-styrk en þau
Einar Daði Lárusson tugþraut-
armaður, Helgi Sveinsson frjáls-
íþróttamaður, Aðalheiður Rósa
Harðardóttir karatekona, María
Guðsteinsdóttir kraftlyftingakona
og Júlían Jóhannsson kraftlyft-
ingamaður voru ekki á meðal
styrkþega í fyrra.
Innan við 15% af kostnaði
Úthlutunin í fyrra hljóðaði upp á
83 milljónir en þá var einnig fram-
lag frá sjóði Ólympíufjölskyldu ÍSÍ.
Afrekssjóðurinn er fjármagnaður
annars vegar með ríkisstyrk sem er
55 milljónir fyrir þetta ár en var
34,7 milljónir í fyrra. Hins vegar er
sjóðurinn fjármagnaður með hlut-
deild úr tekjum íþróttahreyfing-
arinnar af Íslenskri getspá. Af 81
milljón kemur 71 milljón frá Afreks-
sjóði og 10 milljónir úr Styrkt-
arsjóði ungra og framúarskarandi
efnilegra íþróttamanna.
Rétt er að taka fram að það eru
viðkomandi sérsambönd sem fá
styrkina, sem eru eyrnamerktir
ákveðnum íþróttamönnum.
Vegna fjárskorts geta sjóðirnir
sinnt mun færri verkefnum en um-
sóknirnar hljóða upp á. Umsóknir
bárust frá 23 sérsamböndum vegna
55 einstaklinga og vegna 28 verk-
efna/liða. 22 sérsambönd hlutu
styrki vegna 21 einstaklings og 25
verkefna/liða.
Framlag Afrekssjóðs ÍSÍ til sér-
sambanda er rúm 71 milljón og
nemur einungis um 14,9% af kostn-
aðaráætlun vegna þeirra verkefna.
Morgunblaðið/Golli
Stekkur Eygló Ósk Gústafsdóttir var á C-styrk í fyrra en er nú komin í A-flokkinn og fær 200 þúsund á mánuði.
Ásdís fær félagsskap
eftir margra ára einveru
Færri fá en vilja úr Afrekssjóði ÍSÍ Fimm íþróttamenn á A-styrk árið 2013
Þeim sem fá B-styrk fækkar úr ellefu í einn Heildarupphæðin 81 milljón
Afrekssjóður ÍSÍ
» 81 milljón króna úthlutað til
afreksíþróttamanna og ungra
og efnilegra íþróttamanna úr
Afrekssjóði ÍSÍ á árinu 2013.
» Fimm íþróttamenn á A-
styrk, einn á B-styrk og níu eru
á C-styrk.
» A, B, og C-styrkir hækka all-
ir á milli ára en A-styrkurinn
fer úr 1.920.000 krónum á ári í
2.400.000.
FRÉTTASKÝRING
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Fimm íslenskir íþróttamenn fá A-
styrk úr Afrekssjóði ÍSÍ á þessu ári
en tilkynnt var á blaðamannafundi í
Laugardalnum í gær um hvernig
styrkjum verður úthlutað á árinu.
Styrkveitingar fyrir árið 2013 nema
samtals rúmlega 81 milljón króna.
Þar af er rúmlega 71 milljón króna
úr Afrekssjóði og 10 milljónir króna
úr Styrktarsjóði ungra og fram-
úrskarandi efnilegra íþróttamanna.
Í fyrsta skipti í mörg ár fær
spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir
félagsskap í hópi íþróttamanna sem
hljóta A-styrk. Styrkurinn hækkar
nú á milli ára og er 200 þúsund á
mánuði í stað 160 þúsund króna í
fyrra. Ásdís hefur verið ein á A-
styrk síðustu árin en nú bætast í
hópinn Auðunn Jónsson kraftlyft-
ingamaður, Ásgeir Sigurgeirsson
skotíþróttamaður, Eygló Ósk Gúst-
afsdóttir sundkona og Jón Margeir
Sverrisson sundmaður.
Ein á B-styrk í stað ellefu
Verulega fækkar í hópi þeirra
sem fá B-styrk á milli ára. Þar er nú
einungis Hrafnhildur Lúthersdóttir
sundkona og fær hún 120 þúsund á
mánuði en B-styrkurinn hækkar um
40 þúsund á mánuði á milli ára. Ell-
efu íþróttamenn fengu hins vegar
B-styrk á Ólympíuárinu 2012.
Nokkur í þeim hópi fara út úr
styrktarkerfinu þetta árið, Bergur
Ingi Pétursson sleggjukastari,
Helga Margrét Þorsteinsdóttir sjö-
þrautarkona, Jakob Jóhann Sveins-
son sundmaður, Ragna Ingólfs-
dóttir badmintonkona og
Ragnheiður Ragnarsdóttir sund-
kona. Einnig kylfingurinn Birgir
Leifur Hafþórsson en hann var
reyndar á lægri styrk en hin fjögur
þar sem hann var ekki í ólympíu-
grein. Einnig var skylmingakonan
Þorbjörg Ágústsdóttir á B-styrk en
nú fær hún eingreiðslu frá sínu sér-
sambandi upp á 300 þúsund krónur
en það er meira en helmingi minna
en C-styrkurinn. Auðunn Jónsson,
Ásgeir Sigurgeirsson og Jón Mar-
geir Sverrisson hækka úr B-styrk
upp í A-styrk en Auðunn var á lægri