Morgunblaðið - 21.02.2013, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013
Landsliðsmaðurinn Arnór Smárason gerir ráð fyrir því að
yfirgefa danska úrvalsdeildarliðið Esbjerg þegar samningur
hans við félagið rennur út í sumar. Fram kemur á vefmiðl-
inum bold.dk að Arnór hafi átt þann möguleika að fara í láni
til danskra úrvalsdeildarliða í janúar en hann hafi tekið þá
ákvörðun að klára samning sinn við Esbjerg.
Arnór kom til Esbjerg frá hollenska liðinu Heerenveen ár-
ið 2010 og frá þeim tíma hefur hann spilað 57 leiki með
danska liðinu og hefur í þeim skorað 10 mörk. Arnór, sem er
24 ára gamall, hefur verið óheppinn með meiðsli og hefur
misst töluvert úr vegna þeirra og á þessu tímabili hefur hann
aðeins komið við sögu í 7 leikjum af 20.
„Eins og þetta lítur út núna þá fer ég frá Esbjerg í sumar. Það er næstum því
öruggt en maður skyldi aldrei segja aldrei. Ég er hrifinn af hollenska boltanum
og kannski fer ég aftur þangað en ég er líka ánægður í Danmörku og það kem-
ur vel til greina að vera hér áfram,“ segir Arnór við bold.dk. gummih@mbl.is
Arnór býst við að fara frá Esbjerg
Arnór
Smárason
Á HLÍÐARENDA
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Nýkrýndir bikarmeistarar Keflavíkur
geta ekki bókað sigur í Dominos-deild
kvenna þrátt fyrir mikla velgengni í
vetur. Keflavík er í efsta sæti deild-
arinnar en tapaði þriðja leik sínum í
vetur í gærkvöldi fyrir Haukum á úti-
velli, 67:58. Snæfell, sem er í 2. sæti,
vann hins vegar góðan útisigur á Val,
60:46, og minnkaði forskot Keflavíkur
niður í fjögur stig.
Gæðin í leik Vals og Snæfells voru
svo sem ekki mikil. Það verður bara að
segjast eins og er. Ástæðurnar fyrir
því eru sjálfsagt fyrst og fremst tvær.
Annars vegar spennufall hjá Val, sem
spilaði bikarúrslitaleik fyrir aðeins
fjórum dögum, og hins vegar smáryð
hjá Snæfelli, sem var að koma úr
tveggja vikna leikjapásu. Leikurinn
var hins vegar jafn og spennan því fyr-
ir hendi fram í síðasta leikhlutann.
Það er styrkleikamerki hjá Snæfelli
að hafa unnið sigur á móti öflugu liði á
útivelli þrátt fyrir að liðið hafi ekki
fundið sig í sókninni. Snæfell hefur
sýnt styrk í allan vetur og liðið hlýtur
að vera til alls líklegt þegar til tíðinda
dregur á Íslandsmótinu. Byrjunarliðið
er mjög sterkt með blöndu af reynd-
um leikmönnum og yngri leikmönnum
sem eiga framtíðina fyrir sér. Þjálf-
arinn, Ingi Þór Steinþórsson, þekkir
auk þess leiðina að titlum. Alda Leif
Jónsdóttir og Kieraah Marlow voru
stigahæstar í gær með 14 stig hvor en
Berglind Gunnarsdóttir tók við sér í
síðasta leikhlutanum. Hún gerði í raun
gæfumuninn því hún skoraði átta stig
á þeim kafla sem Snæfell seig fram úr
snemma í síðasta leikhlutanum.
Valsliðið þarf á næstunni að finna
lausnir á því vandamáli sem upp er
komið vegna meiðsla Guðbjargar
Sverrisdóttur sem ekki verður með á
ný fyrr en í lok árs. Þórunn Bjarna-
dóttir mun sjálfsagt bera hitann og
þungann af því en hún gaf átta stoð-
sendingar í gærkvöldi. Þar til síðasta
laugardag var Valur það lið sem hafði
spilað best á nýju ári. Nú er spurn-
ingin hvernig liðið vinnur úr þeim
áföllum sem það hefur orðið fyrir;
annars vegar að tapa bikarúrslita-
leiknum og hins vegar því að missa
Guðbjörgu út tímabilið. Jaleesa Butler
mætti grimm til leiks eftir slaka
frammistöðu í sókninni í bikarúrslit-
unum. Hún skoraði 23 stig gegn Snæ-
felli og tók 15 fráköst.
Lið Hauka virðist hafa sérstakt lag
á því að vinna Keflavík. Liðið sló
Keflavík út úr úrslitakeppninni í fyrra
3:0 og hefur nú tvívegis unnið Keflavík
í deildinni í vetur. Keflavík hafði yf-
irhöndina framan af leiknum í gær-
kvöldi en Haukar sneru leiknum sér í
hag í þriðja leikhluta. María Lind Sig-
urðardóttir átti virkilega góðan leik en
hún skoraði 16 stig og varði sex skot.
Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 24 stig
fyrir Keflavík og stal boltanum átta
sinnum. Keflavík lék án Birnu Val-
garðsdóttur.
Fjölnir er í erfiðum málum á botni
deildarinnar eftir tap fyrir Njarðvík á
heimavelli eftir framlengingu, 89:94.
Britney Jones braut 50 stiga múrinn
og skoraði 52 stig fyrir Fjölni. Lele
Hardy daðraði aftur við fjórfalda
tvennu hjá Njarðvík, 30 stig, 20 frá-
köst, átta stoðsendingar og átta stoln-
ir.
Ekki hefur farið mjög mikið fyrir
KR-liðinu í vetur miðað við að það sit-
ur í þriðja sæti deildarinnar. KR vann
Grindavík í gær, 59:47, og Shannon
McCallum átti enn einn stórleikinn en
hún gerði 25 stig.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frákast Berglind Gunnarsdóttir í baráttunni undir körfunni en hún skoraði 10 stig fyrir Snæfell í síðasta leikhlutanum.
Snæfell á möguleika
á efsta sætinu
Vann Val á útivelli Keflavík tapaði aftur fyrir Haukum
Meistaradeild Evrópu
16-liða úrslit, fyrri leikir:
AC Milan – Barcelona ............................. 2:0
Kevin-Prince Boateng 56., Sulley Muntari
81.
Galatasaray – Schalke ............................ 1:1
Burak Yilmaz 12. – Jermaine Jones 45.
England
B-DEILD:
Leeds – Blackpool .................................... 2:0
Staða efstu liða:
Cardiff 32 21 4 7 53:33 67
Hull 33 19 5 9 45:33 62
Watford 33 18 5 10 66:42 59
Cr.Palace 33 16 10 7 60:41 58
Leicester 31 16 5 10 53:28 53
Middlesbro 33 16 3 14 51:50 51
Belgía
Charleroi – Cercle Brugge..................... 2:1
Arnar Þór Viðarsson lék allan tímann
fyrir Cercle Brugge.
KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
B-RIÐILL:
Constanta – Kiel .................................. 25:28
Guðjón Valur Sigurðsson og Aron Pálm-
arsson voru ekki á meðal markaskorara hjá
Kiel. Alfreð Gíslason þjálfar liðið.
Kiel 16, Veszprém 16, Atlético Madrid
10, Celje Lasko 6, Sävehof 4, Constanta 4.
Þýskaland
A-DEILD:
Wetzlar – RN Löwen........................... 23:29
Kári Kristján Kristjánsson skoraði ekki
fyrir Wetzlar en Fannar Þór Friðgeirsson
skoraði eitt mark.
Alexander Petersson skoraði sex mörk
fyrir Löwen og Stefán Rafn Sigurmanns-
son þrjú. Guðmundur Þ. Guðmundsson
þjálfar liðið.
Magdeburg – N-Lübbecke................. 29:29
Björgvin Páll Gústavsson er markvörð-
ur Magdeburg.
Gummersbach – Göppingen................ 27:26
Staðan:
RN Löwen 21 18 2 1 592:519 38
Kiel 20 17 1 2 663:511 35
Flensburg 20 15 2 3 625:516 32
Füchse Berlin 21 15 2 4 613:552 32
Hamburg 21 14 2 5 639:589 30
H.Burgdorf 21 14 1 6 640:622 29
Wetzlar 22 11 2 9 635:626 24
Magdeburg 21 11 1 9 619:583 23
Melsungen 21 10 3 8 605:598 23
Lemgo 21 10 0 11 578:589 20
Göppingen 21 7 2 12 580:583 16
N-Lübbecke 22 7 2 13 622:636 16
Balingen 21 7 1 13 586:626 15
Gummersbach 21 5 2 14 555:640 12
Neuhausen 21 5 1 15 557:647 11
Minden 20 4 3 13 528:594 11
Grosswallstadt 20 3 1 16 505:563 7
Essen 21 0 2 19 519:667 2
B-DEILD:
Friesenheim – Bietigheim.................. 28:31
Árni Þór Sigtryggsson skoraði þrjú
mörk fyrir Friesenheim.
Danmörk
Bjerr.-Silkeb. – Nordsjælland ........... 31:23
Guðmundur Árni Ólafsson skoraði ekki
fyrir fyrir Bjerringbro-Silkeborg.
Tvis Holstebro – Mors-Thy ............... 30:21
Einar Ingi Hrafnsson skoraði eitt mark
fyrir Mors-Thy.
Noregur
Follo – Nötteröy .................................. 27:26
Hreiðar Levý Guðmundsson ver mark
Nötteröy.
Arendal – Elverum.............................. 28:28
Sigurður Ari Stefánsson var ekki í leik-
mannahópi Elverum.
Svíþjóð
Guif – VästeråsIrsta............................ 27:23
Haukur Andrésson lék ekki með Guifen
Heimir Óli Heimisson skoraði þrjú mörk.
Kristján Andrésson þjálfar liðið.
HANDBOLTI
Haukar – Keflavík 67:58
Schenkerhöllin, Dominos-deild kvenna.
Gangur leiksins: 2:2, 4:5, 8:10, 8:12, 11:20,
15:29, 19:31, 26:35, 34:43, 40:46, 48:48, 48:49,
55:52, 57:56, 62:58, 67:58.
Haukar: Siarre Evans 21/19 fráköst/3 varin
skot, María Lind Sigurðardóttir 16/7 frá-
köst/6 varin skot, Margrét Rósa Hálfdan-
ardóttir 9/6 fráköst, Jóhanna Björk Sveins-
dóttir 8/7 fráköst/3 varin skot, Gunnhildur
Gunnarsdóttir 5/6 fráköst, Dagbjört Sam-
úelsdóttir 5, Auður Íris Ólafsdóttir 3.
Fráköst: 38 í vörn, 10 í sókn.
Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 24/8 frá-
köst/8 stolnir, Bryndís Guðmundsdóttir 12/
11 fráköst/5 stoðsendingar, Jessica Ann
Jenkins 12/5 stoðsendingar, Sandra Lind
Þrastardóttir 4/7 fráköst, Sara Rún Hin-
riksdóttir 4/8 fráköst, Ingunn Embla Krist-
ínardóttir 2/4 fráköst.
Fráköst: 29 í vörn, 12 í sókn.
KR – Grindavík 59:47
DHL-höllin, Dominos-deild kvenna.
Gangur leiksins: 4:6, 6:9, 10:13, 10:15, 17:23,
25:23, 27:26, 34:26, 36:29, 39:33, 41:37, 44:41,
44:44, 47:44, 55:46, 59:47.
KR: Shannon McCallum 25/13 fráköst, Sig-
rún Sjöfn Ámundadóttir 11/10 fráköst,
Helga Einarsdóttir 8/5 fráköst, Björg Guð-
rún Einarsdóttir 7, Guðrún Gróa Þorsteins-
dóttir 5/16 fráköst, Anna M. Ævarsdóttir 3.
Fráköst: 27 í vörn, 21 í sókn.
Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 19, Crys-
tal Smith 9, Helga Rut Hallgrímsdóttir 9/11
fráköst, Berglind Anna Magnúsdóttir 6,
Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 2, Jóhanna
Rún Styrmisdóttir 2/5 fráköst.
Fráköst: 19 í vörn, 7 í sókn.
Fjölnir – Njarðvík 95:101
Dalhús, Dominos-deild kvenna.
Gangur leiksins: 7:3, 10:7, 14:13, 16:17,
19:22, 26:22, 32:26, 37:32, 37:38, 45:42, 49:49,
53:54, 58:58, 60:66, 67:71, 78:78, 89:84,
89:94.
Fjölnir: Britney Jones 52/18 fráköst, Berg-
dís Ragnarsdóttir 17/9 fráköst/5 varin skot,
Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 7, Fanney
Lind Guðmundsdóttir 5/6 fráköst, Telma
María Jónsdóttir 3, Birna Eiríksdóttir 3,
Eyrún Líf Sigurðardóttir 3, Hrund Jó-
hannsdóttir 2, Eva María Emilsdóttir 2,
Hugrún Eva Valdimarsdóttir 1/4 fráköst.
Fráköst: 43 í vörn, 9 í sókn.
Njarðvík: Lele Hardy 30/20 fráköst/8 stoð-
sendingar/8 stolnir, Marín Hrund Magnús-
dóttir 19/6 fráköst/5 stoðsendingar, Guðlaug
Björt Júlíusdóttir 9/6 fráköst, Eyrún Líf
Sigurðardóttir 8, Ína María Einarsdóttir 7,
Emelía Ósk Grétarsdóttir 7/4 fráköst, Ásdís
Vala Freysdóttir 7, Sara Dögg Margeirs-
dóttir 7, Salbjörg Sævarsdóttir 4/6 fráköst,
Erna Hákonardóttir 3/5 stoðsendingar.
Fráköst: 35 í vörn, 15 í sókn.
Valur – Snæfell 46:60
Vodafonehöllin, Dominos-deild kvenna.
Gangur leiksins: 7:3, 10:7, 14:9, 14:11, 15:20,
20:24, 26:26, 30:29, 30:36, 34:39, 38:42, 42:46,
42:54, 44:56, 44:58, 46:60.
Valur: Jaleesa Butler 23/15 fráköst, Ragna
Brynjarsdóttir 10/6 fráköst, Kristrún Sig-
urjónsdóttir 8/4 fráköst, Unnur Ásgeirs-
dóttir 3/4 fráköst, Hallveig Jónsdóttir 2.
Fráköst: 24 í vörn, 8 í sókn.
Snæfell: Alda Leif Jónsdóttir 14/6 fráköst,
Kieraah Marlow 14/12 fráköst/5 stoðsend-
ingar/5 varin skot, Hildur Björg Kjartans-
dóttir 11/6 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir
10, Hildur Sigurðardóttir 8/11 fráköst/6
stoðsendingar, Rósa Indriðadóttir 3.
Fráköst: 27 í vörn, 10 í sókn.
Staðan:
Keflavík 22 19 3 1723:1485 38
Snæfell 22 17 5 1571:1346 34
KR 22 14 8 1488:1443 28
Valur 22 12 10 1467:1408 24
Haukar 22 10 12 1513:1546 20
Njarðvík 22 7 15 1533:1719 14
Grindavík 22 6 16 1505:1645 12
Fjölnir 22 3 19 1532:1740 6
NBA-deildin
Washington – Toronto........................... 88:96
Orlando – Charlotte............................. 92:105
Brooklyn – Milwaukee ...................... 113:111
Eftir framlengingu.
Detroit – Memphis............................... 91:105
New Orleans – Chicago ......................... 87:96
Denver – Boston..................................... 97:90
Utah – Golden State .......................... 115:101
Sacramento – San Antonio................ 102:108
Portland – Phoenix .............................. 98:102
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Schenkerhöllin: Haukar – Akureyri ........ 18
Kaplakriki: FH – ÍR............................. 19.30
Framhús: Fram – Afturelding ............ 19.30
Vodafonehöllin: Valur – HK ................ 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Hertzhellirinn: ÍR – Stjarnan ............. 19.15
Njarðvík: Njarðvík – KR ..................... 19.15
Stykkishólmur: Snæfell – Fjölnir ....... 19.15
Grindavík: Grindavík – Skallagr. ........ 19.15
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót kvenna:
Egilshöll: Þróttur R. – Valur.................... 19
Egilshöll: HK/Víkingur – KR................... 21
Í KVÖLD!
Landsliðsmaðurinn Alexander Petersson lét ekki meiðsli
á ökkla og í öxl hafa áhrif á sig þegar Rhein-Neckar Lö-
wen vann góðan útisigur á Wetzlar, 29:23, í þýsku A-
deildinni í handknattleik í gærkvöld.
Alexander, sem sneri sig á ökkla í leik með Löwen um
síðustu helgi, skoraði sex mörk og Stefán Rafn Sig-
urmannsson skoraði þrjú. Markahæstur í liði Rhein-
Neckar Löwen var sænski landsliðsmaðurinn Kim Ekdahl
með átta mörk.
Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði þrjú af mörkum
Löwen sem með sigrinum náði þriggja stiga forskoti á
Kiel í toppsæti deildarinnar en Þýskalandsmeistaranir í
Kiel eiga leik til góða. Fannar Friðgeirsson skoraði eitt mark fyrir Wetzlar
en Kári Kristján Kristjánsson komst ekki á blað.
Björgvin Páll Gústavsson og félagar hans í Magdeburg gerðu jafntefli við
Lübbecke á heimavelli, 29:29, og Magdeburg um miðja deild. gummi-
h@mbl.is
Alexander með 6 í sigurleik
Alexander
Petersson