Morgunblaðið - 21.02.2013, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. FEBRÚAR 2013
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Ég er afar ánægður með að þetta
skuli vera í höfn. Mér líður mjög vel
hérna í Danmörku, úrvalsdeildin
hér hentar mér mjög vel og það er
gott að vera kominn með samning
til ársloka 2015 hjá spennandi félagi
eins og Midtjylland,“ sagði Eyjólfur
Héðinsson, knattspyrnumaður hjá
SönderjyskE í Danmörku, við
Morgunblaðið í gær.
Eyjólfur hefur gengið frá samn-
ingi við Midtjylland til hálfs þriðja
árs og flytur sig um set í sumar.
Hann lýkur þó yfirstandandi tíma-
bili með SönderjyskE, sem er ein-
mitt í hatrammri baráttu við Midt-
jylland í neðri hluta dönsku
úrvalsdeildarinnar. Eitt stig skilur
liðin að í 8. og 9. sætinu en sex neðri
liðin í deildinni eru nánast í einum
hnapp og tvö þau neðstu falla í vor.
Þrettán umferðum af 33 er ólokið í
deildinni sem hefst aftur 2. mars
eftir vetrarfríið og lýkur 19. maí.
Lokakaflinn verður skrýtinn
„Það verður kannski dálítið
skrýtið að spila þennan lokakafla,
eftir að vera búinn að semja við
annað félag, ekki síst vegna þess að
við eigum eftir að mæta Midtjyll-
and tvisvar í vor. En ég má ekkert
hugsa um það, ég er leikmaður Sön-
derjyskE til sumarsins og einbeiti
mér að því að hjálpa liðinu að halda
sér í deildinni. En með framtíðina í
huga er fínt að vera búinn að ganga
frá málum um að vera áfram hérna
í Danmörku,“ sagði Eyjólfur sem
kom til SönderjyskE frá GAIS í
Svíþjóð árið 2010.
Hann samdi við Midtjylland fyrr
í þessum mánuði en um áramót var
hálft ár eftir af samningnum við
SönderjyskE og þá mátti Eyjólfur
ræða við önnur félög.
„Ég fór og hitti þjálfara og fram-
kvæmdastjóra Midtjylland tvisvar
og eftir þá fundi var ég mjög
spenntur fyrir því að fara til félags-
ins. Midtjylland er bara 14 ára
gamalt félag og var stofnað úr
nokkrum liðum á miðju Jótlandi,
með heimavöll í Herning og æf-
ingaaðstöðu í Ikast. Svo eru ein
150-160 lítil félög og barna- og ung-
lingalið á svæðinu sem eru undir
regnhlíf félagsins. Uppeldisstarfið
er eitt það besta í Danmörku og í
haust þegar liðið vann Young Boys í
Sviss, 2:0 á útivelli í Evrópudeild-
inni, voru níu uppaldir leikmenn í
liðinu.“
Þó aðeins eitt sæti og eitt stig
skilji að Midtjylland og Sönder-
jyskE þessa dagana telur Eyjólfur
að hann taki með þessum skiptum
skref upp á við.
Mun stærra félag
„Já, ég held að það sé ekki spurn-
ing. Í sögulegu samhengi er Midt-
jylland mun stærra félag. Það hefur
á undanförnum árum oft verið í
öðru og þriðja sæti úrvalsdeild-
arinnar, farið tvisvar í bikarúrslit
og spilar reglulega í Evrópukeppni.
Völlurinn og umgjörðin öll eru mun
stærri en hjá okkur í SönderjyskE.
Liðið endaði í þriðja sætinu í fyrra
en hefur lent í vandamálum með
meiðsli leikmanna í vetur og átt í
basli í deildinni af þeim sökum.“
Markahæstur en misst
af mörgum leikjum
Eyjólfur er markahæsti leik-
maður SönderjyskE á yfirstand-
andi tímabili með 6 mörk í deildinni
en hefur þó aðeins náð að spila 11 af
20 deildaleikjum liðsins.
„Ég meiddist í mjöðm í ágúst,
fékk slæmt högg, og var frá í þrjá
mánuði. Svo kom ég aftur inní liðið í
nóvember og desember og gekk
mjög vel, skoraði 5 mörk í síðustu 7
leikjunum. Í gær komum við úr æf-
ingaferð í Tyrklandi og þar tóku því
miður meiðslin sig upp að nýju og
ég er að fara í rannsókn útaf þeim
núna í vikunni. En ég er bjartsýnn
á að verða kominn á fulla ferð á ný
áður en við mætum Midtjylland 2.
mars,“ sagði Eyjólfur Héðinsson.
Hann verður annar Íslending-
urinn til að klæðast búningi Midt-
jylland en Guðmundur Viðar Mete
lék með félaginu um skamma hríð
sem lánsmaður frá Malmö árið
2001.
Ljósmynd/hangaardfotografi.dk
Marksækinn Eyjólfur Héðinsson á fullri ferð í leik með SönderjyskE. Hann er markahæsti leikmaður liðsins í vetur
og á eftir að spila allt að þrettán deildaleiki með liðinu áður en kemur að skiptunum til Midtjylland í sumar.
Mun stærra í sögu-
legu samhengi
Eyjólfur Héðinsson til Midtjylland í sumar Mætir nýja
liðinu tvisvar með SönderjyskE í vor Spennandi skipti
Íslenskir fótboltamenn í Danmörku
Kaupmannahöfn
Randers
Árósar
Esbjerg
Silkeborg
Vejle
Herning
Staða liða í dönsku úrvalsdeildinni
FC Köbenhavn 47
Nordsjælland 35
AaB 32
OB 31
Randers 31
AGF 30
Horsens 23
Midtjylland 22
SönderjyskE 21
Esbjerg 19
Silkeborg 18
Bröndby 17
* Spila með unglinga- og varaliðum
Haderslev
Eyjólfur flytur sig
frá SönderjyskE til
Midtjylland í sumar.
SönderjyskE
Eyjólfur Héðinsson
Hallgrímur Jónasson
FC Köbenhavn
Ragnar Sigurðsson
Rúrik Gíslason
Sölvi Geir Ottesen
AGF
Oliver Sigurjónsson *
Orri Sigurður Ómarsson *
Arnar Aðalgeirsson *
Randers
Theódór Elmar Bjarnason
Elfar Freyr Helgason
Silkeborg
Bjarni Þór Viðarsson
Esbjerg
Arnór Smárason
Vejle-Kolding (B-deild)
Davíð Þór Viðarsson
Eyjólfur Héðinsson
» Hann er 28 ára gamall,
fæddur á nýársdag 1985, og er
uppalinn ÍR-ingur.
» Eyjólfur lék með meist-
araflokki ÍR í tvö ár en síðan
með Fylki í úrvalsdeildinni frá
2003 til 2006.
» Hann fór til Gautaborgar og
lék með GAIS í sænsku úrvals-
deildinni í fjögur ár en hefur
frá sumrinu 2010 spilað með
SönderjyskE í Danmörku.
» Eyjólfur hefur leikið 5 A-
landsleiki og 19 leiki með yngri
landsliðum Íslands.
Háþrýstidælur
Teg: K 3.500
120 bör max
460 ltr/klst
Teg: K 7.400
160 bör max
600 ltr/klst
Þegar gerðar eru hámarkskröfur
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
makes a difference