Morgunblaðið - 06.03.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.03.2013, Blaðsíða 2
2-3 leikmenn tilbúna í hverja stöðu þannig að ekkert komi okkur á óvart þótt einhverjar verði fyrir meiðslum og detti út úr hópnum. Nú er til dæm- is Margrét Lára Viðarsdóttir ekki með okkur, hún hefur verið okkar aðalframherji í mörg ár og þar með þurfum við að finna aðrar lausnir þar sem hún er ekki í liðinu. Stúlkurnar munu sjálfar veita okkur svörin við spurningunum með sinni frammistöðu í mótinu og á æfingum hér á Algarve.“ Fróðlegt að sjá Guðnýju og Ólínu aftur með liðinu Fjórtán af leikmönnum íslenska liðsins spila með erlendum liðum og Sigurður segir að það sé jákvætt að flestöllu leyti. „Ég sé þessa leikmenn reyndar minna fyrir vikið en í þessum hópi eru flestar af þeim bestu og af reynslu undanfarinna ára vitum við hverjar þeirra eru alltaf í formi. Síðan eru aðrar að koma til baka eftir fjar- veru, hérna eru t.d. þær Guðný Björk Óðinsdóttir og Ólína G. Viðarsdóttir með okkur á ný og það verður fróðlegt að sjá til þeirra í þessari ferð. Ég er fyrst og fremst ánægður með að hafa fengið sjö leiki til undirbún- ings fyrir Evrópukeppnina. Við reyn- um að nýta þann tíma sem við erum saman með liðið eins vel og mögulegt er. Auðvitað hefði verið fínt að hafa þetta eins og Svíarnir sem verða sam- an í samtals 105 daga áður en EM byrjar, en mér finnst það reyndar vera fullmikið af því góða.“ Mitt annað heimili í mars Þetta er sjöunda árið í röð sem Sig- urður Ragnar fer með landsliðið til Algarve um þetta leyti árs. „Já, þetta er eiginlega orðið mitt annað heimili í mars! Hér eru fínar aðstæður, við fáum dýrmætan tíma saman með liðið og spilum gegn nokkrum af bestu lið- um heims,“ sagði Sigurður Ragnar, sem á laugardaginn kemur flytur erindi um uppbyggingu kvennafót- boltans á Íslands á ráðstefnu sem haldin er í tengslum við Algarve- bikarinn. Næsti leikur Íslands er síðan við Svía á föstudaginn en sænska liðið er í sjötta sæti heimslistans og er brons- verðlaunahafi frá síðasta heimsmeist- aramóti. „Alltaf stærra og stærra“ Ljósmynd/Algarvephotopress Algarve-bikarinn Tom Sermanni, þjálfari Bandaríkjanna, Pia Sundhage, þjálfari Svíþjóðar, Sigurður Ragnar Eyjólfsson og Li Xiaopeng, þjálfari Kína, á fréttamannafundi vegna mótsins á Algarve í gær. Þessar fjórar þjóðir eru saman í riðli.  Sigurður Ragnar finnur vel á Algarve að EM nálgast  Mikill fjölmiðlaáhugi á mótinu  Vonast til að fá svör við nokkrum spurningum í leikjum Íslands Kvennalandsliðið » Ísland mætir Bandaríkjunum, Svíþjóð, Kína og einu liði í viðbót í Algarve-bikarnum á næstu átta dögum. » Ísland leikur síðan vináttuleiki gegn Svíþjóð í Växjö 6. apríl, gegn Skotlandi á Laugardalsvelli 1. júní og gegn Danmörku ytra 20. júní. » EM í Svíþjóð hefst 11. júlí og þar leikur Ísland við Noreg, Þýskaland og Holland í riðla- keppninni. FÓTBOLTI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Þetta mót verður alltaf stærra og stærra í sniðum og núna finnum við vel fyrir því að það er Evrópumót seinna á árinu. Hér voru um 100 fréttamenn á fundi áðan, sjónvarps- stöðvar eru mættar, leikir sýndir beint á Eurosport og það er enn stærri og meiri umgjörð um mótið en á undanförnum árum,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, við Morg- unblaðið í gær en hann er mættur til Algarve í Portúgal með sitt lið til keppni í Algarve-bikarnum sjöunda árið í röð. Í dag leikur íslenska liðið sinn fyrsta landsleik á árinu, og hefur jafn- framt lokaundirbúninginn fyrir Evr- ópumótið í Svíþjóð. Andstæðingur dagsins er ekki árennilegur, lið Bandaríkjanna, sem hefur dvalið á Algarve í átta daga og búið sig þar undir mótið. Veltum ekki andstæðingunum mikið fyrir okkur „Já, þetta er vissulega dálítið bratt í byrjun. Bandaríska liðið er alltaf erf- itt viðureignar, það er efst á heimslist- anum og með frábæran mannskap. En við erum ekki að velta þeim mikið fyrir okkur, frekar en öðrum and- stæðingum á þessu móti. Við einbeit- um okkur fyrst og fremst að okkar liði og ég vonast til þess að fá svör við nokkrum spurningum hérna í Portú- gal á næstu dögum,“ sagði Sigurður Ragnar. Hann er með 23 leikmenn með- ferðis á Algarve. „Ég vonast til þess að geta gefið sem flestum tækifæri í mótinu því hérna vil ég reyna að sjá hverjar eru næstar inn í nokkrar stöð- ur í liðinu. Eitt af því sem við leggjum áherslu á er að auka breiddina, eiga 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2013 Bandaríska kvennalandsliðið í knattspyrnu spilar gegn Íslandi í dag fyrsta mótsleik sinn undir stjórn nýs þjálfara, Tom Sermanni, en hann tók við liðinu í vetur af hinni sænsku Piu Sundhage. Leikur liðanna í Algarve-bikarnum hefst klukkan 14 í Albufeira. Bandaríkin spiluðu tvo vináttu- landsleiki gegn Skotum undir stjórn Sermanni í febrúar og unnu þá báða, 4:1 í Jacksonville í Flórída og 3:1 í Nashville í Tennessee. Ser- manni er sjálfur Skoti, fyrrverandi leikmaður í Skotlandi, Englandi og Ástralíu, og þjálfaði ástralska lands- liðið í sjö ár áður en hann tók við því bandaríska um áramótin. Bandaríska liðið hefur dvalið á Algarve í átta daga við æfingar og vann Dani í óopinberum landsleik þar á sunnudaginn, 4:1. Liðið er efst á heimslista FIFA og ríkjandi ól- ympíumeistari en fékk silfur á síð- asta heimsmeistaramóti, árið 2011, eftir óvænt tap gegn Japan í úr- slitaleik. Eitt jafntefli í 12 leikjum Bandaríkin hafa sigrað Ísland í 11 af 12 landsleikjum þjóðanna til þessa en þær gerðu 0:0 jafntefli í vináttuleik í Charlotte árið 2000 þar sem Þóra B. Helgadóttir fór á kost- um í marki íslenska liðsins. Þrjár síðustu viðureignir þjóð- anna hafa verið í Algarve-bik- arnum. Bandaríkin unnu 1:0 árið 2009, síðan 2:0 ár- ið 2010 í leik þar sem Hope Solo markvörður varði vítaspyrnur frá bæði Margréti Láru Viðarsdóttur og Berglindi Björgu Þorvalds- dóttur. Loks unnu Bandaríkin sigur, 4:2, þegar þjóð- irnar mættust í úrslitaleik Algarve- bikarsins í mars 2011, eftir að Ís- land hafði náð 2:1 forystu í fyrri hálfleik þegar Katrín Ómarsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir skor- uðu. Einhver líflegasti leikur þjóðanna var þó árið 2004 þegar 15 þúsund áhorfendur í Rochester sáu Banda- ríkin vinna nauman sigur, 4:3. Stað- an var 3:0 um miðjan síðari hálfleik en Ísland jafnaði með þremur mörk- um á fimm mínútum þegar Erla Steina Arnardóttir, Edda Garð- arsdóttir og Laufey Ólafsdóttir skoruðu á ótrúlegum leikkafla ís- lenska liðsins. Bandaríkin mæta með sitt sterk- asta lið á Algarve, þar á meðal Abby Wambach og Alex Morgan sem urðu í fyrsta og þriðja sæti í kjörinu á knattspyrnukonu ársins í heiminum 2012. Átján leika með bandarískum liðum og fimm með evrópskum, í Svíþjóð, Frakklandi og Englandi. vs@mbl.is Besta lið heims er mótherjinn í dag Þóra B. Helgadóttir Sveinbjörg Zophoníasdótt- ir úr FH sigraði í fimmt- arþraut innanhúss í flokki 22 ára og yngri á fjöl- þrautamóti sem fram fór í Joensuun í Finnlandi um síðustu helgi. Sveinbjörg fékk 3.927 stig sem er næstbesti ár- angur hennar en hún var í harðri baráttu um efstu sætin því næstu tvær á eft- ir henni fengu 3.896 og 3.852 stig. Sveinbjörg hljóp 60 m grindahlaup á 9,09 sekúndum, stökk 1,69 m í hástökki, kastaði kúlu 12,33 m, stökk 5,85 m í langstökki og hljóp 800 metra á 2:28,90 mínútum. Hún hefði náð þriðja sæti í kvennaflokki á mótinu með þessum árangri en sigurvegarinn þar, Mia Kruppa frá Finnlandi, fékk 4.129 stig og Ida Markussen frá Noregi, sem keppti á síðustu Ólympíuleikum, varð önnur með 4.078 stig. Sveinbjörg hefur best fengið 4.063 stig inn- anhúss, sem hún náði á sænska meist- aramótinu 2012, og er önnur á afrekaskránni. Helga Margrét Þorsteinsdóttir á Íslands- metið sem er 4.298 stig. Þetta var síðasta inn- anhússmótið hjá Sveinbjörgu sem hefur þegar tryggt sér keppnisrétt á EM 22 ára og yngri utanhúss en það fer fram í Turku í Finnlandi í júlí. vs@mbl.is Sveinbjörg vann í Finnlandi Sveinbjörg Zophoníasdóttir ÍBV vann Gróttu, 32:23, í 1. deild karla í handbolta í gærkvöldi en staðan í hálfleik var 17:12 heimamönnum í vil. Andri Heimir Friðriksson skoraði níu mörk fyrir ÍBV og stórskyttan Nemanja Malovic sjö en Kristján Orri Jóhannsson var markahæstur gestanna með fimm mörk. Eyjamenn eru efstir í deildinni með 31 stig, tveimur stigum meira en Víkingur sem vann Fylki, 36:29, í Víkinni í gærkvöldi. Jón Hjálmarsson fór á kostum fyrir Víking og skoraði ellefu mörk í tólf skotum en Óðinn Stefánsson var markahæstur Fylkismanna með átta mörk. Vinni ÍBV og Víkingur bæði næstu tvo leiki sína mætast þau í hreinum úrslitaleik í Eyjum um sæti í N1-deildinni 22. mars. tomas@mbl.is Stefnir allt í úrslitaleik Nemanja Malovic Meistaradeild Evrópu 16-liða úrslit, síðari leikir: Man. Utd – Real Madrid...........................1:2 Sergio Ramos sjálfsmark 48. – Luka Mo- dric 66., Cristiano Ronaldo 69.  Real Madrid áfram, 3:2 samanlagt. Dortmund – Shakhtar Donetsk ..............3:0 Felipe Santana 31., Mario Götze 37., Jakub Blaszczykowski 59.  Dortmund áfram, 5:2 samanlagt. England B-DEILD: Cardiff – Derby.........................................1:1  Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn og Heiðar Helguson í 76 mínútur hjá Car- diff. Millwall – Wolves......................................0:2  Björn B. Sigurðarson kom inn á á 71. mínútu en Eggert Gunnþór Jónsson var ekki í leikmannahópi Wolves. Birmingham – Blackpool..........................1:1 Bolton – Blackburn ...................................1:0 Bristol City – Brighton.............................0:0 Burnley – Barnsley ...................................1.1 Crystal Palace – Hull ................................4:2 Huddersfield – Middlesbrough................2:1 Leicester – Leeds......................................1:1 Nottingham Forest – Ipswich..................1:0 Peterborough – Charlton .........................2:2 Watford – Sheffield Wed. .........................2:1 Staðan: Cardiff 35 22 5 8 57:37 71 Watford 36 20 6 10 71:45 66 Hull 36 20 5 11 53:43 65 Cr.Palace 36 18 10 8 65:44 64 Leicester 35 17 7 11 57:30 58 Brighton 35 14 14 7 50:35 56 Nottingham F. 36 14 12 10 51:46 54 Middlesbro 36 17 3 16 55:55 54 Bolton 36 13 12 11 54:49 51 Leeds 35 14 8 13 45:49 50 Burnley 36 13 9 14 49:49 48 Derby 36 11 12 13 51:50 45 Blackburn 36 11 12 13 44:47 45 Charlton 36 11 11 14 45:50 44 Millwall 35 12 8 15 44:52 44 Huddersfield 36 11 11 14 38:62 44 Blackpool 36 10 13 13 51:50 43 Birmingham 36 10 13 13 46:58 43 Ipswich 36 11 9 16 35:55 42 Sheffield W. 35 11 7 17 40:50 40 Wolves 36 10 9 17 42:50 39 Barnsley 35 10 8 17 44:57 38 Peterboro 35 11 4 20 53:63 37 Bristol City 36 10 6 20 51:65 36 D-DEILD: Oxford – Rotherham................................0:4  Kári Árnason skoraði annað mark Rot- herham sem er í 4. sæti. KNATTSPYRNA 1. deild karla ÍBV – Grótta ..........................................32:23 Víkingur – Fylkir ..................................36:29 Staðan: ÍBV 18 14 3 1 569:403 31 Víkingur 18 14 1 3 489:389 29 Stjarnan 18 12 3 3 526:414 27 Selfoss 18 10 1 7 482:434 21 Grótta 18 10 0 8 487:464 20 Fjölnir 18 3 1 14 396:540 7 Þróttur 18 3 0 15 418:546 6 Fylkir 18 1 1 16 394:571 3 Svíþjóð Guif – Aranäs........................................25:28  Heimir Óli Heimisson skoraði eitt mark fyrir Guif en Haukur Andrésson er meidd- ur. Kristján Andrésson þjálfar lið Guif sem er í 3. sæti deildarinnar. Noregur Tertnes – Storhamar ...........................27:23  Hildigunnur Einarsdóttir skoraði eitt mark fyrir Tertnes sem er í 3. sæti. HANDBOLTI Svíþjóð 08 Stockholm – Norrköping ...............82:85  Pavel Ermolinskij skoraði 4 stig fyrir Norrköping og gaf 4 stoðsendingar. NBA-deildin Cleveland – New York ....................... 97:102 Milwaukee – Utah ............................ 109:108 New Orleans – Orlando.................... 102:105 Minnesota – Miami............................... 81:97 Denver – Atlanta ................................ 104:88 Portland – Charlotte ........................ 122:105 Golden State – Toronto.................... 125:118 KÖRFUBOLTI KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Njarðvík: Njarðvík – Keflavík............. 19.15 Vodafonehöllin: Valur – Haukar ......... 19.15 Dalhús: Fjölnir – KR............................ 19.15 Stykkish.: Snæfell – Grindavík ........... 19.15 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Akraneshöllin: ÍA – Breiðablik ................ 20 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.