Morgunblaðið - 06.03.2013, Page 4

Morgunblaðið - 06.03.2013, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. MARS 2013 Sameiginlegt lið HSK og Selfoss hlaut flest stig í stigakeppni Meist- aramóts Íslands fyrir 11-14 ára sem fram fór í Laugardalshöll helgina 23.-24. febrúar, eftir jafna keppni við lið ÍR. Sunnlendingar hlutu samtals 517,7 stig en ÍR 494,6 stig. FH-ingar urðu síðan í þriðja sætinu með 441 stig. Þórdís Eva Steinsdóttir úr FH setti met í 60 m grindahlaupi í sín- um aldursflokki, 9,65 sekúndur. Alls sendu 22 félög eða héraðs- sambönd úr öllum landshlutum ungmenni til keppni á mótinu og keppendur voru í heildina 380 tals- ins. Stærsti hópurinn kom frá HSK/Selfossi, 79 keppendur, ÍR átti 60 keppendur og FH 38. Í flokki 11 ára stúlkna bar lið Breiðabliks sigur úr býtum með 77,5 stig. Í flokkum 12 og 13 ára stúlkna var ÍR stigahæst með 86 stig í þeim fyrrnefnda en 116,5 stig í þeim síðarnefnda. Í flokki 14 ára stúlkna var FH stigahæst með 133 stig. Í flokki 11 ára pilta bar HSK/ Selfoss sigur úr býtum með 124 stig, en ÍR í 12 ára flokki með 78 stig. UÍA hlaut flest stig í flokki 13 ára pilta, 83,6, og í flokki 14 ára pilta varð Breiðablik efst með 84 stig. Ómar Óskarsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, kom við í Laug- ardalshöllinni og tók meðfylgjandi myndir. vs@mbl.is Sprettur Þrettán ára stúlkur á fullri ferð í undanúrslitum í 60 metra hlaupi þar sem keppendur voru um 60. Kúluvarp Saga Ólafsdóttir úr Hrafna-Flóka kastar í flokki 13 ára stúlkna. Morgunblaðið/Ómar Stigahæst Stúlkurnar frá Selfossi höfðu ástæðu til að brosa því lið HSK og Selfoss vann stigakeppni mótsins. Langstökk María Eir Magnúsdóttir úr Fjölni í langstökki tólf ára stúlkna. HSK og Selfoss fengu flest stig

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.