Morgunblaðið - 18.03.2013, Side 7

Morgunblaðið - 18.03.2013, Side 7
FÓTBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is „Þetta er ekkert alvarleg. Ég var búinn að vera stífur aftan í kálf- anum síðustu daga. Ég fann aðeins meira fyrir þessu undir lok fyrri hálfleiksins og þjálfarinn vildi ekki taka neina áhættu og skipti mér út af snemma í seinni hálfleik,“ sagði Kolbeinn Sigþórsson, framherji hol- lensku meistaranna í Ajax, við Morgunblaðið eftir 3:2-útisigur á AZ Alkmaar í hollensku úrvals- deildinni í knattspyrnu í gær. Kolbeinn fór af velli á 56. mínútu. Íslendingar mæta Slóvenum í und- ankeppni HM í Slóveníu á föstu- daginn og gerir Kolbeinn ekki ráð fyrir öðru en hann verði með í þeim leik. „Ég býst ekki við öðru en að spila á móti Slóveníu. Ég hlýt að hrista þetta af mér. Þetta er afar þýðingarmikill leikur fyrir okkur. Við megum ekki tapa miklu meira af stigum ef við ætlum okkur að gera eitthvað í þessum riðli. Það yrði afar sætt að ná góðum úrslit- um í Slóveníu og þar með myndum við skilja Slóvenana eftir. Við förum í þennan leik með það að markmiði að sækja þrjú stig og ef það tekst komum við okkur í mjög góða stöðu. Ég er alla vega bjartsýnn fyrir þennan leik,“ sagði Kolbeinn, sem er nýkominn aftur á ferðina eftir að hafa gengist undir aðgerð á öxlinni. Gerðum okkur erfitt fyrir Kolbeinn og félagar eru í topp- sæti deildarinnar en þeir eru með einu stigi meira en PSV og Feyeno- ord. „Við gerðum okkur erfitt fyrir í leiknum við AZ Alkmaar. Við sund- urspiluðum þá í fyrri hálfleik og áttum þá að gera út um leikinn. AZ Alkmaar kom sér inn í leikinn með því að minnka muninn snemma í seinni hálfleik en við náðum sem betur fer að vinna og taka topp- sætið á nýjan leik. Það stefnir í rosalega baráttu eins og undanfarin ár. Það eru sjö leikir eftir og við megum alls ekki misstíga okkur,“ sagði Kolbeinn, sem fékk eitt gott færi í fyrri hálfleik en tókst ekki að nýta það á gamla heimavelli sínum. „Það var nett púað á mig þegar ég fór af velli en annars fékk ég bara ágætar móttökur,“ sagði Kolbeinn.  Kolbeinn Sig- þórsson fann fyrir eymslum í kálfa í leik með Ajax í gær AFP Bjartsýnn Kolbeinn Sigþórsson er bjartsýnn fyrir leikinn gegn Slóvenum. Býst ekki við öðru en að spila í Slóveníu ÍÞRÓTTIR 7 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MARS 2013 Belgía Beerschot – Cercle Brugge ................... 3:1  Arnar Þór Viðarsson lék allan tímann fyrir Cercle Brugge. Club Brugge – Lierse.............................. 3:0  Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 20 mínúturnar fyrir Club Brugge. Mechelen – Zulte-Waregem .................. 2:3  Ólafur Ingi Skúlason lék allan tímann með Zulte-Waregem. Kortrijk – OH Leuven ............................ 0:0  Stefán Gíslason hjá Leuven er frá keppni vegna meiðsla. Danmörk Randers – Silkeborg................................ 1:0  Theodór Elmar Bjarnason lék allan tím- ann fyrir Randers en Elfar Freyr Helga- son var á bekknum.  Bjarni Þór Viðarsson var ekki í leik- mannahópi Silkeborg. Noregur Brann – Vålerenga.................................. 3:1  Birkir Már Sævarsson lék allan tímamm fyrir Brann. Aalesund – Haugesund .......................... 3:0  Andrés Már Jóhannesson var ekki í leik- mannahópi Haugasund Lilleström – Sarpsborg........................... 2:2  Pálmi Rafn Pálmason lék allan leikinn fyrir Lilleström.  Guðmundur Þórarinsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson léku allan tímann með Sarpsborg. Haraldur Björnsson er frá keppni vegna meiðsla. Strömsgodset – Sandnes Ulf ................. 2:0  Steinþór Freyr Þorsteinsson lék allan tímann með Sandnes Ulf. Start – Hönefoss ..................................... 3:2  Matthías Vilhjálmsson lék allan tímann með Start og skoraði eitt mark og Guð- mundur Kristjánsson lék allan tímann.  Arnór Sveinn Aðalsteinsson sat á bekkn- um hjá Hönefoss en Kristján Örn Sigurðs- son lék allan tímann. Lengjubikar karla A-DEILD, 1. riðill: Víkingur Ó. – Grindavík......................... 2:1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson 34., 39.– Stefán Þór Pálsson 15. Tindastóll – ÍBV....................................... 2:2 Óskar Smári Haraldsson 61., Guðni Þór Einarsson 79. – Ragnar Leósson 57., Aaron Spear 63. FH – BÍ/Bolungarvík.............................. 4:0 Guðjón Árni Antoníusson 7., Kristján Flóki Finnbogason 11., Ingimundur Níels Ósk- arsson 15., Atli Guðnason 71. Staðan: Víkingur Ó 4 4 0 0 13:2 12 FH 5 4 0 1 15:8 12 Fylkir 5 4 0 1 11:7 12 Grindavík 4 1 1 2 9:8 4 ÍBV 4 0 3 1 10:11 3 Fjölnir 4 0 2 2 5:9 2 Tindastóll 4 0 1 3 2:10 1 BÍ/Bolungarvík 4 0 1 3 0:10 1 A-DEILD, 2. riðill: KA – ÍA ..................................................... 1:1 Hallgrímur Mar Steingrímsson 57. (víti) – Kári Ársælsson 69. Fram – Selfoss.......................................... 4:0 Haukur Baldvinsson 12., 52., Hólmbert Friðjónsson 17., Viktor B. Arnarsson 74. Völsungur – Valur................................... 0:4 Matarr Jobe, Arnar Sveinn Geirsson, Þórir Guðjónsson, Kristinn Freyr Sigurðsson. Staðan: Valur 5 4 0 1 16:8 12 Breiðablik 4 3 0 1 10:4 9 ÍA 4 2 1 1 11:5 7 Fram 5 2 1 2 8:6 7 KA 4 1 1 2 4:7 4 Víkingur R. 4 1 0 3 9:12 3 Selfoss 3 1 0 2 3:8 3 Völsungur 3 0 1 2 1:12 1 A-DEILD, 3. riðill: Keflavík – Leiknir R................................ 6:1 Arnór Ingvi Traustason 13., 43., 47., Hörð- ur Sveinsson 24.,59., Magnús S. Þorsteins- son 66. – Dánjal á Lakjuni 79. KR – Þór ................................................... 8:0 Þorsteinn Már Ragnarsson 15., 49., Emil Atlason 19., 43., Atli Sigurjónsson 21., Ósk- ar Örn Hauksson 39., Gary Martin 40., 48. Haukar – KF............................................. 3:3 Hilmar Geir Eiðsson 2., Guðmundur Sæv- arsson 42., Magnús Páll Gunnarsson 74. – Kristinn Þór Rósbergsson 12.,53., Teitur Pétursson 43. Staðan: KR 5 5 0 0 20:4 15 Stjarnan 6 3 1 2 14:9 10 Þróttur 4 2 0 2 9:9 6 Leiknir R. 4 2 0 2 7:10 6 Keflavík 4 1 2 1 11:10 5 Þór 4 1 1 2 9:17 4 Haukar 6 0 3 3 8:12 3 KF 3 0 1 2 5:12 1 B-DEILD, 3. riðill: Leiknir F. – Höttur .................................. 1:1 Magni – Fjarðabyggð .............................. 1:0 Lengjubikar kvenna A-DEILD: Breiðablik – Þór/KA............................... 3:1 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir 7., Rakel Hönnudóttir 46., Greta Mjöll Samúelsdótt- ir 50. – Sandra María Jessen 36. Stjarnan – Valur ...................................... 1:2 Harpa Þorsteinsdóttir 71. – Svava R. Guð- mundsdóttir 60., Laufey Björnsdóttir 85. KNATTSPYRNA Róbert Fannar Halldórsson og Rósa Jónsdóttir urðu Ís- landsmeistarar í karla- og kvennaflokki á Íslandsmótinu í skvassi sem lauk um helgina. Rósa varð þar með Íslandsmeistari í 11. sinn en hún hafði betur á móti Hildi Einarsdóttur, 3:0, í úrslitaleik. Í þriðja sætinu hafnaði Dagný Ívarsdóttir. Róbert Fannar vann Íslandsmeistaratitilinn í sjötta sinn en hann vann Arnþór Jón Þorvarðarson í úrslitaleik, 1:1. Matthías Jónsson varð í þriðja sætinu. Í flokki stúlkna 17 ára og yngri varð Svana Helgadóttir Íslandsmeistari, Viktoría Von Jóhannsdóttir varð önnur og Anna Hafliðadóttir lenti í þriðja sætinu. Anna Pálína fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í flokki stúlkna 15 ára og yngri. Kristín Erla Guðmundsson varð í öðru sæti og Ólöf Pálína Sigurðardóttir varð í þriðja sætinu. Í flokki 17 ára og yngri í drengjaflokki varð Jón Orri Aronsson Íslands- meistari, Adam Björgvinsson varð í öðru sæti og Gabríel Snorrason í þriðja sæti. Í A-flokki karla hampaði Halldór Fannar Halldórsson Íslandsmeist- aratitlinum, Ásgeir Már Arnarsson varð annar og Grímkell Sigurjónsson lenti í þriðja sætinu. gummih@mbl.is Rósa meistari í 11. sinn Íslendingar áttu þrjá fulltrúa á sterku alþjóðlegu jú- dómóti sem lauk í Þýskalandi. Ásta Lovísa Arnórsdóttir keppti í -57 kg flokki, Ingi Þór Kristjánsson í 73 kg flokki og Sveinbjörn Lura í 81 kg flokki. Sveinbjörn náði bestum árangri þeirra en hann vann til bronsverðlauna. Ásta keppti um bronsverðlaun en tapaði þeirri viðureign en Ingi Þór endaði í 9. sæti. Sveinbjörn glímdi við Þjóðverjann Nico Keading og vann Sveinbjörn örugglega með ippon kasti. Sveinbjörn glímdi því næst við Þjóðverjann Faruch Bulekular. Svein- björn barðist af miklum krafti en varð að játa sig sigraðan á ippon. Sveinbjörn fékk uppreisnarglímur sem urðu þrjár. Mótherjar hans voru frá Hollandi og Þýskalandi og vann hann allar glímurnar með ippon og end- aði því með bronsverðlaun en fyrrgreindur Faruch Bulekular fagnaði sigri á mótinu. Ásta vann fyrstu glímu sína gegn þýskri stúlku með ippon kasti. Í næstu glímu varð hún hins vegar að sætta sig við að tapa á stigum eftir harða og mikla baráttu. Með sigri hefði Ásta komist í úrslitaglímuna en hún keppti þess í stað um bronsverðlaunin sem hún tapaði. gummih@mbl.is Sveinbjörn fékk brons Sveinbjörn Lura Búlgarinn Dimitar Berbatov fór illa með gömlu félaga sína í Tottenham þegar Fulham fagnaði 1:0-sigri á White Hart Lane í gær. Berbatov skoraði eina mark leiksins og Totten- ham varð að sætta sig við ann- að tapið í röð í deildinni. Búlgarinn snjalli hefur þar með skorað þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum með Fulham og hann skoraði sitt fyrsta mark á White Hart Lane frá því hann yfirgaf Tottenham árið 2008. Berbatov, sem skoraði 46 mörk á tveim- ur tímabilum með Tottenham, tryggði þar með Fulham fyrsta sigurinn á White Hart Lane í 10 ár. Gylfi Þór Sigurðsson var í liði Tottenham en var skipt út af á 63. mínútu. gummih@mbl.is Berbatov hetja á White Hart Lane Dimitar Berbatov Frank Lampard skoraði sitt 200. mark fyrir Chelsea þegar hann skoraði fyrra markið í 2:0-sigri liðsins gegn West Ham í gær og með honum komst Chelsea upp fyrir Tott- enham í þriðja sæti deild- arinnar. Lampard, sem var með fyrirliðabandið, lék í gær 595. leik í búningi Chelsea og hann er nú tveimur mörkum frá því að jafna markamet Bobbys Tamblings sem skoraði 202 mörk fyrir Lundúnaliðið. Lampard hefur skorað 12 mörk í deildinnni á leiktíðinni en hann gekk í raðir Chelsea frá West Ham fyrir 12 árum og greiddi Chelsea 11 milljónir punda fyrir miðjumanninn snjalla. gummih@mbl.is Lampard með sitt 200. mark Frank Lampard Kimi Räikkönen hjá Lotus vann sigur í ástralska kappakstr- inum, þökk sé sérdeilis vel- heppnaðri herfræði. Annar varð Fernando Alonso á Ferrari og þriðji Sebastian Vettel á Red Bull. Ólíkt helstu keppinaut- unum kaus Räikkönen að beita tveggja stoppa keppnisáætlun meðan hinir völdu þrjú dekkj- astopp. Með góðum akstri, sókn á réttu augnabliki og dekkja- vernd þess á milli náði hann að taka sitt fyrra stopp miklu seinna en aðrir og ná forystu. Lagði Räikkö- nen grunninn að sigrinum í fyrstu aksturslotu og vann verðskuldað, sinn 20. sigur á ferlinum, og ann- an sigurinn frá því hann sneri aftur til keppni í formúlu-1 eftir tvö ár í rallkappakstri. sport@mbl.is Räikkönen vann sinn 20. sigur Kimi Räikkönen Rósa Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.