Morgunblaðið - 18.03.2013, Page 8

Morgunblaðið - 18.03.2013, Page 8
8 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. MARS 2013 ZjaldanermálzhátturíNizzaeggi Litríktábragðið. facebook.com/noisirius B ra nd en bu rg Alheimzfrumzýning KA tryggði sér í gær sæti í úr- slitum um Ís- landsmeist- aratitilinn í blaki karla þeg- ar liðið hafði betur á móti Stjörnunni í Ás- garði. KA-menn höfðu betur í hörkuleik, 3:2 en hrinurnar fóru 25:19, 13:25, 25:21, 23:25 og 9:15. Stjörnumenn voru ansi nálægt því að fara með sigur af hólmi en þeir voru 23:20 yfir í fjórðu hrinunni en KA- menn áttu góðan endasprett og lönduðu sigri. Róbert Hlöðvers- son var stigahæstur hjá Stjörn- unni með 31 stig en hjá KA var Piotr Kempisty atkvæðamestur með 30 stig. KA mætir HK í úrslitum en úr- slitin í Íslandsmótinu hefst í vik- unni eftir páska en þar þarf að vinna 3 leiki til að tryggja sér tit- ilinn. Fyrsti leikurinn verður á heimavelli deildarmeistaranna í HK í Fagralundi í Kópavogi. gummih@mbl.is KA mætir HK í úrslitum í blaki karla Róbert Hlöðversson Landsliðsmenn- irnir Ólafur Bjarki Ragn- arsson og Ernir Hrafn Arn- arsson hafa framlengt samn- inga sína við þýska hand- knattleiksliðið Emsdetten um tvö ár. Það var tilkynnt eftir sigurleik liðsins á móti Friesenheim á laugardags- kvöldið. Emsdetten vann 11 marka sigur, 30:19, þar sem Ólaf- ur Bjarki var markahæstur sinna manna með 6 mörk en Ernir Hrafn skoraði 1. Árni Þór Sig- tryggsson var markahæstur í liði Friesenheim með 8 mörk. Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Emsdetten spili í A- deildinni á næstu leiktíð en liðið er með með fjögurra stiga for- skot á toppi deildarinnar og er 11 stigum á undan liðinu í fjórða sæti en þrjú efstu liðin vinna sér sæti í A-deildinni. Eins og Morgunblaðið greindi frá á laugardaginn ræddu for- ráðamenn Lemgo við Ólaf en hann sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann vildi sýna Ems- detten traust og bíða eftir samn- ingstilboði sem hann tók svo eftir leikinn við Friesenheim. gummih@mbl.is Ólafur og Ern- ir sömdu við Emsdetten Ólafur Bjarki Ragnarsson Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir hafnaði í 7. sæti af 14 keppendum á vetrarkastmóti Frjálsíþrótta- sambands Evrópu sem fram fór í Castellón á Spáni um helgina. Ásdís kastaði lengst 57,63 metra í sjötta og síðasta kasti og hafnaði í neðsta sæti A-hópsins á mótinu. Ís- landsmet Ásdísar er 62,77 metrar sem hún setti á Ól- ympíuleikunum á síðasta ári. Heimsmeistarinn Mariya Abakumova frá Rússlandi vann mótið með kasti upp á 69,34 metra, Evr- ópumeistarinn Vira Rebryk frá Finnlandi varð önnur með 63,42 metra kast og Þjóðverjinn Linda Stahl, bronsverðlaunahafi frá síðustu Ólympíuleikum, varð þriðja en hún kastaði 61,87 metra. Ásdíd gerði ógilt í fyrsta kasti sínu en hin köstin mældust: 53,73, 52,97, 55,13, 54,40 og 57,63. Ánægð með árangurinn „Ég verð að segja að ég er ánægð með þá lengd. Það er nú bara mars og ég hef verið að æfa mjög mikið,“ sagði Ásdís á Facebook síðu sinni eftir mótið sem var hennar fyrsta á árinu. gummih@mbl.is Ásdís í sjöunda sæti í Castellón  Ásdís kastaði 57,63 metra á fyrsta spjótkastmóti sínu á árinu sem fram fór á Spáni  Heimsmeistarinn sigraði Morgunblaðið/Golli Spjótkast Ásdís Hjálmsdóttir lenti í 7. sæti á sínu fyrsta móti á árinu 2013.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.