Morgunblaðið - 13.04.2013, Síða 2
Í SAFAMÝRI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Fyrsti leikur Fram og ÍBV í undan-
úrslitum N1-deildar kvenna í hand-
knattleik í gærkvöldi var mjög kafla-
skiptur. Fram fagnaði naumum sigri,
25:24, eftir að ÍBV hafði skorað fjögur
síðustu mörkin. „Okkur vantaði tvær
mínútur í viðbót til þess að vinna leik-
inn,“ sagði hin þrautreynda Ingibjörg
Jónsdóttir úr liði ÍBV með bros á vör
eftir að flautað hafði verið til leiks-
loka.
Ingibjörg og félagar byrjuðu leik-
inn af miklum krafti og voru með
fimm marka forskot eftir 11 mínútur,
8:3. Hver sóknin á fætur annarri skil-
aði marki auk þess sem Florentina
Stanciu varði vel í marki ÍBV. Fram
breytti um vörn, fór í 3/3 og mætti
Eyjaliðinu framar. Það sló öll vopn úr
höndum ÍBV-liðsins sem sá forskot
sitt smátt og smátt verða að engu.
Fram komst yfir, 12:11, þegar þrjár
mínútur voru eftir af hálfleiknum og
að honum loknum var staðan jöfn,
13:13.
Fram-liðið hélt áfram fullum dampi
fyrsta stundarfjórðunginn í síðari
hálfleik. Birna Berg Haraldsdóttir fór
á kostum í sóknarleiknum. ÍBV átti
áfram í erfiðleikum með sóknarleik
sinn og segja má að liðið hafi verið
eins og höfuðlaus her í sókninni. Fram
náði mest fimm marka forskoti, 22:17.
Síðustu tíu mínúturnar voru Eyjaliðs-
ins og engu mátti muna að það jafnaði
metin.
„Við vorum í erfiðleikum meira og
minna allan leikinn,“ sagði Halldór
Jóhann Sigfússon, þjálfari Fram. „Við
náðum nokkrum góðum köflum bæði
þegar við náðum að jafna metin í fyrri
hálfleik og eins framan af síðari hálf-
leik. Þá náðum við góðri forystu en
síðan dettum við of mikið niður þess á
milli. Það vantaði skynsemi og
grimmd í þetta hjá okkur á köflum.
Það er það sem ég er óánægðastur
með. En þetta var sigur og hann
skipti mestu máli þegar upp er stað-
ið,“ sagði Halldór ennfremur.
Fyllum íþróttahúsið í Eyjum
„Við misstum dampinn eftir góða
byrjun,“ sagði Ingibjörg Jónsdóttir,
leikmaður ÍBV. „Þetta var spennandi
og skemmtilegur leikur, góð auglýs-
ing fyrir kvennahandboltann. Næsti
leikur verður í Eyjum á sunnudaginn
og ég get lofað því að við munum fylla
íþróttahúsið heima í Eyjum. Við finn-
um að við getum farið alla leið og
þekkjum það að vera litla liðið. Við
gefumst ekki upp,“ sagði Ingibjörg
ákveðin.
Alltof kaflaskipt
Fram vann nauman sigur á ÍBV í Safamýri, 25:24
ÍBV gerði síðustu fjögur mörkin og var nærri því að jafna
Morgunblaðið/Golli
Duglegur Justin Shouse var í miklum ham seinni hluta leiksins í Ásgarði í gærkvöld og fer hér framhjá Hafþóri Inga Gunnarssyni.
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. APRÍL 2013
Lengjubikar karla
A-DEILD, 2. riðill:
Völsungur – KA ....................................... 1:1
Hafþór Mar Aðalgeirsson 30. – Davíð Rún-
ar Bjarnason 76.
Valur – Selfoss ......................................... 3:1
Kristinn Freyr Sigurðsson 49., 60., Björg-
ólfur Takefusa 31.(víti) – Joseph David
Yoffe 82. Rautt spjald: Markús Árni Vern-
harðsson (Selfossi) 66.
Víkingur R. – Fram ................................. 0:3
Almarr Ormarsson 10., 90., Viktor Bjarki
Arnarsson 25.
Staðan:
Valur 7 6 0 1 21:9 18
Breiðablik 7 5 1 1 19:8 16
ÍA 7 3 2 2 18:13 11
Fram 7 3 1 3 13:9 10
Víkingur R. 7 3 0 4 18:17 9
Selfoss 6 2 0 4 9:16 6
KA 7 1 2 4 7:14 5
Völsungur 6 0 2 4 3:22 2
Breiðablik, Valur og ÍA fara í 8-liða úr-
slitin.
B-DEILD, 2. riðill:
ÍR – Reynir S............................................ 3:0
ÍR 12 stig, KV 6, Reynir S. 6, Grótta 6,
Kári 0, Ægir 0.
B-DEILD, 3. riðill:
Dalvík/Reynir – Leiknir F....................... 1:4
Leiknir F. 7 stig, Magni 6, Fjarðabyggð
6, Höttur 4, Dalvík/Reynir 4, Huginn/Ein-
herji 1.
Holland
Venlo – Zwolle ......................................... 0:2
Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Zwolle.
Belgía
Zulte-Waregem – Standard Liege ........ 3:4
Ólafur Ingi Skúlason kom inná hjá
Zulte-Waregem á 66. mínútu.
Anderlecht 35, Zulte-Waregem 34,
Standard Liege 32, Genk 32, Club Brugge
30, Lokeren 27.
Danmörk
Silkeborg – AGF ...................................... 3:1
Bjarni Þór Viðarsson var ekki í leik-
mannahópi Silkeborg.
Orri S. Ómarsson og Oliver Sigurjóns-
son voru ekki í leikmannahópi AGF.
FC Köbenhavn 58, Nordsjælland 51,
Randers 44, AaB 38, OB 37, AGF 33, Esb-
jerg 32, Midtjylland 31, Bröndby 27, Sön-
derjyskE 27, Horsens 27, Silkeborg 27.
B-deild:
Hjörring – Vejle-Kolding ....................... 1:0
Davíð Þór Viðarsson lék fyrstu 80 mín-
úturnar með Vejle-Kolding sem er í 2. sæti
með 44 stig, jafnmörg og Viborg og Vest-
sjælland sem eru í 1. og 3. sæti.
Noregur
Rosenborg – Start ................................... 1:1
Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn
með Start en Guðmundur Kristjánsson fór
af velli á 72. mínútu.
Efstu lið: Rosenborg 10 stig, Aalesund 9,
Viking 6, Brann 6, Start 5, Tromsö 5,
Sarpsborg 5, Lilleström 4.
Svíþjóð
Brommapojkarna – Norrköping ........... 1:0
Gunnar Heiðar Þorvaldsson lék allan
leikinn með Norrköping.
Ítalía
B-deild:
Cesena – Verona...................................... 0:0
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með
Verona. Efstu lið: Sassuolo 73 stig, Verona
68, Livorno 67, Empoli 60, Varese 52.
Austurríki
B-deild:
Kapfenberg – Austria Lustenau............ 2:1
Helgi Kolviðsson þjálfar Austria sem er í
öðru sæti deildarinnar.
Þýskaland
Freiburg – Hannover............................... 3:1
Spánn
Real Betis – Sevilla .................................. 3:3
England
B-deild:
Leicester – Birmingham.......................... 2:2
KNATTSPYRNA
Þýskaland
Wetzlar – Göppingen .......................... 30:27
Fannar Þór Friðgeirsson skoraði 2 mörk
fyrir Wetzlar sem fór uppfyrir Göppingen
og Lemgo í 8. sæti deildarinnar.
B-deild:
Bittenfeld – Emsdetten....................... 31:27
Ernir Hrafn Arnarson skoraði 1 mark
fyrir Emsdetten en Ólafur Bjarki Ragn-
arsson lék ekki með. Lið þeirra er með 44
stig á toppnum, Bergischer 40, Eisenach
36, Nordhorn 33 og Bietigheim 33.
Frakkland
Tremblay – Nantes.............................. 24:25
Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki fyr-
ir Nantes sem er í 4. sæti deildarinnar.
HANDBOLTI
Framhús, undanúrslit kvenna, 1. leik-
ur, föstudag 12. apríl 2013.
Gangur leiksins: 0:1, 1:4, 2:6, 3:8,
6:10, 10:10, 12:11, 13:12, 13:13, 15:13,
18:15, 19:17, 22:17, 22:19, 24:20,
25:21, 25:24.
Mörk Fram: Birna Berg Haralds-
dóttir 7, Elísabet Gunnarsdóttir 6/3,
Stella Sigurðardóttir 4, Marthe Sör-
dal 4, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2,
Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 1,
Sunna Jónsdóttir 1.
Varin skot: Hildur Gunnarsdóttir
13/1 (þaraf 3 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk ÍBV: Drífa Þorvaldsdóttir 7,
Simone Vintale 5/1, Grigore Ggor-
gata 4, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4,
Ester Óskarsdóttir 3, Sandra Gísla-
dóttir 1.
Varin skot: Florentina Stanciu 19
(þaraf 8 til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Jón Karl Björnsson og
Þorleifur Árni Björnsson, meinlausir,
máttu taka fastar á málum.
Áhorfendur: 150.
Staðan er 1:0 fyrir Fram.
Fram – ÍBV 25:24