Morgunblaðið - 15.04.2013, Side 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013
Ívar Ásgríms-son verður
áfram við stjórn-
völinn sem þjálf-
ari karlaliðs
Hauka í körfu-
knattleik en und-
ir hans stjórn
tryggðu Hauk-
arnir sér sæti í
úrvalsdeildinni. Ívar tók við þjálfun
liðsins í desember eftir að Pétri
Guðmundssyni var sagt upp störfum
og undir stjórn Ívars tapaði Hafn-
arfjarðarliðið ekki leik. Þá hafa
Haukarnir samið við Bandaríkja-
manninn Terrence Watson um að
spila áfram með liðinu en hann kom
til liðsins í byrjun ársins.
Haile Gebrselassie frá Eþíópíuhrósaði sigri í hálfu maraþoni í
Vínarmaraþoninu sem þreytt var í
Austurríki um helgina. Þetta var
þriðji sigur Gebrselassie í þessu
hlaupi en hann kom í mark á 1.01,14
mínútum. Gebrselassie, sem verður
40 ára gamall í vikunni, er tvöfaldur
ólympíumeistari í 10.000 m. hlaupi.
Hjónin Guðmundur Helgi Chris-tensen og Jórunn Harð-
ardóttir urðu Íslandsmeistarar í
enskum riffli á Íslandsmeist-
aramótinu sem fór fram í skotsal
Skotfélags Kópavogs í Digranesi á
laugardaginn. Keppnin í Final var
hörkuspennandi og þegar eitt skot
var eftir var Guðmundur Helgi í
öðru sæti á eftir nafna sínum, Guð-
mundi Valdimarssyni frá Ísafirði.
Guðmundi Helga tókst að skjótast
fram fyrir nafna sinn með því að ná
hæsta mögulega skori í síðasta
skotinu, 10.9 stigum, og munaði þá
0.6 stigum á þeim nöfnunum.
Kobe Bryant,körfuknatt-
leiksmaðurinn
frábæri í liði Los
Angeles Lakers,
verður frá æfing-
um og keppni
næstu 6-9 mán-
uðina en það fór
eins og flestir ótt-
uðust þegar kappinn fór meiddur af
velli undir lok leiksins í leiknum
gegn Golden State. Í ljós kom að
Kobe sleit hásin. Gary Vitti þjálfari
Lakers sagði að Kobe stefndi á end-
urkomu þegar flautað verður til
leiks á næsta tímabili í október.
Handknattleiksþjálfarinn AlfreðFinnsson stýrði liði sínu Volda
upp í 1. deild kvenna í Noregi en það
var hans síðasta verk fyrir félagið
því hann hefur samið við úrvals-
deildarfélagið Storhamar um að
taka við því í sumar. Við starfi Al-
freðs hjá Volda tekur Kristinn Guð-
mundsson.
Fólk sport@mbl.is
Í ZAGREB
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í íshokkí
byrjaði ekki vel þegar A-riðill 2.
deildar heimsmeistaramótsins hófst
í Zagreb í Króatíu í gær. Ísland tap-
aði fyrsta leiknum á móti Belgíu 1:4
í Spartova-höllinni og við blasir bar-
átta um að halda sæti sínu í þessum
sterkari riðli deildarinnar.
Sigurvegari riðilsins kemst upp í
B-riðil 1. deildar en neðsta liðið fell-
ur niður í B-riðil 2. deildar. Lið
Belgíu kom upp úr þeim riðli og liðið
er öflugt. Ef íslenska liðið hefði spil-
að af eðlilegri getu þá hefði leik-
urinn sjálfsagt getað orðið jafn. Sú
varð þó ekki raunin því íslenska liðið
var ryðgað og gerði fjölmörg mistök
bæði í vörn og sókn sem gerðu
útslagið.
Nú kann kannski einhver að
staldra við og velta því fyrir sér af
hverju landslið virkar ryðgað á
blaðamann. Málið er að landsliðið í
íshokkí kemur aðeins saman einu
sinni á ári og þá til að spila á HM
sem er deildaskipt. Landsliðið hefur
ekki langan tíma til að stilla sig
saman en margir landsliðsmann-
anna spila á Norðurlöndunum. Að
þessu sinni hittist hópurinn heima á
Íslandi og fékk þar af leiðandi ekki
æfingaleiki á móti sterkum and-
stæðingum eins og undanfarin ár
þegar farið var til Svíþjóðar og
Danmerkur.
Æfingaleikina vantaði
Frammistaðan í gær sýndi glögg-
lega að liðið þarf á slíkum leikjum að
halda til að finna taktinn. Stjórn
ÍHÍ þarf að finna leiðir til að fjár-
magna slíkar æfingaferðir fyrir HM
ef krafan er sú að liðið haldi sér í
þessum gæðaflokki. Ekki er gæfu-
legt að mæta í erfiðan sex liða riðil
og komast ekki í gang fyrr en
kannski í þriðja leik. Íslenska liðið
mætir á morgun Ástralíu kl. 11 að
íslenskum tíma en lið Ástralíu féll
niður úr 1. deild og tapaði í gær fyr-
ir Króatíu 3:1. Íslendingar verða
litla liðið í þeim leik en það jákvæða
í stöðunni er þó það að eftir gærdag-
inn þá halda Ástralar að íslenska lið-
ið sé mun slakara en það raunveru-
lega er. Á morgun er smá möguleiki
á því að koma á óvart og stela sigri
en þá þarf liðið að fækka mistök-
unum verulega.
Úrslitaleikur á móti Serbíu?
Ef meta á stöðuna kalt eftir
fyrsta keppnisdaginn þá blasir við
íslenska liðinu barátta um að halda
sæti sínu í riðlinum. Króatía er
sterkasta liðið í riðlinum og að auki
á heimavelli. Ísland á því litla mögu-
leika í þeim leik og spænska liðið
hefur hingað til hentað íslenska lið-
inu illa.
Sú staða gæti því hæglega komið
upp að Ísland þurfi að vinna Serbíu í
síðasta leiknum á laugardaginn til
þess að halda sæti sínu í riðlinum.
Íslendingar unnu leikinn við Serba
5:3 í Laugardalnum í fyrra og þurfa
að endurtaka leikinn hér á Balkan-
skaganum í ár. Þar er mestur mögu-
leiki á sigri eins og staðan er núna.
Vonbrigði gegn Belgíu
Ljósmynd/Kristján Maack
Allt reynt Varnarmaður Belgíu reynir allt sem hann getur til að stöðva Ólaf Hrafn Björnsson í leiknum í Spartova-höllinni í Zagreb í gær.
Fyrsti leikurinn í Króatíu tapaðist 1:4 Íslenska liðið gerði allt of mörg
mistök til að eiga möguleika Emil skoraði fyrsta mark Íslands í keppninni
Ísland - Belgía
» Belgar komust í 2:0 í fyrsta
leikhlutanum. Emil Alengård
minnkaði muninn í 2:1 á 31.
mínútu og skoraði þar með
fyrsta mark Íslands í keppninni
eftir undirbúning Jóns Bene-
dikts Gíslasonar. Belgar bættu
við mörkum í öðrum og þriðja
leikhluta.
» Ísland mætir Ástralíu klukk-
an 11 í dag að íslenskum tíma
og fylgst verður með gangi
mála á mbl.is.
Tvö Íslandsmet voru sett á lokadegi Íslands-
meistaramótsins í sundi í 50 metra laug sem
kláraðist í Laugardalslauginni í gær. Hrafn-
hildur Lúthersdóttir úr SH bætti eigið Ís-
landsmet í 100 metra bringusundi þegar hún
synti á tímanum 1:09,48.
Ingibjörg Kristín Jónsdóttir úr SH setti
nýtt Íslandsmet í 50 metra baksundi. Ingi-
björg synti á tímanum 28,99 sekúndum sem er
einum hundraðasta undir Íslandsmeti Söruh
Blake Bateman.
Í lok móts voru stóru bikararnir afhentir og
þar sópaði Hrafnhildur Lúthersdóttir að sér
viðurkenningum. Hún fékk Ásgeirsbikarinn
sem veittur er fyrir besta afrekið á Íslands-
meistaramótinu í 50 metra laug samkvæmt
stigatöflu alþjóðasundsambandsins, FINA.
Bikarinn fékk Hrafnhildur fyrir 200 metra
bringusund.
Hún fékk einnig Kolbrúnarbikarinn sem
veittur er fyrir bestan árangur kvenna á milli
Íslandsmóta og þá fékk Hrafnhildur einnig
Sigurðarbikarinn sem veittur er fyrir besta
bringusundsafrekið á Íslandsmeistaramótinu.
Jakob Jóhann Sveinsson fékk Péturs-
bikarinn sem veittur er fyrir bestan árangur
karla á milli Íslandsmóta.
Í gærkvöldi var 16 manna landsliðshópur Ís-
lands sem keppir á Smáþjóðaleikunum svo
valinn.
Landsliðshópurinn: Alexander Jóhannsson,
KR, Anton Sveinn McKee, Ægir, Aron Örn
Stefánsson, SH, Arnór Stefánsson, SH, Daníel
Hannes Pálsson, Fjölnir, Davíð Hildiberg Að-
alsteinsson, ÍRB, Hrafn Traustason, SH, Kol-
beinn Hrafnkelsson, SH, Kristinn Þór-
arinsson, Fjölnir, Bryndís Rún Hansen,
Bergen Svömmerne, Eygló Ósk Gústafsdóttir,
Ægir, Hrafnhildur Lúthersdóttir, SH, Inga
Elín Cryer, Ægir, Ingibjörg Kristín Jóns-
dóttir, SH, Jóhanna Gerða Gústafsdóttir,
Ægir, Karen Sif Vilhjálmsdóttir, SH.
16 synda í Lúxemborg
Morgunblaðið/Golli
Bikarasöfnun Hrafnhildur Lúthersdóttir setti Íslandsmet og fékk þrjá bikara í gær.