Morgunblaðið - 15.04.2013, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 15.04.2013, Qupperneq 6
BADMINTON Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Þetta er alveg ótrúlega skemmti- legt og akkúrat það sem ég ætlaði mér að gera,“ sagði Tinna Helga- dóttir sem varð tvöfaldur Íslands- meistari í badminton í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði í gær. Tinna vann öruggan sigur á Snjó- laugu Jóhannsdóttur í úrslitum ein- liðaleiks, 21:14 og 21:12, og landaði þar með sínum öðrum titli í einliða- leik, og hafði skömmu áður unnið tvenndarleikinn með Magnúsi Inga, bróður sínum. „Þetta var erfitt í úrslitunum þó að hún [Snjólaug] hafi ekki fengið mörg stig, en það má segja að þetta hafi verið frekar öruggt í gegnum mótið hjá mér því ég held ég hafi mest fengið á mig 14 stig í einni lotu,“ sagði Tinna, sem er búsett í Danmörku og leikur þar fyrir Vær- löse auk þess að vera yfirþjálfari unglingadeildar félagsins. Árangur hennar er ansi athyglis- verður í ljósi þess að á Íslandsmeist- aramótinu fyrir ári sleit hún hásin. „Ég var byrjuð að spila aftur í september þannig að það tók bara fimm mánuði að jafna sig. Ég er bú- in að vera að spila á fullu í vetur en hins vegar hætt að spila einliðaleik, nema í þessu móti. Það er þannig í Danmörku að annaðhvort spilar maður bara einliðaleik eða bæði tví- liða- og tvenndarleik eins og ég er að gera. Ég spilaði einliðaleik á einu móti og á æfingum til að undirbúa mig, en það má segja að ég hafi ver- ið að spila mig í gang bara á þessu móti. Ég vissi lítið um hvað ég gæti eða þá hinar stelpurnar, en ætlaði mér sigur,“ sagði Tinna. Hún hefur búið í Danmörku síð- ustu fimm ár og leikið með Værlöse í þrjú ár, bæði með 1. og 2. liði fé- lagsins. Þrátt fyrir meiðslin tók Tinna virkan þátt á tímabilinu sem nú er nýlokið en á því féll 1. liðið úr leik í 8-liða úrslitum úrvalsdeild- arinnar en 2. liðið hélt sæti sínu í næstefstu deild. „Ég er búin að eiga rosalega fínt tímabil þótt ég hafi verið meidd allt sumarið. Ég komst að því þegar ég sleit hásinina að ég væri ekkert tilbúin að hætta og mun halda áfram á meðan mér þykir þetta skemmti- legt,“ sagði Tinna. Hún gerði tilkall til sigurs í tví- liðaleik kvenna en liðsfélagi hennar, Erla Björg Hafsteinsdóttir, meidd- ist og þær urðu því að hætta keppni í undanúrslitum. Elín Þóra Elías- dóttir og Rakel Jóhannesdóttir unnu tvíliðaleikinn í fyrsta sinn í oddalotu, 21:13, 14:21 og 21:19. Magnús Ingi og Helgi Jóhannesson unnu tvíliðaleik karla, sjöunda árið í röð. Sleit hásin í fyrra en tók tvo titla í ár  Tinna og Magnús Ingi Helgabörn urðu bæði tvöfaldir Íslandsmeistarar Morgunblaðið/Golli Meistarar Systkinin Tinna Helgadóttir og Magnús Ingi Helgason fagna Ís- landsmeistaratitlinum í tvenndarleik í Strandgötu í gær. 6 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. APRÍL 2013 Bikarkeppnin, undanúrslit: Millwall – Wigan...................................... 0:2 Chelsea – Manchester City.................... 1:2 A-DEILD: Arsenal – Norwich .................................. 3:1 Aston Villa – Fulham.............................. 1:1 Everton – QPR ........................................ 2:0 Reading – Liverpool ............................... 0:0 Southampton – West Ham..................... 1:1 Newcastle – Sunderland......................... 0:3 Stoke – Manchester United ................... 0:2 Staðan: Man.Utd. 32 26 2 4 73:33 80 Man.City 31 19 8 4 57:27 65 Arsenal 32 17 8 7 64:35 59 Chelsea 31 17 7 7 61:33 58 Tottenham 32 17 7 8 55:40 58 Everton 32 14 13 5 51:37 55 Liverpool 33 13 11 9 59:40 50 WBA 32 13 5 14 42:43 44 Swansea 32 10 11 11 43:42 41 Fulham 32 10 10 12 44:48 40 Southampton 33 9 11 13 47:54 38 West Ham 32 10 8 14 36:45 38 Newcastle 33 10 6 17 42:59 36 Norwich 33 7 14 12 31:52 35 Sunderland 33 8 10 15 37:45 34 Stoke 33 7 13 13 28:41 34 Aston Villa 33 8 10 15 36:60 34 Wigan 31 8 7 16 37:57 31 QPR 33 4 12 17 29:54 24 Reading 33 5 9 19 36:63 24 B-DEILD: Cardiff – Nottingham Forest ............... 3:0  Aron Einar Gunnarsson lék allan tím- ann en Heiðar Helguson lék fyrri hálfleik- inn og skoraði fyrsta markið. Wolves – Huddersfield........................... 1:3  Björn Bergmann Sigurðarson lék fyrstu 79 mínúturnar fyrir Wolves enEg- gert Gunnþór Jónsson var ekki í leik- mannahópnum. Barnsley – Charlton.................................0:6 Blackburn – Derby...................................2:0 Blackpool – Burnley.................................1:0 Bristol City – Bolton................................1:2 Ipswich – Hull ...........................................1:2 Middlesbro – Brighton.............................0:2 Peterboro – Watford ................................3:2 Leeds – Sheffield W.................................2:1 Staðan: Cardiff 42 25 8 9 68:41 83 Hull 42 24 5 13 59:47 77 Watford 42 21 8 13 78:54 71 Cr.Palace 41 18 12 11 67:54 66 Brighton 42 16 17 9 59:41 65 Bolton 42 17 12 13 62:54 63 Nottingham F. 42 16 15 11 60:55 63 Leicester 42 17 10 15 62:40 61 Charlton 42 15 12 15 57:55 57 Middlesbro 42 17 4 21 57:64 55 Leeds 42 15 10 17 53:62 55 Blackpool 42 13 15 14 57:54 54 Derby 42 14 12 16 59:58 54 Burnley 42 14 12 16 57:57 54 Birmingham 42 13 15 14 59:65 54 Sheffield W. 42 15 8 19 50:59 53 Ipswich 42 14 11 17 41:57 53 Millwall 40 14 10 16 49:55 52 Huddersfield 42 13 12 17 45:69 51 Blackburn 41 12 14 15 50:55 50 Peterboro 42 14 8 20 62:69 50 Barnsley 42 13 10 19 51:67 49 Wolves 42 13 9 20 52:63 48 Bristol City 42 11 7 24 57:76 40 WSL-deildin Chelsea – Birmingham .......................... 1:1  Edda Garðarsdóttir lék allan tímann fyrir Chelsea en hún bar fyrirliðabandið en Ólína G. Viðarsdóttir lék fyrri hálfleik- inn. Lincoln – Liverpool ............................... 0:1  Katrín Ómarsdóttir lék allan tímann með Liverpool. ENGLAND Ath.Bilbao – Real Madrid.........................0:3 R.Zaragoza – Barcelona ...........................0:3 Atl.Madrid – Granada...............................5:0 Rayo Vallecano – R.Sociedad...................0:2 Málaga – Osasuna .....................................1:0 Espanyol – Valencia..................................3:3 Levante – Dep. La Coruna.......................0:4 R.Valladolid – Getafe ................................2:1 Staða efstu og neðstu liða: Barcelona 31 26 3 2 98:33 81 Real Madrid 31 21 5 5 80:29 68 Atl.Madrid 31 20 5 6 56:25 65 R.Sociedad 31 15 9 7 57:39 54 Málaga 31 14 8 9 44:32 50 Valencia 31 14 8 9 47:45 50 Real Betis 31 14 6 11 47:46 48 Getafe 31 12 8 11 39:46 44 ––––––––––––––––––––––––––––––––––– Osasuna 31 8 7 16 26:36 31 Dep. La Coruna 31 7 8 16 42:63 29 Granada 31 7 7 17 27:50 28 R.Zaragoza 31 7 6 18 28:49 27 Celta 30 6 6 18 29:45 24 Mallorca 30 6 6 18 32:63 24 SPÁNN Pescara – Siena........................................ 2:3  Birkir Bjarnason tók út leikbann. AC Milan – Napoli.....................................1:1 Cagliari – Inter Mílanó.............................2:0 Chievo – Catania .......................................0:0 Genoa – Sampdoria ...................................1:1 Parma – Udinese.......................................0:3 Torino – Roma ...........................................1:2 Palermo – Bologna....................................1:1 Atalanta – Fiorentina ...............................0:2 Staða efstu og neðstu liða: Juventus 31 22 5 4 61:20 71 Napoli 32 18 9 5 58:30 63 AC Milan 32 17 8 7 56:35 59 Fiorentina 32 16 7 9 58:39 55 Roma 32 15 6 11 63:53 51 Lazio 31 15 6 10 40:37 51 ––––––––––––––––––––––––––––––––––– Torino 32 8 13 11 40:45 36 Chievo 32 10 6 16 32:48 36 Siena 32 9 9 14 34:44 30 Palermo 32 5 13 14 29:45 28 Genoa 32 6 10 16 32:50 28 Pescara 32 6 3 23 24:66 21 ÍTALÍA Augsburg – E.Frankfurt..........................2:0 Stuttgart – M’gladbach ............................2:0 Schalke – Leverkusen...............................2:2 Bayern M. – Nürnberg .............................4:0 F.Düsseldorf – W.Bremen .......................2:2 Greuther F. – Dortmund..........................1:6 Mainz – Hamburger..................................1:2 Wolfsburg – Hoffenheim ..........................2:2 Staða efstu og neðstu liða: Bayern M. 29 25 3 1 83:13 78 Dortmund 29 17 7 5 72:35 58 Leverkusen 29 14 8 7 53:38 50 Schalke 29 13 7 9 50:45 46 Freiburg 29 12 9 8 39:34 45 E.Frankfurt 29 12 6 11 42:42 42 ––––––––––––––––––––––––––––––––––– F.Düsseldorf 29 7 9 13 35:45 30 Augsburg 29 6 9 14 27:44 27 Hoffenheim 29 6 6 17 35:54 24 Greuther F. 29 2 9 18 19:52 15 B-DEILD: Energie Cottbus – Bochum .................... 0:2  Hólmar Örn Eyjólfsson gat ekki leikið með Bochum vegna meiðsla. ÞÝSKALAND PSV Eindhoven – Ajax ........................... 2:6  Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 86 mín- úturnar og skoraði fyrsta mark Ajax. AZ Alkmaar – Utrecht............................ 6:0  Jóhann Berg Guðmundsson lék síðasta hálftímann fyrir AZ. Aron Jóhannsson kom inn á á 64. mínútu og skoraði 6. markið. Heerenveen – Willem II .......................... 3:2  Alfreð Finnbogason lék allan tímann fyr- ir Heerenveen og skoraði 2 mörk. Breda – NEC Nijmegen .......................... 2:0  Guðlaugur Victor Pálsson lék allan tím- ann fyrir NEC Nijmegen. Staða efstu liða: Ajax 30 19 9 2 73:30 66 Vitesse 30 18 7 5 63:35 61 PSV Eindhoven 30 19 3 8 90:35 60 Feyenoord 30 18 6 6 55:36 60 Twente 30 15 9 6 50:27 54 Utrecht 30 15 6 9 43:38 51 Heerenveen 30 11 8 11 47:53 41 Groningen 30 11 6 13 32:45 39 NEC Nijmegen 30 10 7 13 38:53 37 Den Haag 30 8 12 10 43:56 36 HOLLAND Keflvíkingarnir Karel Berg- mann Gunnarsson, Krist- mundur Gíslason og Helgi Rafn Guðmundsson voru allir á meðal þátttakenda á mótinu Millennium Open í tækvondo en keppt var í Vrsac í Serbíu. Helgi náði bestum árangri Íslendinganna. Hann vann 4:2 sigur í undanúrslitum en hann mætti sterkum serbneskum landsliðsmanni í úrslitum og mátti sætta sig við 16:4 tap. Kristmundur náði í bronsverðlaun í -87 kg flokki. Kristmundur vann heimamann 3:0 í fyrsta bardaga en tapaði svo í undanúrslitum og fékk brons. Karel keppti í -63 kg flokki unglinga og tapaði fyrir sterkum heimamanni í fyrstu umferð. sindris@mbl.is Silfur og brons í Vrsac í Serbíu Helgi Rafn Guðmundsson Anna Hulda Ólafsdóttir bætti þrjú Íslandsmet í -63 kg flokki á Íslandsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum. Anna Hulda setti met þegar hún snaraði 68 kg, og einnig þegar hún jafnhattaði 87 kg, og þar með þriðja metið með því að lyfta 155 kg samanlagt. Sigurður B. Einarsson náði viðlíka árangri í -94 kg flokki karla en hann snaraði 119 kg og jafnhattaði 145 kg, og lyfti því samanlagt 264 kg. Katrín Davíðsdóttir setti tvö met í -69 kg flokki þegar hún snaraði 76 kg og náði samanlagt 160 kg. Loks setti Lilja L. Helgadóttir tvö met í flokki 17 ára og yngri, í -75 kg flokki, með því að snara 69 kg og ná samanlagt 153 kg. sindris@mbl.is Þrjú met hjá Önnu og Sigurði Anna Hulda Ólafsdóttir Heiðar Helguson kom töluvert við sögu í liði Cardiff þegar liðið lagði Nottingham Forest, 3.0, í ensku B-deildinni. Heiðar skoraði fyrsta markið með skalla og einn leikmaður For- est var síðan rekinn af velli undir lok fyrri hálfleiksins fyr- ir að gefa Heiðari olnbogaskot. Heiðar fór af velli eftir fyrri hálfleikinn vegna meiðsla en Aron Einar lék allan tímann. „Heiðar tognaði í kálfanum en hann hefur gert virkilega góða hluti með liðinu frá því hann kom til okkar. Hann er einn hugrakkasti leikmað- urinn sem ég hef unnið með og er frábær at- vinnumaður,“ sagði Malky Mackay, stjóri Car- diff, eftir leikinn. gummih@mbl.is Stjóri Cardiff City hrósaði Heiðari Heiðar Helguson Hönefoss – Haugesund ........................... 0:1  Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Kristján Örn Sigurðsson léku allan tímann fyrir Hönefoss.  Andrés Már Jóhannesson var ekki í leik- mannahópi Haugasund. Lilleström – Brann .................................. 2:0  Pálmi Rafn Pálmason lék allan tímann fyrir Lilleström.  Birkir Már Sævarsson lék allan tímann fyrir Brann. Tromsö – Sandnes Ulf ............................ 0:1  Steinþór Freyr Þorsteinsson skoraði sigurmark Sandnes en honum var skipt út- af á 89. mínútu. Sarpsborg – Aalesund............................. 0:2  Guðmundur Þórarinsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson léku allan tímann fyrir Sarpsborg en Ásgeir Börkur Ásgeirsson sat á bekknum. Haraldur Björnsson er frá keppni vegna meiðsla. Viking – Odd Grenland........................... 1:0  Indriði Sigurðsson fyrirliði lék allan tím- ann fyrir Viking en Jón Daði Böðvarsson síðustu 15 mínúturnar.  Álasund 12, Rosenborg 10, Viking 8, Strömsgodset 7, Lilleström 7, Brann 6, Start 5, Tromsö 5, Sarpsborg 5, Haugasund 4, Sandnes 4, Sogndal 4, Odd 3, Hönefoss 3, Vålerenga 3, Molde 0. NOREGUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.