Morgunblaðið - 19.04.2013, Side 4

Morgunblaðið - 19.04.2013, Side 4
Skráning og nánari upplýsingar á hjoladivinnuna.is Keppt er um: • Flesta þátttökudaga - vinnustaðakeppni • Flesta kílómetra - liðakeppni ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS KYNNIR: Samstarfsaðilar Aðalstyrktaraðili Vertu með! Vinnustaðakeppni 8.-28. maí Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kópavogur Skugginn fylgir hjólreiðamanninum þegar sólin skín. „Mér nægir að hjóla í eina til eina og hálfa klukkstund. Fara svo stundum í lengri ferðir þá með eitthvert markmið í huga,“ segir Árni Gunnarsson. Þ að er kvöl fyrir hvern ungling að vera of feitur. Þeim einstaklingum þarf að liðsinna með jákvæðri hvatningu. En svo er það fullorðna fólkið, sem á að vera komið til vits og ára og þekkja hættur offitu og hreyfingarleysis,“ segir Árni Gunnarsson, fv. alþing- ismaður. „Það er nánast óskiljanlegt þeg- ar fólk gengur á hönd óhollu mat- aræði og hreyfingarleysi við tölvur og sjónvarp. Vonandi tekur ný kynslóð við, sem virðir líkama sinn og lætur hann ekki afskræmast vegna rangra lífshátta. Og sú kyn- slóð er á leiðinni, að minnsta kosti eru margir af henni í hópi hjól- reiðafólks.“ Gæðingur úr Hekluferð Um dagana hefur Árni víða látið að sér kveða. Var fréttamaður, sat á þingi fyrir Alþýðuflokkinn og var, á síðasta skeiði starfsævinnar, framkvæmdastjóri Heilsustofn- unar Náttúrulækningarfélags Ís- lands í Hveragerði. Þegar svo til æskunnar er litið segir Árni að hjólreiðar komi fljótt upp í hug- ann. „Reiðhjól voru dýrgripir, eink- um barnahjól. Þegar ég var kom- inn á hjólaaldurinn var ekki á allra færi að eignast slíka gersemi. Örn- inn var verslun og verkstæði á Spítalastígnum, stutt frá heimili mínu fyrir 10 ára aldurinn. Þar gaf að líta ýmis fögur hjól, en ég eign- aðist mitt fyrsta 8 eða 9 ára gam- all,“ segir Árni sem minnist þess þegar faðir hans, sem var far- arstjóri í svonefndum Hekluferð- um til Leith í Skotlandi keypti í einni ferðinni gæðing fyrir soninn. „Svo ýtti pabbi mér af stað. Hjólið var ávallt tekið inn á kvöld- in og þess vandlega gætt. Nú liggja hjól eins og hráviði um allt og enginn virðist ásælast þau, nema kannski þau vönduðustu og dýrustu. Sum eru reyndar úr lé- legu efni, ryðga fljótt og verða lít- ið spennandi.“ Út á Nes og inn í Elliðaárdal Snemma á þessu ári flutti Árni með fjölskyldu sinni frá Selfossi, þar sem hann hafði búið und- anfarin ár. Er nú kominn í Kópa- vog. Báða staðina segir hann henta vel til hjólreiða. „Á Selfossi eru góðar hjóla- og göngubrautir. Þar hjólaði ég yf- irleitt í Hellisskógi, sem er útivistarparadís, skammt fyrir of- an bæinn. Annars hefur mér kom- ið nokkuð á óvart hvað hjóla- og göngubrautir liggja víða í Kópa- vogi og tengingar við önnur sveit- arfélög eru frábærar. Heiman frá mér get ég hjólað út á Seltjarn- arnes, inn í Elliðaárdal og líklega til Hafnarfjarðar, þótt ekki hafi ég farið lengra en út á Arnarnes. Ég á eftir að kanna stór svæði,“ segir Árni sem nýtur að hjóla meðfram sjónum, t.d. í Kópavogi og á Kárs- nesi og út með Skerjafirði. Fylgjast með og tengjast náttúrunni „Hluti af ánægjunni við að hjóla, er að geta fylgst með og tengjast náttúrunni, horfa á fuglalífið og fylgjast með gróðrinum. Ég hef lítinn áhuga á að komast sem lengst á sem skemmstum tíma,“ segir Árni. „Mér nægir að hjóla í eina til eina og hálfa klukkustund. Fara svo stundum í lengri ferðir þá með eitthvert markmið í huga. En það er fyrst og fremst útiver- an, hreyfingin og slökunin sem skipta mig máli. Að mínu mati eru hjólreiðar langbesta líkamsræktin. Eru líka hollar fyrir sálina.“ Árni fer sinna ferða á léttu og meðfærilegu hjóli, með góðum hemlum og sex gírum. „Framboð á nýjum og stöðugt fullkomnari reið- hjólum er mikið. Sama gildir um reiðhjólafatnað. Verð á reiðhjólum getur verið ævintýralega hátt, en þá er fólk kannski að kaupa tækni sem það hefur ekki beinlínis þörf fyrir. En hver hefur sinn smekk. Aðalatriðið er að koma sér af stað.“ Útrýmir ekki einkabílnum Reiðhjólið verður seint til að út- rýma einkabílnum á Íslandi, segir Árni, þótt ekki sé nema veðrátt- unnar vegna. Íslendingar geti hins vegar ferðast mun meira á hjóli en nú er raunin. Í dag sé talið að um 4% Íslendinga fari á hjóli til vinnu. Í Danmörku sé hlutfallið margfalt hærra. Þá megi nefna Kína og Indland þar sem reiðhjólið er beinlínis mikilvægasta farartækið. „Með vaxandi hagsæld í þessum löndum eignast æ fleiri bíla. Með því eykst loftmengun. En reið- hjólið mengar ekki. Það hefur einnig verið notað við margvísleg verkefni. Norður-Víetnamar og Víet-Cong sigruðu Bandaríkja- menn, mesta herveldi heims þar sem þeir fóru um landið í stríðinu á hjóli. Fluttu vopn og varning í skjóli nætur eða eftir jarðgöngum til Suður-Víetnams og höfðu fá önnur tæki til þeirra verka. Nið- urstaðan af þessu öllu er því ein- föld, það er reiðhjól eru hern- aðarlega mikilvæg.“ sbs@mbl.is Reiðhjól eru hernaðarlega mikilvæg Dýrgripir æsku Árna Gunnarssonar voru reiðhjól úr Erninum. Hreyfing er mikilvæg og þar eru hjólreiðarnar sterkur leikur. Á hjóli úr Kópavogi. Útivera, hreyfing og slökun skipta máli. Tengjast náttúru og gott fyrir sál. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Víetnam Í austurlöndum fjær eru hjólreiðar mikilvægur samgöngu- máti, í stríði sem friði. ’Annars hefur mérkomið nokkuð áóvart hvað hjóla- oggöngubrautir liggja víða í Kópavogi og tengingar við önnur sveitarfélög eru frábærar. Heiman frá mér get ég hjólað út á Seltjarnarnes, inn í Elliðaárdal og líklega til Hafnarfjarðar. 4 | MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.