Morgunblaðið - 19.04.2013, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ | 5
H
jólasöfnunin okkar er
liður í því að gefa börn-
um sem ekki eiga hjól
tækifæri á að eignast
slíkt og þar með efla
heilbrigði og þroska þeirra. Við
hvetjum alla sem luma á hjólum af
öllum stærðum og gerðum í geymsl-
unni að gefa þeim
framhaldslíf og
gleðja barn í leið-
inni,“ segir Sig-
ríður Guðlaugs-
dóttir,
verkefnisstjóri
hjá Barnaheillum
– Save the Child-
ren á Íslandi.
Um komandi
mánaðamót hefst
hjólasöfnun sam-
takanna og hjól-
reiðakeppninnar WOW Cyclothon.
Það er fyrsta alþjóðlega hjólreiða-
keppnin á Íslandi. Hjólað er með
boðsveitarformi í fjögurra til tíu
manna liðum hringinn í kringum
landið á 72 klukkustundum dagana
19.-22. júní, þegar miðnætursólar
nýtur gjarnan við.
Heilbrigði og mikilvæg hreyfing
Nú er runnið upp annað árið sem
efnt er til reiðhjólasöfnunar sem er
samstarfsverkefni Barnaheilla,
Gámaþjónustunnar, Hringrásar,
Sorpu auk félagsþjónustunnar í
Reykjavík. Á síðasta ári var rúmlega
200 reiðhjólum úr söfnuninni út-
hlutað til barna sem ekki áttu hjól.
Hjólasöfnunin er liður í átaksverk-
efninu Hreyfing og líkamlegt heil-
brigði. Það miðar að því að efla vit-
und barna og fullorðinna um
mikilvægi hreyfingar og stuðla
þannig að líkamlegu og andlegu heil-
brigði barna. Öll áheit á liðin í hjóla-
keppninni renna til verkefnisins.
Sjálfboðaliðar gera hjólin upp
undir styrkri stjórn sér reyndari
manna. Hjólaviðgerðardagurinn
mikli verður svo haldinn með pomp
og prakt laugardaginn 1. júní. „Þar
mun lokahnykkurinn í viðgerðum
fara fram undir ljúfum tónum og
léttum veitingum og vonandi góðu
veðri líkt og á síðasta ári,“ segir Sig-
ríður. Hún bendir og á að meiri upp-
lýsingar um verkefnið megi t.d.
finna á fésbókarsíðu þess sem er
facebook.com/hjolasofnun.
Fram á fullorðinsár
„Flest börn á Íslandi eiga reiðhjól
og geta nýtt sér það við leik og til að
komast á milli staða. Það eru þó til
börn sem eiga ekki hjól og hafa ekki
tækifæri á slíku vegna fjárhags-
legrar stöðu fjölskyldunnar. Slíkt
getur gert þeim erfitt fyrir að vera
þátttakendur í tómstundastarfi með
jafnöldrum sínum. Slíkt getur alið á
mismunun og félagslegri einangrun.
Að læra að hjóla er jafnframt mik-
ilvæg leikni sem fylgir börnum fram
á fullorðinsár,“ segir Sigríður Guð-
laugsdóttir.
sbs@mbl.is
Að læra að
hjóla er mik-
ilvæg leikni
Barnaheill og WOW Cyclothon safna reiðhjólum. Hreyf-
ing og heilbrigði. Rúmlega 200 hjól í fyrra. Félagslega
mikilvægt fyrir börnin að eiga hjól.
Laghent Viðgerðakona dyttar að í tengslum við söfnunina á sl. ári. Um
200 gömul reiðhjól bárust þá og eftir viðgerð voru þau skínandi fín.
Gleði Stór áfangi í lífi barna er að
eignast fyrsta reiðhjólið
Sigríður
Guðlaugsdóttir
’Við hvetjum alla semluma á hjólum af öll-um stærðum og gerðumí geymslunni að gefaþeim framhaldslíf og
gleðja barn í leiðinni