Morgunblaðið - 19.04.2013, Side 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Leiðangur Hjólað yfir Kerlingarskarð til norðurs. Fjallið er Rauðakúla. Þar var í áratugi þjóðleiðin í
byggðarlögin á norðanverðu nesinu, eða þar til svonefnd Vatnaleið var opnuð í kringum sl. aldamót.
Þ
egar nýir vegir eru tekn-
ir í notkun verða þeir
gömlu að skemmtilegum
hjólreiðabrautum. Þetta
er raunin víða um land
og mikilvægt fyrir hjólreiðafólk að
vera með augun opin gagnvart
möguleikunum,“ segir Örlygur
Steinn Sigurjónsson. Hann starfar
innan Íslenska fjallahjólaklúbbs-
ins og er, ásamt Hrönn Harð-
ardóttur, fararstjóri í leiðangri
klúbbsins vestur á Snæfellsnes
þriðju helgina í júní í sumar, það
er dagana 22. og 23. iúní í sumar.
Grófur vegur en
miklir möguleikar
Vestur á Nesi eru margar
skemmtilegar hjólaleiðir, að sögn
Örlygs. Umhverfið segir hann líka
stórbrotið og það gerir ferðir um
þessar slóðir
áhugaverðar.
„Dagskrá helg-
arinnar er þann-
ig að fólk kemur
sér sjálft vestur
í Stykkishólm
og þar höldum
við til aðfaranótt
laugardagsins
en þá verður
farið úr Hólm-
inum, um Helga-
fellssveit og
vestur í Berserkjahraun. Þetta er
falleg leið, hringur sem er um 40
kílómetrar,“ segir Örlygur. Í
framhaldinu, það er á sunnudeg-
inum, verður farið úr Hólminum
og suður á Nesið. Áð verður á
Hjarðarfelli og farið í hjólareisu
um gömlu leiðina yfir Kerl-
ingaskarð. Þar var í áratugi þjóð-
leiðin í byggðarlögin á norð-
anverðu nesinu, eða þar til
svonefnd Vatnaleið var opnuð í
kringum sl. aldamót.
„Þetta er dæmi um skemmti-
lega hjólaleið og þjóðveg sem fær
nýtt hlutverk. Þessi leið liggur um
afar fallegt umhverfi, vegurinn er
að vísu grófur og brattur en
möguleikarnir miklir. Leiðin yfir
Kerlingaskarðið er lítið farin í
seinni tíð þó slíkt sé vel þess
virði. Þessir þrjátíu kílómetrar
standa algjörlega fyrir sínu,“ seg-
ir Örlygur sem hefur starfað sem
leiðsögumaður síðustu árin, fyrir
ýmis ferðafélög.
Yfir Tröllatunguheiði
„Já, ég ætla að reyna að hjóla
talsvert um landið á þessu ári,“
segir Örlygur. Nefnir í því sam-
bandi t.d. Landmannalaugar og
uppsveitir Árnessýslu. Einnig er á
stefnuskránni að fara vestur í
Reykhólasveit og hjóla gömlu leið-
ina um Tröllatunguheiði, það er
niður í Steingrímsfjörð á Strönd-
um. Sá spotti er um það bil þrjá-
tíu kílómetrar langur. Þetta eru
þær slóðir þar sem skemmst er
yfir landið þvert, en þarna er far-
ið yfir hálsinn sem tengir Vest-
firðina sem haus við Ísland sem
líkamann sjálfan.
sbs@mbl.is
Kappsamir
fara um
Kerlingaskarð
Íslenski fjallahjólaklúbburinn stefnir á Snæfellsnes í sumar.
Helgafellssveit og Kerlingaskarð. Örlygur ætlar þvert yfir landið.
Örlygur Steinn
Sigurjónsson
’Þegar nýir vegir eru teknir í notkunverða þeir gömlu aðskemmtilegum hjólreiðabrautum.
SUMAR
2012
HALTUÁFRAM
Allar nánari upplýsingar á powerade.is ogmarathon.is
Verðlaun í öllumhlaupu
m
Powerade drykkjarstöð
var í öllumhlaupum
Aðgöngumiði í sund inn
ifalinn í þátttökugjaldi
Ferðaskrifstofan Vita g
efur ferðavinninga
fyrir flest samanlögð st
ig í karla- og
kvennaflokki.
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR
19. apríl 2012 - 5 km
FJÖLNISHLAUPIÐ
17.maí 2012 - 10 kmo
g skemmtiskokk
MIÐNÆTURHLAUP SUZU
KI
21. júní 2012 - 21,1 km
- 10 km - 5 km
ÁRMANNSHLAUPIÐ
11. júlí 2012 - 10 km
REYKJAVÍKURMARAÞON
ÍSLANDSBANKA
18. ágúst 2012 - 42,2 k
m - 21,1 km - 10 km - 42
,2 kmboðhlaup - 3 km
HLAUPIN
Hlauptu í s
umar!