Morgunblaðið - 19.04.2013, Page 9

Morgunblaðið - 19.04.2013, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ | 9 Gæðahjól frá FUJI Smiðjuvegi 30 - 577 6400 - 200 Kópavogur Fujibikes.com - hvellur.com - hvellur@hvellur.com Verðin eru frábær Landsþekkt viðgerðarþjónusta Hjóla ðu í v innu na á FUJI gæða hjóli frá H velli Aðeins 77.583 Aðeins 67.880 Aðeins 59.857 Aðeins 38.177 138.768 99.061 52.108 86.626 Fuji Nevada 1.9 D Fjallah jól Álstell 21 gí r Shimano, D iskabremsur 120 mm Fra mdempari s tillanlegur Fuji Dynamit e 24 Álhjól 24” 8 – 10 ára, 2 1 gír Shiman o Fuji Traverse 1.1 Hybrid Álstell 700 ( 28”), 27 gír a Shimano Deore, Gluss a diskabrem sur Fuji Crosstow n 3.0 Álstell 700 ( 28”) 21 gír Shimano Comfort me ð dempara í hnakk SE Qadangle Park freesty le SEWildman Pro Dirt/Street freestyle Fuji Traverse 1.3 Hybrid Álstell 700 ( 28”) 24 gíra Shimano Ac era Fuji Fazer 20 tommu 6 –8 ára, álhjó l, fótbremsa, h andbremsa Fuji Classic L ux fótbrems an góða Mikill fjöldi dömu og he rrahjóla með fótbremsu o g innbyggðu m 7 gírum. Í raun ertu bara kominn með stærri gjörð sem þýðir aftur meira rennsli,“ útskýrir Jón Þór þegar hann er spurður um þessar vinsældir. „Flestir kannast við 28" stærðina frá gömlu klassísku götuhjólunum; í raun og veru er þetta sama fyr- irbærið, sama gjarðastærð. En munurinn er sá að hjólin eru farin að gera ráð fyrir breiðari dekkjum og þar af leiðandi skapast þessi aukatomma og því eru hjólin köll- uð 29" þannig að í reynd er þetta hefðbundin 28" en bara á stærri dekkjum.“ Að sama skapi er 26" stærðin í reynd 25", eins og Jón Þór bendir á. Nánast alltaf betra Að sögn Jóns Þórs felst kost- urinn einkum í framangreindu rennsli á hjólinu en um leið er snertiflöturinn stærri þar sem dekkin eru breiðari. „Hjólið verð- ur fyrir bragðið stöðugra,“ bendir Jón Þór á. „En um leið munar mikið um það að hjólið fer mun betur yfir hindranir ýmiskonar, eins og til dæmis holur og yfir steina. Þar sem flöturinn er stærri verður yfirferðin léttari. Það er því nánast undantekningarlaust betra að fara um á 29" fjallahjól- um.“ Þegar Jón er spurður út í það hvaða kringumstæður gætu hentað 26" betur segir hann þar um afar sértækar aðstæður að ræða. „29" hjólin eru kannski heldur síðri þegar um teknískar fjallahjólreiðar er að ræða, þar sem farið er hratt um stíg með tíðum og kröppum beygjum, til dæmis í skóglendi. En það er satt að segja lítið um þannig aðstæður á Íslandi, þótt þær finnist reynd- ar. Fyrir hinn almenna hjólreiða- mann eru 29" hjólin hins vegar nánast alltaf betri kosturinn.“ Gary Fisher kynnti nýjungina Jón Þór segir að sögu 29" bylgj- unnar, sem meðal annars er runn- in undan rifjum goðsagnarinnar Gary Fisher, megi rekja ein 13 ár aftur í tímann, en þá voru hjólin fyrst kynnt hér á landi að ein- hverju marki. „Satt að segja vöktu 29" hjólin heldur takmarkaða hrifningu til að byrja með, einfald- lega vegna þess að hinir hörðu hjólarar voru fastir í 26-tomm- unni. Það sem gerist svo í fram- haldinu, fyrst í Bandaríkjunum og svo hér, er að þessir hörðu hjól- arar, sem almenningur horfir mik- ið til og spyr ráða, byrjuðu að prófa og urðu strax hrifnir, en framan af voru menn svo þrjóskir að þeir vildu ekki einu sinni prófa,“ bætir Jón Þór við og hlær. En um leið og þeir höfðu látið reyna á 29-tommuna varð ekki aft- ur snúið. Vinsældir á alþjóðavísu Það er ekki bara hér á landi sem 29" hjólin hafa rutt sér svo rækilega til rúms, segir Jón Þór. Í Bandaríkjunum er hið sama uppi á teningnum hjá TREK-hjólum en Örninn er umboðsaðili þeirra hér á landi. „26 tommu hjól, og þá sér- staklega í dýrari gerðunum, eru nánast stopp í sölu hjá TREK í Bandaríkjunum, og sömuleiðis hér. Þetta er því að verða normið, að segja má.“ jonagnar@mbl.is 29-tomman tekin við Hin seinni ár hafa vinsældir 29" fjallahjóla aukist jafnt og þétt á kostnað 26" hjóla. Ekki er þó um inn- antóma tískubólu að ræða heldur er innistæða fyrir fylginu, segir Jón Þór Skaftason, verslunarstjóri hjá Erninum. Morgunblaðið/Kristinn Betri Hjólreiðafólk þráaðist lengi við að skipta úr 26" yfir í 29" en þegar einu sinni er búið að prófa verður ekki aftur snúið að sögn Jóns Þórs. „29 tommu hjólin eru nánast alltaf betri kosturinn.“ Stöðugleiki 29" hjólin fara betur yfir hindranir ýmiskonar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.