Morgunblaðið - 19.04.2013, Side 11

Morgunblaðið - 19.04.2013, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11 ...allir út að hjóla Ármúli 40 S: 517 4600 Ekki gleyma að eika þér Scott Aspect 950 Verð: 129.000 kr. 29” Scott Scale 970 Verð: 185.000 kr. 29” Scott Scale 960 Verð: 299.000 kr. 29” Scott Atacama Sport 70 Verð: 89.000 kr. Scott Atacama Sport 60 Verð: 99.000 kr. Scott Sportster X50 Verð: 125.000 kr. Þú finnur leiktækið þitt hjá okkur! 20130417 - G O G G I.IS Æ fleiri kjósa að fara ferða sinna á reið- hjóli um landið og þá ekki síst erlendir ferðamenn. Margir útlendingar sem hér eru á ferðinni hafa kannski eyðu einn dag í sinni skipulögðu dagskrá. Nota þá svig- rúmið og taka einn dag á hjóli. Aðrir eru búnir að skipuleggja lengri hjólaferð- ir um landið,“ segir Sigurður Skarphéðinsson hjá Bike Comp- any. Hjólað í Eyjum Vel heppnuð hjólreiðaferð inn á hálendið fyrir nokkrum árum sem nokkrir félagar fóru í, varð til þess að þeir tóku höndum saman og stofnuðu fyrirtæki sem hefur þjón- ustu við hjólreiðafólk í brennidepli. Þetta voru Benedikt Ingi Tóm- asson, Guðmundur Arnar Ástvalds- son, Kjartan Þorbjörnsson og Sig- urður sem heldur utan um rekstur fyrirtækisins. Höfuðstöðvar þess eru í bakhúsi að Bankastræti 2 í Reykjavík og þar er hægt að fá leigð út hjól og hjá bókunarskrif- stofunni Trips.is á Laugavegi 54. Einnig fást leigð hjól frá fyrirtæk- inu í Viðey og Vestmannaeyjum. „Í Viðey störfum við með Eld- ingu, sem ferjar farþega í eyna og í Vestmannaeyjum störfum við með heimamönnum. Það liggur satt að segja í augum uppi að hjólreiðar eru góður ferðamáti í öllum eyjum, þar sem bílsamgöngnum verður ekki komið við svo sem í Viðey. Þá er gaman að hjóla um í Heimaey, náttúran er falleg og aðstæður til hjólreiða góðar,“ segir Sigurður. Skotland skemmtilegt Í Reykjavík er fyrirtækið með skipulagðar hjólreiðaferðir með leiðsögn á ákveðnum tímum. Bæði eru þetta stuttar innanbæjarferðir og dagsferðir í Bláa lónið og á Hengilssvæðið. Yfir sumarið eru svo á dagskránni ferðir um hálend- ið; svo sem yfir Kjöl, Syðra- Fjallabak og Fimmvörðuháls. Einnig hefur Bike Company verið að taka hópa, íslenska sem og er- lenda, í hjólreiðaferðir og hvata- ferðir þar sem hjólin koma við sögu, Sigurður Skarphéðinsson segir að ekki hafi verið brugðið neinni mælistiku á hverju hjólreiðaferða- mennskan hér á landi veltir. Þó megi ljóst vera að um háar tölur séu að efla. „Skotar hafa sinnt þess- um þætti ferðaþjónustunnar mjög vel. Þúsundir sækja Skotland heim á hverju ári, til þess að hjóla um náttúru þess fallega og skemmti- lega lands,“ segir Sigurður að lok- um. sbs@mbl.is Ferðaþjónusta tengd hjólreiðum er vaxandi grein Leigja út hjól og skipulagðar ferðir. Bike Company er í Bankastræti og víðar. Viðey og Vestmannaeyjar. Ánægja Hjólreiðar eru skemmtilegar og sigurtilfinningin grípur fólk þegar komið er heilu og höldnu í mark. Starf Hjólreiðamenn í upphafi verða á Miðbakka Reykjavíkurhafnar. Sigurður Skarphéðinsson ’ Skipulagðar hjól- reiðaferðir með leið- sögn á tímum. Innan- bæjar- og dagsferðir í Bláa lónið og á Heng- ilssvæðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.