Morgunblaðið - 17.05.2013, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2013
VIÐTAL
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég hefði viljað fá tilkynningu um
það ef ég er í meiri hættu en aðrir á
að fá brjóstakrabbamein vegna
erfða, en ég veit að það eru ekki allir
sömu skoðunar,“ sagði 43 ára gömul
móðir í Reykjavík. Hún vildi ekki
láta nafns síns getið. Konan greind-
ist með brjóstakrabbamein í desem-
ber 2012 og fór í aðgerð þar sem
hluti af öðru brjóstinu var tekinn.
Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, segir
hægt að finna með skjótum hætti
um 2.400 Íslendinga, karla og kon-
ur, sem eru með stökkbreytt gen
sem eykur líkur á að þeir fái
krabbamein í brjóst eða blöðruháls-
kirtil.
Í viðtal við erfðaráðgjafa
„Tvær móðursystur mínar voru
búnar að fá brjóstakrabbamein,
önnur í bæði brjóst og leið nokkur
tími á milli. Móðir mín lést úr
krabbameini en ekki brjósta-
krabbameini,“ sagði konan. Frá því
að hún greindist hefur hún spurt sig
hvort þessi sjúkdómur liggi í ætt-
inni. Hún á pantaðan viðtalstíma
hjá erfðaráðgjafa á Landspít-
alanum.
„Ég væri ekki að fara í þetta við-
tal nema vegna þess að mig langar
að vita þetta. Ég hef líka spurt mig
hvers vegna ég var ekki búin að
kanna þetta fyrr? Ég vissi að lík-
urnar væru kannski meiri á að ég
fengi brjóstakrabbamein en aðrar
konur vegna þess að tvær móð-
ursystur mínar höfðu fengið það.“
Læknir hennar sagði að ekki væri
víst að tengsl væru á milli veikinda
hennar og veikinda móðursystr-
anna. Þær hefðu getað verið með
einhverja allt aðra tegund af
brjóstakrabbameini en hún fékk.
Mikil aðgerð að taka brjóstin
Kvikmyndaleikkonan Angelina
Jolie er með erfðavísi BRC-A1. Hon-
um fylgir meiri hætta á að fá
krabbamein en BRC-A2 erfðavís-
inum sem er mun algengari hér á
landi. Hvað finnst konunni um þá
ákvörðun Jolie að láta taka af sér
bæði brjóstin?
„Ef það eru 80-90% líkur á því að
hún fái mein í brjóstin, þá skil ég
hana vel. Þegar ég greindist sögðu
læknarnir að það væri nóg að taka
hluta af öðru brjósti mínu. Líkurnar
á því að þetta kæmi aftur væru ekk-
ert meiri hvort sem tekinn væri hluti
af brjóstinu eða allt brjóstið.“ Fyrir
aðgerðina hafði henni verið sagt frá
öðrum konum sem höfðu látið taka
annað brjóst eða bæði, eins og það
væri ekkert stórmál.
„Það er hægara sagt en gert að
láta taka af sér brjóst eða bæði
brjóstin. Þetta er stór og erfið að-
gerð og hefur örugglega heilmikil
áhrif á mann. En ef mér yrði sagt
að ég væri með gen, sem eykur
hættu á brjóstakrabbameini, þá
þyrfti ég að skoða hvort ég ætti að
láta taka bæði brjóstin.“ Konan
sagði að hún myndi í öllum tilvikum
ráðfæra sig við lækna og taka mark
á þeirra ráðleggingum. Hún vissi til
þess að íslenskir læknar hefðu ráð-
lagt einhverjum konum að láta taka
bæði brjóstin til að draga úr hættu
á að þær fengju brjóstakrabba-
mein.
Sjálfskoðun mjög mikilvæg
Hún sagði mjög mikilvægt að kon-
ur skoðuðu á sér brjóstin sjálfar
enda fyndust fyrstu merki um
brjóstakrabbamein við sjálfsleit í
mörgum tilvikum. Leiðbeiningar eru
m.a. á vefnum www.brjosta-
krabbamein.is.
„Ég fann mitt mein sjálf í nóv-
ember 2012. Ég hafði farið í brjósta-
myndatöku í byrjun desember 2011
og þá fannst ekki neitt. Það gæti
hafa verið byrjað en ekki orðið nógu
stórt til þess að það sæist á mynd,“
sagði hún. „Ég leitaði aldrei að ein-
kennum í brjóstunum, þrátt fyrir að
móðursystur mínar hefðu greinst.
Ég fann þetta óvart. Það þarf að
leggja svo mikla áherslu á að konur
leiti sjálfar. Það þyrfti að vera áróð-
ur um það í sjónvarpinu og mynd-
bönd um hvernig best er að leita.“
„Ég hefði viljað fá tilkynningu“
Kona sem greindist með brjóstakrabbamein í desember 2012 segist vilja vita hvort hún sé í meiri
hættu en aðrar konur vegna erfða Hún fann meinið fyrir tilviljun en hafði farið í skoðun ári fyrr
Morgunblaðið/Ómar
Aðgerð Kona sem greindist með brjóstakrabbamein í desember 2012 fór í aðgerð og var hluti annars brjóstsins tek-
inn. Hún leggur mikla áherslu á að konur skoði brjóst sín reglulega en sjálf fann hún meinið fyrir tilviljun.
GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
STINGDU þÉR
AF ÖLLU fyrir
sundið til
mánudags20%