Morgunblaðið - 30.05.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.05.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Vill einfalda regluverkið  Innanríkisráðherra segir mikilvægt að einfalda regluverkið um Rib-báta  Enginn afsláttur verði gefinn af öryggi  Finni hinn gullna meðalveg „Það er algjört lykilatriði að einfalda reglu- verkið í kringum þetta og tryggja að þetta sé aðgengilegra og auðveldara fyrir rekstrar- aðila,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir inn- anríkisráðherra, spurð um afstöðu sína til reglugerðar um svokallaða Rib-báta. Fyrir skömmu staðfesti innanríkisráðuneytið ákvörð- un Siglingastofnunar um auknar öryggiskröfur á hendur þeim ferðaþjónustufyrirtækjum sem notast við Rib-báta, en um er að ræða harð- botna slöngubáta. Rekstraraðilar bátanna hafa kvartað yfir því að þetta mál hafi valdið þeim miklu tjóni. Að sögn Hönnu Birnu er alveg einboðið að endurskoða verði þessar reglur og taka það til skoðunar hvernig hægt sé að samræma það að öryggi sé tryggt og fyrirtækin rekstrarhæf. „Það er auðvitað líka mjög snúið fyrir okkur að gefa einhvern afslátt af því sem eru taldir mjög mikilvægir öryggishagsmunir,“ segir Hanna Birna og bætir við að endurskoða verði reglu- verkið og að vinnu við þá endurskoðun verði hraðað. Hanna Birna leggur áherslu á að í þessu máli eins og svo mörgum öðrum sé mikilvægt að finna hinn gullna meðalveg. „Það er alveg ljóst að það er rétt sem rekstraraðilar benda á, sér- staklega í þessu umhverfi, að regluverkið í kringum þessi fyrirtæki og þennan rekstur er of flókið, of umfangsmikið og það getur verið að þegar menn fara yfir það, þá sjái þeir að það séu líka gerðar of miklar kröfur. Við verðum að skoða það án þess þó að gefa afslátt af því þannig að öryggi sé með einhverjum hætti ógn- að,“ segir Hanna Birna. „Það er algjört lykilatriði að einfalda regluverkið í kringum þetta.“ Hanna Birna Kristjánsdóttir Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Fyrrverandi stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN) afgreiddi nýjar úthlutunarreglur áður en hún lauk störfum. Þetta staðfesti Guðrún Ragnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri LÍN, við Morgunblaðið. Reglurnar voru afgreiddar til þáverandi menntamálaráðherra á síðasta stjórnarfundi fráfarandi stjórnar þann 19. apríl síðastlið- inn. Það kemur því í hlut nýs menntamálaráðherra, Illuga Gunnarssonar, að afgreiða málið endanlega. Ekki tilbúin að nefna krónuhækkun Guðrún er ekki tilbúin til að nefna krónu- eða prósentu- hækkanir sem felast í reglunum, en játar því að fram- færslulán hækki eitthvað og sömuleiðis sé til skoðunar að hækka frítekjumark. „Það sem ákveðið var fyrir ári síðan var að reyna að tryggja ákveðna verðlagshækkun á fram- færslu frá einu ári til annars og því voru menn að vinna út frá í þessum tillögum. Síðan voru fulltrúar námsmanna með ákveðnar hugmyndir um að fá hækkun á frítekjumarkið og það var vilji til þess að skoða það, en síðast þegar ég vissi var ekki búið að ganga úr skugga um að fjárlagaheimild væri fyrir því,“ segir Guðrún og tók fram að óábyrgt væri að nefna tölur í þessu sambandi þar sem reglurnar væru ekki endanlega staðfestar. Guðrún segir að hækkun framfærslu í fyrra hafi tekið mið af verðbólgu fyrra árs, nú sé horft til þess að hækka fram- færslu til móts við verðbólgu ársins 2012. Það sé útgangs- punkturinn í úthlutunarreglunum. Segist hún vel skilja fulltrúa námsmanna sem vilji hækka frítekjumark enda hafi laun hækkað undanfarin ár á meðan frítekjumark hafi haldist óbreytt. Guðrún segist ekki vita til þess að ný stjórn LÍN hafi verið skipuð en gerir ráð fyrir að nýja stjórnin muni vilja kynna sér tillögur fyrrverandi stjórn- ar, afgreiða reglurnar og leggja í hendur nýs ráðherra. Hækkuðu lán og hættu  Stjórn LÍN samþykkti hækkun námslána rétt áður en hún lauk störfum  Ákvörðun nú í höndum menntamálaráðherra Guðrún Ragnarsdóttir Króatarnir tutt- ugu og sjö sem fluttir voru úr landi á þriðjudag eftir að Útlend- ingastofnun synj- aði þeim um leyfi hér á landi fengu greiddar fimmtíu evrur, jafnvirði um átta þúsund króna, í farareyri vegna ferða innan- lands í Króatíu á hvern fullorðinn ein- stakling. Samkvæmt upplýsingum embættis ríkissaksóknara fengu börn tuttugu og fimm evrur, jafnvirði um fjögur þúsund króna, í farareyri. Heildarkostnaður vegna ferð- arinnar liggur ekki fyrir en leiga á farþegaflugvél WOW-Air nam átta milljónum króna. Útlendingastofnun greiðir þann kostnað. Flestir úr hópnum hafa áfrýjað niðurstöðu Útlendingastofnunar til innanríkisráðuneytisins. Ráðuneytið úrskurðaði hins vegar að Króötunum skyldi vísað frá landinu á meðan farið væri yfir kærur þeirra. Króatar verða frjálsir til ferða og dvalar hér á landi frá og með 1. júlí næstkomandi þegar Króatía gerist aðildarríki Evrópusambandsins. kjartan@mbl.is Fimmtíu evrur í farareyri Króatarnir fóru úr landi í fyrradag.  WOW-vél leigð fyrir átta milljónir „Það fóru 7 eða 8 kíló í ferðinni, ég fann að það héngu utan á mér bux- urnar,“ segir Ingólfur Geir Gissurarson sem kom til landsins í gær eftir að hafa gengið á Eve- rest-fjall, hæsta fjall heims. Ingólfur segir að erfiðið hafi ekki verið búið þegar komið var á tindinn því gangan niður sé einnig erfið. „Bakaleiðin úr grunnbúðum er tekin á þremur dögum en við fórum upp í grunnbúðir á níu dögum. Þetta er stíf ganga en miklu léttara yfir öllu og maður getur leyft sér að stoppa í þorpunum og fá sér að borða þegar maður vill,“ segir Ingólfur. Hann var alls 59 daga í ferðinni. Missti 7-8 kíló á göngunni Margrét Svavarsdóttir og Ingólfur Geir. Þessir fimmtabekkingar í Háteigsskóla voru sposkir á svip er ljósmyndara bar að garði í gær er nemendur fimmtu bekkja Háteigsskóla buðu aðstand- endum sínum í heimsókn til að taka þátt í menningarmóti. Menningarmóts- verkefnið Fljúgandi teppi er hluti af fjölmenningarstarfi Borgarbókasafns Reykjavíkur og hefur farið á milli skóla í borginni í fimm ár. Á menningarmótum taka nemendur þátt með því að kynna áhugamál sín og persónulega menningu. Nemendum í Háteigsskóla tókst vel til og voru kynningarnar jafn fjölbreyttar og þær voru margar. Krakkarnir komu með muni að heiman, útbjuggu veggmyndir, sýndu kúnstir með bolta og léku á hljóðfæri, svo eitthvað sé nefnt. Sköpun og fjölbreytni í fyrirrúmi hjá nemendum Morgunblaðið/Rósa Braga MOJITOBOOST Á MÁNUDEGI - af hverju ekki? Mojitoboost 1 lítið Vanilluskyr.is 1 msk hrásykur 0,5 dl limesafi 1 dl ananassafi 6-8 myntulauf 6-8 ísmolar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.