Morgunblaðið - 30.05.2013, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2013
Langtímaleiga
www.avis.is
52.100 kr. á mánuði og allt
innifalið nema bensín!*
Hafðu endilega samband við okkur í síma 591 4000 eða
kíktu á avis.is og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.
*Hyundai l10, árgerð 2011, í 36 mánaða leigu.
Komdu í langtímaleigu Avisog láttu dæmið ganga upp!
idex.is - sími 412 1700
framl.- sölu- og þjónustuaðili
Schüco á Íslandi
- merkt framleiðsla
• Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex
álgluggum ehf.
• Hágæða álprófílkerfi frá Schüco
• Schüco tryggir lausnir og gæði
• Þekking og þjónusta
• Áralöng reynsla
Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi
tegundum bygginga
ÁLGLUGGAR
- þegar gæðin skipta máli
www.schueco.is
Söngkonan Janis Carol Walker,
sem kallaði sig áður Janis Carol,
heldur tónleika á Café Rosenberg á
laugardaginn, 1. júní kl. 21, ásamt
hljómsveit. Janis muna eflaust
margir Íslendingar eftir því hún
var nokkuð þekkt söngkona hér á
landi á árunum 1965-1976, söng þá
með þekktum djasstónlistarmönn-
um á borð við Guðmund Stein-
grímsson og popphljómsveitum.
Janis flutti til Svíþjóðar, tók þar
þátt í söngvakeppni í Stokkhólmi
árið 1976 með íslensku hljómsveit-
inni Lava og flutti svo tveimur ár-
um síðar til Lundúna þar sem hún
breytti nafni sínu í Carol Nielsson. Í
Lundúnum fór hún með aðalhlut-
verk í mörgum söngleikjum And-
rews Lloyd Webber, m.a. Cats og
Jesus Christ Superstar og flutti til
Seattle í Bandaríkjunum árið 2004.
Janis er nýflutt aftur til Reykja-
víkur en hún hætti að syngja í ein
19 ár sökum astma. Hún tók hins
vegar aftur að stunda sönglist og
hefur sungið hefðbundna djass-
tónlist sl. tvö ár, innblásin af tveim-
ur þekktum og margverðlaunuðum
djassistum í Seattle, Overton Berry
og Clarence Acox. Hún gaf út
hljómplötu í Bandaríkjunum fyrir
nokkrum mánuðum sem þeir leika
m.a. á. Hljómsveit Janis á tónleik-
unum á Café Rosenberg skipa þeir
Kjartan Valdemarsson á píanó, Sig-
urður Flosason á saxófón, Gunnar
Hrafnsson á bassa og Einar Schev-
ing á trommur. Á efnisskránni
verður ástríðufull og sveiflukennd
djasstónlist, lög eftir höfunda á
borð við Duke Ellington, Cole Por-
ter og George Gershwin. Frekari
upplýsingar má finna á carolniels-
son.com. helgisnaer@mbl.is
Endurkoma Janis Carol syngur á
tónleikum á laugardaginn.
Janis Carol snýr
aftur með djassi
Syngur standarda á Café Rosenberg
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Þetta er alveg ótrúleg tilfinning,
sérstaklega af því að þetta eru verð-
laun fyrir alla hönnun,“ segir graf-
íski hönnuðurinn Hjalti Karlsson,
spurður hvernig tilfinning það sé að
hljóta hin virtu sænsku hönnunar-
verðlaun Torsten och Wanja Söder-
berg í ár. Í gær var kunngert að
Hjalti hlyti verðlaunin en þau verða
afhent í Gautaborg 4. nóvember og
sama dag opnuð sýning með verkum
Hjalta í Röhsska-safninu þar í borg.
„Prófnefndin bað um að fá að
hitta mig og ég bjóst alls ekki við að
vinna þetta, datt það ekki í hug.
Þetta kom rosa mikið á óvart þegar
þau hringdu og sögðu að ég hefði
unnið þetta. Þetta er enn að síast
inn, ég er ekki alveg búinn að ná
þessu og augljóslega rosalega
ánægður með þetta,“ segir Hjalti
um verðlaunin en þau eru veitt ár-
lega norrænum hönnuði sem þykir
hafa skarað fram úr í störfum sínum
og talin ein þau virtustu sinnar teg-
undar í heiminum. Hjalti er þriðji
Íslendingurinn sem hlýtur verðlaun-
in en þeir fyrri eru Steinunn Sigurð-
ardóttir fatahönnuður og Sigurður
Gústafsson húsgagnahönnuður.
Stórfyrirtæki í viðskiptum
Hjalti býr og starfar í New York
og hefur þar rekið hönnunarstofuna
Karlsson & Wilker frá árinu 2000
með Þjóðverjanum Jan Wilker. Við-
skiptavinir Karlsson & Wilker í
gegnum tíðina hafa m.a. verið fyr-
irtækin Puma, Nike og Diesel, nú-
tímalistasafnið MoMA, plötufyr-
irtækið Capitol Records, dagblaðið
New York Times og Rockefeller
Foundation, svo fáein séu nefnd.
Spurður hvort hann haldi að verð-
launin hafi mikla þýðingu fyrir
hann, upp á framtíðina að gera, seg-
ist Hjalti halda það. „Það er frábært
að fá svona viðurkenningu, alveg
meiriháttar, þannig að ég hugsa að
þetta komi örugglega til með að
hjálpa okkur einhvern veginn,“ seg-
ir hann. Hvað sýninguna í Röhsska
varðar segist Hjalti ætla að reyna
að vinna sérstakt verkefni fyrir
hana, í stað þess að sýna gömul
verk.
Í verðlaunafé hlýtur Hjalti eina
milljón sænskra króna, jafnvirði um
18,5 milljóna íslenskra króna.
Spurður að því í hvað hann ætli að
nýta verðlaunaféð segir Hjalti að
líklega muni hann deila því með fé-
laga sínum Wilker og hugsanlega
láta það renna inn í fyrirtækið. „Öll
verkefnin sem við gerum eru 50/50
þannig að þetta er ekki bara ég,“
bendir Hjalti á.
Adobe og Gus Gus
– Eruð þið með einhver stór verk-
efni í vinnslu núna á stofunni?
„Við erum að vinna tvö verkefni
með hugbúnaðarfyrirtækinu Adobe
og svo erum við alltaf með einhverja
geisladiska og minni verkefni,“
svarar Hjalti og nefnir sem dæmi að
framundan sé verkefni fyrir hljóm-
sveitina GusGus. „Ég hef alltaf verið
mikill aðdáandi hennar og er mjög
spenntur fyrir því,“ segir Hjalti og
getur þess að lokum að til standi að
opna litla Karlsson & Wilker-stofu í
Reykjavík, seinni hluta þessa árs.
Sá þriðji Hjalti Karlsson er þriðji íslenski hönnuðurinn sem hlýtur ein virt-
ustu hönnunarverðlaun heims, Torsten och Wanja Söderberg-verðlaunin.
„Enn að síast inn“
Grafíski hönnuðurinn Hjalti Karlsson hlýtur sænsku
Torsten och Wanja Söderberg-hönnunarverðlaunin í ár
Tíminn Hönnun Hjalta og Wilker
fyrir tímaritið Time árið 2008 vakti
þónokkra athygli. Tölublaðið kom
út í lok árs og í því var farið yfir það
markverðasta sem gerðist á árinu.
Dæmi um hönnun Karlsson & Wil-
ker má finna á vef stofunnar,
karlssonwilker.com.