Morgunblaðið - 30.05.2013, Síða 48
FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 150. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Anna Kristín fannst látin
2. „Verra en blaut tuska“
3. Gifta sig eftir 24 ára samband
4. „Ég varð ofsalega hrædd“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Mezzoforte heldur
tónleika í Silfurbergi í Hörpu 6. júní
nk. í tilefni af því að 30 ár eru nú liðin
frá því að lag sveitarinnar „Garden
Party“ komst á vinsældalista víða um
heim, fyrst íslenskra laga.
Morgunblaðið/Guðmundur Rúnar
Mezzoforte heldur
tónleika í Hörpu
Þjóðminjasafni
Íslands verður á
morgun afhent
fyrsta flíkin sem
Eggert Jóhanns-
son feldskeri
saumaði eftir
pöntun en það var
lambskinnsjakki
sem hann saum-
aði árið 1977 fyrir Rannveigu Guð-
mundsdóttur sem síðar varð alþing-
ismaður og ráðherra. Jakkinn verður
varðveittur í safninu.
Fyrsti jakki Eggerts
í eigu þjóðarinnar
Leikhópurinn CommonNonsense,
sem stendur á bak við Grímu-
verðlaunasýninguna Tengdó í Borg-
arleikhúsinu, mun vinna að nýrri sýn-
ingu fyrir leikhúsið á næsta leikári.
Sú ber vinnuheitið Dagbók djass-
söngvarans og mun leik-
konan Kristbjörg Kjeld
bætast í hópinn. Verkið
verður þróað út frá texta
eftir leikarann Val Frey
Einarsson, einn liðs-
manna CommonNon-
sense og annan
tveggja leikara
Tengdó og verður
frumsýnt á vor-
mánuðum 2014.
Kristbjörg Kjeld með
CommonNonsense
Á föstudag Suðlæg átt 3-10 m/s. Rigning eða skúrir syðra og
vestra, en bjart norðaustantil. Hiti 6-12 stig. Á laugardag Hæg
breytileg átt og skúrir í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 10-18 m/s og rigning sunnan- og
vestanlands. Heldur hægari vindur og bjartviðri framan af degi
nyrðra og eystra. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast norðaustantil.
VEÐUR
Það reyndi á taugar leik-
manna Víkings R. og BÍ/
Bolungarvíkur í gær en
bæði lið slógu út 2. deild-
arlið í vítaspyrnukeppni í
32-liða úrslitum bik-
arkeppni karla í knatt-
spyrnu. Tíu leikir fóru fram í
gær. Úrvalsdeildarlið ÍBV, ÍA
og Fylkis lentu í vandræðum
en komust öll áfram, sem
og 3. deildarlið Magna frá
Grenivík, svo einhver séu
nefnd. »2
Dramatík en fátt
óvænt í bikarnum
Íslenska kvennasveitin vann til gull-
verðlauna í 4x200 metra skriðsundi á
Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg í
gær. Íslenska sveitin synti á tímanum
8.25,74 mínútum og setti þar með
nýtt Íslandsmet og bætti mótsmetið
á leikunum. Í sigursveitinni voru þær
Eygló Ósk Gústafsdóttir, Inga
Elín Cryer, Hrafnhildur
Lúthersdóttir og Jó-
hanna Gerða Gúst-
afsdóttir. »1
Íslandsmet hjá kvenna-
sveitinni í boðsundi
Íslensku landsliðin í körfuknattleik
léku bæði á Smáþjóðaleikunum í Lúx-
emborg í gær. Kvennalandsliðið byrj-
aði vel í mótinu og vann Möltu 77:59
þar sem andstæðingarnir áttu engin
svör við leik Helenu Sverrisdóttur
sem skoraði 28 stig. Karlalandsliðið
tapaði hins vegar illa fyrir heima-
mönnum, 88:61, en hafði áður unnið
stórsigur á San Marínó. »1 og 4.
Leikmenn Möltu áttu
engin svör gegn Helenu
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Hildur Hjörvar
hhjorvar@mbl.is
„Nemendur finna að það að fara
svona fljótt af stað út í samfélagið og
æfa íslenskuna eykur sjálfstraustið,“
segir Guðlaug Stella Brynjólfsdóttir
verkefnisstjóri, sem ásamt þeim
doktor Guðrúnu Theodórsdóttur
lektor og Kolbrúnu Friðriksdóttur
aðjúnkt stendur að Íslenskuþorpinu.
Íslenskuþorpið er verkefni á vegum
Háskóla Íslands. Efnið er kennt í
námskeiðum í íslensku sem öðru
máli og gengur út á að gera nem-
endum kleift að nota íslensku við
hversdagslegar aðstæður. Þorpið
samanstendur af fyrirtækjum sem
bjóða upp á að afgreiða nemendurna
á íslensku, en samskiptin undirbúa
nemendur í tímum.
Mikilvægt að æfa tal frá byrjun
„Nýjustu rannsóknir í ann-
arsmálsfræðum sýna að málnotkun
er forsenda máltileinkunar,“ út-
skýrir Guðlaug Stella. „Að tala málið
á fyrstu stigum tungumálanámsins
er mjög mikilvægt, sérstaklega við
raunverulegar aðstæður og það er
meðal annars þess vegna sem við
fórum út í þetta verkefni.“
Kjarkur til að tala við
aðra Íslendinga eykst
Verkefnið hefur að sögn Guð-
laugar Stellu gengið vonum framar.
„Það kom okkur á óvart hvað það
skipti fólk rosalega miklu máli að
mæta vinsemd og velvilja.“
Þorbjörg Karlsdóttir bókasafns-
fræðingur á Borgarbókasafninu tek-
ur í sama streng. „Þetta hefur geng-
ið mjög vel, starfsfólkið er reiðubúið
að sýna nemendunum þolinmæði og
þetta truflar ekki starfsemina,“ en
Borgarbókasafnið er eitt af níu þátt-
tökufyrirtækjum Íslenskuþorpsins.
„Könnun sem við gerðum meðal
nemenda sýndi að ánægjuhlutfallið
er um 90%,“ segir Guðlaug Stella.
Samkvæmt könnuninni telja lang-
flestir nemendur sig hafa þjálfast í
framburði og tali, aukið orðaforða
sinn og sjálfstraustið sömuleiðis.
„Nemendur finna að það að fara
svona fljótt af stað út í samfélagið og
æfa sig eykur sjálfstraustið. Til
dæmis sagði einn að það hefði komið
sér á óvart hvað Íslendingar skildu
mikið af því sem hann sagði, en ann-
ar sagðist nú hiklaust nota íslensku í
daglegu lífi.“
Fyrirmynd verkefna erlendis
„Við erum fyrirmynd þorpa sem
verða sett upp í Danmörku og Sví-
þjóð innan skamms,“ segir Guðlaug
Stella, en skólarnir sem að því
standa eru Syddansk Universitet í
Óðinsvéum og Interaktiv Institut í
Stokkhólmi. Segist hún vona að
verkefnið muni teygja anga sína enn
víðar á komandi árum.
„Viltu tala íslensku við mig?“
Nýstárleg
tungumálakennsla
slær í gegn
Ljósmynd/Íslenskuþorpið
Opnun Íslenskuþorpsins Nemendur í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands hönnuðu umhverfi og útlit þorps-
ins, þ. á m. merki þess sem sjá má í bakgrunni. „Viltu tala íslensku við mig?“ eru einkennisorð verkefnisins.
Ljósmynd/Íslenskuþorpið
Á vettvangi Te&Kaffi í Austurstræti er eitt þeirra fyrirtækja sem taka þátt
í Íslenskuþorpinu. Hér sést nemandi æfa íslenskuna með kaffibarþjóni.