Monitor - 16.05.2013, Blaðsíða 6
6 MONITOR FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
Ótrúlega margir hafa skoðun
á Eurovision og fékk Monitor
einstaklinga úr mismunandi
áttum til að rýna í keppnina í ár.
Allir spá
Dönum sigri
FIMM
SIGURSTRANGLEG
Emmelie de Forest
Only Teardrops
Hin berfætta Emily er með
mjög flotta rödd og syngur lagið
mjög vel. Mjög grípandi lag og ég
veit að það verður ofarlega í ár. Yrði
ekki hissa ef keppnin myndi vera í
Danmörku að ári.
Cascada Glorious
Cascada eiga sér aðdáendur
um alla Evrópu og ég held
að Þjóðverjum muni ganga vel með
þetta lag. Það er svolítill Euphoria-
fílingur í því, en þetta lag er þó ekki
alveg jafnsterkt og sigurlagið í fyrra.
Dina Garipova What if
Það skiptir ekki máli hvernig
lag Rússar eru með. Þeir eru
alltaf í topp 10 og unnu árið 2008
með skautadansara sem leit út eins
og Ellen Degeneres og fiðluleikara
með fiðlu sem kostaði hann annað
nýrað svo þeir eru alltaf svona hálf-
gert spurningarmerki. Lagið í ár er
þó mjög fínt og Rússum á örugglega
eftir að vegna vel.
Margaret Berger
I Feed You My Love
Töff söngkona með flott lag
og ég gæti alveg ímyndað mér að
þetta yrði spilað á útvarpsstöðvum
landsins í sumar.
Robin Stjernberg You
Gestgjafarnir í ár eru með
dúllustrák sem syngur
hresst lag og það er mjög einfalt og
mun örugglega gera góða hluti.
Hvert er þitt uppáhaldslag í keppninni í
ár og af hverju? Mér finnst írska lagið mjög
skemmtilegt og algjört partílag sem kemur
manni í gírinn, en flottasta lagið finnst mér vera
danska lagið. Svo finnst mér hollenska lagið líka
ógeðslega töff.
Hvað er versta lagið í ár og af hverju? Úff, Búlg-
aría er með versta lagið í ár að mínu mati, ég skil
ekki þennan söng, ef það á að kalla þetta söng.
Þau voru þó með enn verra lag til að byrja með,
ótrúlegt en satt, en breyttu í Samo Shampioni og
ekki skánaði það mikið.
Hvaða lag mun koma á óvart í ár og af hverju?
Ég hugsa að Anouk frá Hollandi eigi eftir að
koma á óvart. Þetta er rólegt lag sem hún
syngur mjög vel og hún er svo rosalega heillandi
stelpan.
Hvar lendir Ísland og af hverju? Ég er ekkert
rosalega bjartsýn fyrir okkar hönd en vona
innilega að við komumst áfram og gæti ég trúað
að dómnefndin myndi mögulega bjarga því. En
ég held að við séum ekkert að fara að gera neina
stórkostlega hluti í lokakeppninni.
Eftirminnilegasta atriðið í Euro frá upphafi?
Þau eru alveg nokkur, til dæmis Verka serduchka
frá Úkraínu 2007. Hún var ótrúlega fyndin og
það var mjög eftirminnilegt þegar Selma lenti
í 2. sæti og ég var að hlusta á útsendinguna á
netinu frá Orlando í gegnum 56k modem sem
ákvað að detta út í blálokin og ég vissi ekkert
hvernig þetta endaði og hélt ég myndi fara yfir
um. Enda nýfermd og hádramatísk á þessum
tíma. En uppáhaldsatriðið mitt er samt atriðið
frá Úkraínu árið 2009. Svetlana Loboda að syngja
Be my Valentine í glansandi stígvélum sem náðu
upp á læri, dansandi, í heljarstökkum og tók svo
trommusóló. Aðeins of töff stelpa þar á ferð.
Flottasti íslenski búningurinn frá upphafi? Mér
fannst latexpíurnar hans Palla töff og svo var
Silvía Nótt í geggjuðum búning.
Hvað þarf gott Eurovision-partí að hafa? Ég held
að það þurfi fólk sem er spennt fyrir Eurovision
og svo auðvitað gott sjónvarp og ekki skemmir
fyrir að hafa drykkjuleik yfir stigagjöfinni, þótt
ég sé nú alltaf bara í vatninu.
ELSA SERRENHO
Fyrstu sex: 271185.
Eurovision er: Æðislegt.
Sá Selmu
í gegnum
56k modem
FIMM
SIGURSTRANGLEG
Emmelie de Forest
Only Teardrops
Smámælt krútt með austur-
evrópskar trommur og írsk áhrif.
Veðbankarnir elska lagið og það gæti
komið því mjög langt.
Margaret Berger
I Feed You My Love
Hart danspopp sem gæti
alveg slegið í gegn. Mér skilst að
söngkonan sé mjög sexý.
Anouk Birds
Anouk er stórstjarna... í
Hollandi. Stjörnurykið gæti
þó sáldrast á okkur hin. Hún er helvíti
flott og lagið er kúl.
Marco Mengoni L’Essenziale
Eini strákurinn sem virðist
eiga séns. Lag í gömlum
góðum ítölskum stíl. Flott popp.
Dina Garipova What if
Enn eitt krúttið og enn ein
söngkonan. Hljómar alls ekki
eins og rússneskt popp, meira eins
og svakalega sykruð Mariah Carey.
Hvert er þitt uppáhaldslag í keppninni í ár og
af hverju? Ég á líf er auðvitað mitt uppáhald
en ef þú snýrð upp á hendina á mér og kveikir
í rasshárunum þá verð ég að viðurkenna að ég
fíla Ungverjaland og Króatíu. Ungverjaland er
krúttlegt popp í anda Ásgeirs Trausta og Króatía
er bara ferlega flott og vel sungið lag. Svo er
Holland lagið sem vex og vex og vex.
Hvað er versta lagið í ár og af hverju? Úff, af
mörgu er að taka. Ég held að Litháen, Lettland og
Rúmenía verði að eiga þennan vafasama heiður.
Já, og Svartfjallaland. Öll þessi lög eru hreint
og klárt rusl þó flytjendurnir séu örugglega
yndislegar manneskjur.
Hvaða lag mun koma á óvart í ár og af hverju?
Mig grunar Ungverjaland. Það er enginn að tala
um það.
Hvar lendir Ísland og af hverju? Ísland fer í
úrslitakeppnina og lendir þar í topp 10. Eyþór
Ingi er algjörlega að slá í gegn hér og menn
heillast af honum sem söngvara. Það kemur ekki
á óvart.
Eftirminnilegasta atriðið í Euro frá upphafi?
Vá. Þú ert að biðja mig að velja konfektmola úr
risastórum kassa. Ég gleymi Dönu International
aldrei, já og Lordi í skrímslabúningunum. Svo
er það ABBA, Silvía Nótt og dragdrottningin
frá Úkraínu. Það er ekki hægt að velja eitt af
þessum, öll brilljant á sinn hátt. Ég held svo að
margir eigi eftir að muna eftir hvít-rússneska
laginu í ár. Það er ekki oft sem maður sér risa, já
risa, halda á söngkonunni upp á svið.
Flottasti íslenski búningurinn frá upphafi?
Jóhanna Guðrún í Rússlandi. Gerði gríðarlega
mikið fyrir atriðið.
Hvað þarf gott Eurovision-partí að hafa?
Skemmtilegt fólk og góðar veitingar. Það er
nauðsynlegt að undirbúa sig og hlusta að
minnsta kosti einu sinni á öll lögin. Svo er ekki
verra að vera með gott sjónvarp og hljóðkerfi og
tjúna í botn.
FELIX BERGSSON
Fyrstu fjórir: 0101.
Eurovision er… algjörlega
gargandi snilldarsirkus.
Einn strákur
sem á séns