Monitor - 16.05.2013, Blaðsíða 22
Tölvuhangs
á kvöldin
Líkaminn hefur sína eigin líffræði-
legu klukku sem sveiflast á um
það bil 24 klst. fresti. Rannsóknir
benda til að við höldum þessum
hring nokkuð fullkomlega ef það eru
engin ytri áhrif svo sem breyting á
lýsingu eða hitastigi, og sömuleiðis
að það sé hægt að hafa áhrif á
þennan hring með ytra áreiti. Til
dæmis að halda fólki lengur vakandi
með því að hafa meiri birtu.
Tölvuskjárinn er dæmi um slíka
birtu. Tölvuskjáir voru hannaðir
til að herma eftir dagsbirtu, það er
sniðugt þegar við vinnum á daginn
en verra þegar erum að hangsa í
tölvunni um kvöldið. F.lux er sniðugt
forrit sem breytir lýsingunni á
skjánum út frá birtunni hjá þér. Það
þýðir að yfir miðjan daginn er hann
blár og bjartur en seinna á kvöldin
verður hann rauðari og mýkri.
Það þýðir að þú getur horft á þáttinn
þinn áður en þú ferð að sofa án
þess að vera stjarfur í augunum yfir
þessum bláa bjarta bjarma seint á
kvöldin og svo ekki ná að sofna.
Bergur er fyrrverandi
frjálsíþróttakappi
og starfar sem ÍAK
einkaþjálfari hjá Reebok
Fitness. Kynntu þér
málið nánar á www.
facebook.com/baeting
BÆTINGARÁÐ BERGS
Eyþór Ingi -
Ég á líf
Lagði ég af stað í það langa ferðalag
ég áfram gekk í villu eirðarlaus
Hugsaði ekki um neitt,
ekki fram á næsta dag
Einveru og friðsemdina kaus
Ég á líf, ég á líf
yfir erfiðleika svíf
Ég á líf, ég á líf vegna þín
Þegar móti mér blæs
yfir fjöllin há ég klíf
Ég á líf, ég á líf, ég á líf
-------------------------------------------
I left it a long journey
I walked forward error restless
Was not thinking about anything,
not until the next day
Solitude and serenity chose
I have a life, I have a life
the difficulties drift
I have a life, I’m alive because of you
When I receive blows
Mountain high I climb
I have a life, I’m living, I’m living
Takk, Google Translate
22 MONITOR FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
EINTÓM ÞVÆLA
Bangsinn Brynjar, hálfbróðir Bingó Bjössa, hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir að sumarið gekk í garð.
Í hvaða fjar-
lægð hættir
maður að sjá
Jörðina ber-
um augum?
Þær reikistjörnur sem eru
sýnilegar með berum augum
frá Jörðu eru Merkúríus, Venus,
Mars, Júpíter og Satúrnus. Til
að reikistjarna sjáist ekki með
berum augum frá Jörðinni þarf
maður að fara til Úranusar sem
er í u.þ.b. 2875 milljón km fjar-
lægð frá sól. Samt er örugglega
nóg að fara eitthvert á milli
Júpíters og Satúrnusar til að
sjá ekki Jörðina berum augum.
Við sjáum að vísu Júpíter og
Satúrnus en jörðin sést samt
líklega ekki þaðan því þær eru
mun stærri en Jörðin.
VÍSINDAVEFURINN
Jólajeppi
Til eru mörg orð yfir einstaklinga
sem eru bara ekki með þetta.
Rasshaus hefur verið mikið notað en nú er orðið
jólajeppi að koma sterkt inn á frasamarkaðinn.
Dæmi: „Alberti Inga var bara hent útaf B5
um helgina fyrir dólgslæti.“
„Gat nú verið. Þvílíkur jólajeppi þessi gæi.“
FRASAKÓNGARNIR
Í hverri viku munu frasakóngarnir Brynjar Ásgeir og Viktor
Örn kenna okkur nýjustu frasana og orðin svo við getum
verið fersk í umræðunni hverju sinni.
VIKTOR OG BRYNJAR ERU
ALLTAF SLAKIR Á KANTI
leiðir til að klúðra
sumarvinnunni þinni
Sumarið er tíminn til þess að fara með nýfengna hæfileika úr námi út
á vinnumarkaðinn og klúðra svo öllu
með því að vera með stæla.
1 SVARAÐU ÖLLUM SPURNINGUM MEÐ “MAMMA’ÐÍN”. Prófaðu
mismunandi raddir, tónhæðir og hraða
í tilsvörum þínum.
2 KLÆDDU ÞIG Á ÓVIÐEIGANDI HÁTT. Mættu á hælum í alla útivinnu
(hvors kyns sem þú ert) og rokkaðu
ruslakarlalúkkið á skrifstofunni.
3 INSTAGRAMMAÐU ÞIG REGLULEGA VIÐ AÐ GERA ÓVIÐEIGANDI HLUTI
OG HASHTAGGAÐU VINNUSTAÐINN
ÞINN. Hvort sem þú ert á djamminu,
klósettinu eða bara í heimsókn hjá Kim
Jong Un vini þínum þá þurfa allir að vita
af því og líka hvar þú vinnur.
4GRÁTTU HÁTT OG MEÐ TILÞRIFUM MINNST EINU SINNI Á DAG. Þú
getur til dæmis grátið af því einhyrning-
ar eru ekki til í alvörunni eða vegna þess
að þú saknar Margaret Thatcher.
5 SLÁÐU UM ÞIG MEÐ FRÆGUM VINI Í ÞAÐ MINNSTA ÞRISVAR Á DAG.
Monitor mælir með Þórunni Antoníu,
Gísla Marteini eða Ásgeiri Kolbeins.
6SKREYTTU VINNUSTAÐINN ÞINN. VELDU NÝTT ÞEMA Í HVERRI VIKU
OG HAFÐU ÞAU SEM FURÐULEGUST.
Monitor mælir með hvítlauksþema,
Cher-þema og hamstraþema.
7BREYTTU STILLINGUM. T.d. á skrifborðsstólum, Facebook, símum
og bara öllum öðrum tækjum sem þú
kemst í hjá vinnufélögum þínum.
8SNÝTTU ÞÉR. Oft, mikið og hátt. Boraðu síðan líka smá í nefið og
safnaðu því á vegg.
9KLIPPTU ÞIG INN Á MYNDIR AF SIGMUNDI DAVÍÐ OG BJARNA BEN
OG HENGDU ÞÆR UPP Á VINNUSTAÐN-
UM. Talaðu um þá sem „strákana“.
10 VELDU ÞÉR EINN VINNUFÉLAGA TIL AÐ STARA Á. Ef hann spyr út
í hegðun þína skaltu snúa þér rólega við
án þess að svara og ganga í burtu.
í belg & biðu
ÍSL-ENSKUR TEXTI
Hvernig
haldið þið
að mér líði?
10
Ferlega er heitt
að vera í svona
svörtu í sólinni.
Já, það segir
þú satt.
Tístland #12stig
Guðný Hauksdóttir @Gvedny
Ok, horfði ekki á júró því ég var svo
upptekin við að búa mér til Twitter
aðgang og vera með ! #12stig
Loftbola @loftbola
Við skulum ekki gefa upp alla von strax,
við slógum jú í gegn á blaðamannafund-
inum. #þettaerbúið #12stig
Ásgeir Þórisson @asgeirdadi
Munurinn á milli Arsenal og Liverpool
#12stig #hehe #fotbolti
Stephen Casgrave @Steveninn
Heimurinn syrgir geimrapp svartfjalla-
lands. #rapollo13 #montenegro #12stig
Einar Matthías @BabuEMK
Atkvæðin frá geimstöðinni í Mír bárust
ekki í tæka tíð No more Svartfjallaland
#skandall #12stig
Pawel Bartoszek @pawelbartoszek
felix stendur sig vel, ekki búinn að und-
irstrika hvaða dauða sambandsríki hvert
land tilheyrði fyrir 30 árum... #12stig
Dögg Matthiasdottir @dewice
Note to self, ekki hoppa í kögurkjól
#12stig
Ívar Guðmundsson @ivargud
Ótrúlegt hvað Bonnie Tyler hefur haldið
útlitinu án lýtalækna!, hehe #12stig
Dabbi vals @Dabbivals
Bretland sendir út dúett með Bonnie
Tyler og Photoshop #12stig
Sveinn Gudmarsson @svennigudmars
Þýska lagið í ár hljómar NÁKVÆMLEGA
eins og Euphoria! Er þetta eitthvað
grín?! #12stig
Petur Jonsson @senordonpedro
Ég finn fyrir kynþokkafordómum gegn
HvítaRússlandsatriðinu. Höldum hatrinu
í burtu. #12stig
Bragi Valdimar @BragiValdimar
Úps. Pissaði á mig af spenningi. #12stig
Baldvin Bergsson @baldvinthor
Ætla að stela geimhjálmi baksviðs. Ekki
eins og það þurfi að nota þá aftur á
laugardag. #12stig
margrét erla maack @mokkilitli
ég skiiiiil ekki af hverju Never ever let
you go vann ekki á sínum tíma. #12stig
#danmörk
Vera Knutsdottir @knutsdottir
Greinilegt að kynnirinn hefur miskilið
eitthvað reglurnar #hjoladivinnuna
#12stig
frettir @frettir
Búinn að downloada öllum lögunum úr
forkeppni kvöldsins af því að þau voru
svo góð. Er tungan í mér svört? #12stig
Jóhannes Þór @johannesthor
Er þessi belgíski maður afkvæmi Biebers
og Frikka Dórs? #12stig
Steinunn Jónasdóttir @steinunnj
Fékk kynnirinn ekki memoið að
hafmeyjusnið er out? #12stig
Þórarinn Hjálmarsson @thorarinnh
Fyrst allir eru að fylgjast með #12stig
- Er að selja 3 árganga af Andrési Önd
blöðum, seljast hæstbjóðanda
Pawel Bartoszek @pawelbartoszek
sænskur barnakór, einmitt það sem
þurfti til að ég myndi elska euforia en
meira #12stig
Baldvin Bergsson @baldvinthor
Einn blaðamaður klappaði eftir Monten-
egro. Hann er frá Montenegro. #12stig
margrét erla maack @mokkilitli
af hverju eru dönsku strákarnir ekki
ótrúlega sætir? #fallegustumenníheimi
#12stig
Venju samkvæmt var mikið líf og fjör á Twitter þegar fyrri umferð forkeppni Eurovision
fór fram. Monitor tók saman nokkur góð tíst úr Tístlandi sem merkt voru með #12stig.