Monitor - 27.06.2013, Blaðsíða 3
Leitarvélin Google er magnað fyrirbæri en trúlega segi ég engum fréttir þegar ég fleygi
því fram. Langt er liðið síðan undirritaður varð
allt að því líkamlega háður leitarvélinni og ef
ég hefði fengið 50 aura fyrir hvert skipti sem
ég hef „gúglað“ eitthvað um ævina væri ég
múraður maður.
Það að viðurkennt sé að tala um að „gúgla“ þetta eða „gúgla“ hitt segir ýmislegt um
hvernig sess fyrirbærið hefur skipað sér í
daglegu lífi okkar. Orðið er meira að segja að
finna í íslenskri orðabók.
Ég á sex ára frænda sem er bæði í senn forvitinn og fróður gaur. Ég hef gaman af því
að spjalla við hann um heimspekileg og menn-
ingarleg málefni og um daginn bárust samræð-
ur okkar að laginu Gangnam Style. Í kjölfarið
bað frændi minn mig um að gúgla lagið en
þar sem ég er takmarkaður áhugamaður um
Gangnam Style beindi ég umræðunni frekar að
Google og spurði frænda minn hvort hann vissi
alveg hvað það væri eiginlega. Hann svaraði án
þess að hika: „Já, það er svona eins og YouTube,
nema bara maður skrifar texta.“ Það var
eitthvað við það að hann skyldi nota
YouTube til þess að skilgreina Google sem
mér fannst svo stórkostlegt. Drengurinn er
sannarlega fæddur á tækniöld.
Skömmu seinna átti þessi sami strákur í samræðum við
ömmu sína þar sem hann spurði
hvort amma hans tryði á Jesú.
Amman sagðist viss um að
hann hefði verið til á sínum
tíma en guttanum fannst það
ekki nægilega skýrt svar og
spurði: „Getum við ekki bara
gúglað það?“
Það er skemmtilegt að ímynda sér - eða öllu
heldur trúa því að hægt sé að
gúgla allt og hver veit nema að
svoleiðis verði það einn daginn.
Hafið þið gúglandi gott,
Einar Lövdahl
FYRIR ÍSBÍLTÚRINN
Ísbúðin Valdís hóf starfsemi sína í
byrjun mánaðar og hefur svo sann-
arlega hitt í mark hjá íselskandi
Íslendingum.
Ísbúðin er
staðsett á
Grandagarði
og hentar
því vel
fyrir ísbíltúr í
kvöldsólinni
úti á Gróttu.
Valdís leggur upp úr ferskum
kúluís og vill ritstjórn Monitor hrósa
aðstandendum Valdísar sérstaklega
fyrir ljúffengu vöffluformin sem
bökuð eru á staðnum.
FYRIR DEKURDÝR
Fish Spa Iceland við Hverfisgötu
býður upp á 20 mínútna meðferð
með svokölluðum Garra Rufa-fiskar.
Neytendur leggja bera fætur sína í
fiskabúr og fiskarnir narta í fæturna
sem ætlað er að kalla fram líkam-
lega sem og andlega vellíðan. Þar að
auki fjarlægir nart fiskanna dauða
húð og eykur blóðstreymi í fótleggj-
um. Sem fyrr segir er Fish Spa til
húsa á Hverfisgötu, nánar tiltekið
á horni hennar og Barónsstígs og
skorar Monitor á forvitna lesendur
sína að prófa dálítið fótanart.
Þeir sem skella sér á ATP um helgina eru hvattir til að
merkja Instagram-myndir með #monitormynd.
fyrst&fremst
3FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013 MONITOR
MONITOR@MONITOR.IS
Ritstjóri: Jón Ragnar Jónsson
(jonragnar@monitor.is) Umsjón:
Einar Lövdahl (einar@monitor.is)
Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson
(hilmar@monitor.is) Blaðamenn: Lísa
Hafliðadóttir (lisa@monitor.is) Anna
Marsibil Clausen (annamarsy@monitor.
is Umbrot: Monitorstaðir Auglýsingar:
Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.
is) Forsíða: Styrmir Kári (styrmirkari@
mbl.is) Myndvinnsla: Ingólfur
Guðmundsson Útgefandi: Árvakur
Prentun: Landsprent Sími: 569 1136
VIKAN
www.facebook.com/monitorbladid
MÆLIR MEÐ...
GA MONITOR EFST Í HUGA MONITOR EFST Í HUGA MONITOR EFS
Er hægt að gúgla allt?
B
L
A
Ð
IÐ
Í
T
Ö
L
U
M ár eru liðin síðan Mugison spilaði á
ATP í Bretlandi5
21
árs var Arnór Dan
þegar hann flutti
heim eftir 16 ára
dvöl í Danmörku
-blog er kynnt til
leiks í Stílnum
mörk hefur Elín
Metta skorað í
Pepsi-deildinni í ár
Marta María
Jónasdóttir
Nú kemur sér
vel að eiga
heimasaum-
aðan glæran
plastjakka ... Hjálpi mér hvað ég
er heppin. 26. júní kl. 8:49
„Það er oft þannig með ATP-hátíðirnar að ákveðnar hljómsveitir eða
tónlistarmenn eru einskonar gestgjafar. Á hátíðinni sem ég spilaði
á voru það Mike Patton og Melvins,“ segir Mugison um tildrög þess
að hann kom fram á All Tomorrows Parties-hátíðinni í Bretlandi árið
2008. ATP fer fram um helgina á Ásbrú en það er nafnið sem gamla
herstöðin við Keflavíkurflugvöll hefur hlotið. Hátíðin er haldin víða
um heim ár hvert en hér á landi verður enginn eiginlegur gestgjafi.
Mugison er meðal þeirra sem fram koma á hátíðinni en dagskráin
skartar einvalaliði innlendra og erlendra listamanna.
„Ég er mjög spenntur fyrir að sjá Nick Cave. Ég elska fiðluleikarann
hans, Warren Ellis, það er einhver mesti töffari sem ég hef nokk-
urn tímann séð á sviði. Það er einhver Jimi Hendrix-fílingur yfir
honum,“ segir Mugison. „Manni finnst fiðlan svo viðkvæm svo það
er alveg klikkað að sjá þennan mann sem er loðinn eins og górilla
tengja þetta í gítarpedala og vera bara sexý að spila á þetta. Ég hef
séð hann nokkrum sinnum og spyr mig í hvert skipti af hverju ég
sé ekki svona töff,“ segir Mugison og bætir því við að hann hlakki
einnig sérstaklega til að sjá Múm.
Mugison segist síðast hafa farið á herstöðvarsvæðið með afa sín-
um á 9. áratugnum. „Hann vann þarna uppi á velli í fjörutíu ár en ég
hef aldrei komið þarna eftir að þetta varð svona listamannanýlenda
en ég reikna fastlega með því að þetta verði bara snilld.“
Siglir í kringum landið
Það er nóg að gera hjá Mugison því í næstu viku hyggst hann sigla
hringinn í kringum landið ásamt fleira tónlistarfólki. „Áhöfnin á
Húna er alveg klikkað verkefni. Við spilum á 16 stöðum víðsvegar
um landið og alltaf á bryggjum og í fjörum,“ segir Mugison. Verk-
efnið er til styrktar Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu sem selur inn
á tónleikana hverju sinni en einnig mun Ríkissjónvarpið sýna sjón-
varpsþætti um ævintýri áhafnarinnar. „Þetta er ekta hugmynd sem
maður talar um en svo klárar maður bjórinn, fer að sofa og gleymir
þessu. Hann Jón Þór sem stendur á bakvið þetta er hinsvegar svona
galdrakarl sem kemur hlutunum bara í framkvæmd.“
Mugison segist blessunarlega ekki hafa þurft á hjálp björgunar-
sveitanna að halda. „Ég bý á Súðavík og síðasta vetur vorum við
föst inni allavega fimm sinnum í nokkra daga í senn,“ segir hann.
„Maður er oft alveg með hjartað í buxunum ef einhver skyldi meiða
sig og þurfa að fara upp á spítala. Þá er gott að vita af þessu frábæra
fólki sem er til í að leggja sig í hættu við að bjarga öðrum.“
210
„Spyr mig af hverju
ég sé ekki svona töff“
Á FACEBOOK
Simmi Vill
Biddu, var ekki
Þórudagurinn i
gær?
25. júní kl. 14:14
MUGISON
Á 30 SEK.
Fyrstu sex: 040976.
Í ísbúðinni fæ ég: Í
magann.
Uppáhalds teikni-
myndapersóna: Kung
Fu Panda.
Hvenær varstu síðast
alveg skegglaus:
Síðustu jól líklega, og
þá leit ég út eins og
handbolti.
Uppáhaldsmatur:
Steiktur steinbítur.
Jón Ólafsson
Axl Rose
er byrjaður
að vinna á
skrifstofu. Hann
kallast nú Excel
Rose. 23. júní kl. 9:48
Bragi Valdimar
Skúlason
Allir að smessa
uppáhalds
Jóninn sinn í
nótt.
23. júní kl. 9:48
María Birta
Lebron <3
21. júní kl. 2:51
11
M
yn
d/
Kr
is
tin
n
Mugison kemur fram á ATP Iceland um helgina en hann
hlakkar mest til að sjá fiðluleikara Nick Cave munda bogann
Agnes Björt
Andradóttir Að
vera nakin en
samt í sumarkjól
er geggjuð
tilfinning.
26. júní kl. 19:09