Monitor - 27.06.2013, Síða 6

Monitor - 27.06.2013, Síða 6
6 MONITOR FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013 Lísa Hafliðadóttir lisa@monitor.is stíllinn Stíllinn hélt ferð sinni áfram frá síðustu viku og kíkti í fleiri vinsælar fataverslanir og úrvalið sem þær bjóða uppá í sumartískunni í ár. Derhúfur og print áberandi í sumartískunni Hvað er mest áberandi í sumartískunni í ár? Það sem er mest áberandi í tískunni í sumar er að mínu mati sportleg tíska, til dæmis strigaskór, netabolir, íþróttabolir og derhúfur. Síðan er mikið um print, bæði í kjólum, jökkum, bolum og gallabuxum. Hvítt er líka alltaf mjög sumarlegt og skærir litir. Hvað einkennir úrvalið í búðinni? Við eigum mikið úrval af printuðum gallabuxum, en það sem einkennir okkur kannski einna helst er skemmtileg blanda af alls konar merkjum. Við erum bæði með sportlega tísku, rokkaralega og svo rómantískari og hippalegri. Hver er vinsælasta flíkin í búðinni þessa dagana? Vinsælasta flíkin þessa dagana eru klárlega buxurnar frá nýja danska merkinu okkar Second One - koma í fullt af printum og eru allar á 9.995 kr. og svo netabolir í svörtu og hvítu. Hvaða flík er algjörlega ómissandi í sumar? Ómiss- andi í sumar eru printaðar gallabuxur, hvítar flíkur, speglasólgleraugu og góðir strigaskór. GALLERÍ 17 Stíllinn ræddi við Hildi Ragnarsdóttur, bloggara og verslunarstjóra Gallerí 17 Hvað er mest áberandi í sumartískunni í ár? Það er eiginlega bara allt leyfilegt í tískunni núna. En það sem er svona mest áberandi er „sporty“ klæðnaðurinn. Skater-stutt pils, strigaskór og stuttir „sporty“ toppar. Það má sjást í naflann, en það var fáránlegt fyrir nokkrum árum. Gallasmekkbuxur, húfur, derhúfur og skrautlegir kimono eru einnig mjög áberandi. Hvað einkennir úrvalið í búðinni? Við erum með rosalega mikið af allskonar dóti í búðinni hjá okkur. Leggjum áherslu að hafa mikið af gallastuttbuxum, kjólum, skarti og sjiffoni. Reynum að hafa eins mikið úrval af fötum hjá okkur fyrir alla aldurshópa og núna er að sjálfsögðu sumar svo við erum með sumarlegar flíkur. Hver er vinsælasta flíkin í búðinni þessa dagana? Levis-gallastuttbuxurnar okkar eru án efa vinsælastar. Maður verður að eiga allaveganna eitt stykki af svoleiðis. Ég á fjórar í misjöfnum litum. Mæli með að eiga fjórar. Hvaða flík er algjörlega ómissandi í sumar? Ég segi einhver fáránlega fallegur kimono. Annaðhvort stutt eða sítt. Passar við allt og er svo fallegt og fínt. SPÚÚTNIK Stíllinn ræddi við Rakeli Unni Thorla- cius, verslunarstjóra Spúútnik Gallastuttbuxur vinsælastar Bland af allskonar merkjum

x

Monitor

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.