Monitor - 27.06.2013, Blaðsíða 6
6 MONITOR FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
Lísa Hafliðadóttir
lisa@monitor.is
stíllinn
Stíllinn hélt ferð sinni áfram frá síðustu viku og kíkti í fleiri vinsælar
fataverslanir og úrvalið sem þær bjóða uppá í sumartískunni í ár.
Derhúfur og print
áberandi í sumartískunni
Hvað er mest áberandi í sumartískunni í ár? Það sem
er mest áberandi í tískunni í sumar er að mínu mati
sportleg tíska, til dæmis strigaskór, netabolir, íþróttabolir
og derhúfur. Síðan er mikið um print, bæði í kjólum,
jökkum, bolum og gallabuxum. Hvítt er líka alltaf mjög
sumarlegt og skærir litir.
Hvað einkennir úrvalið í búðinni? Við eigum mikið
úrval af printuðum gallabuxum, en það sem einkennir
okkur kannski einna helst er skemmtileg blanda af alls
konar merkjum. Við erum bæði með sportlega tísku,
rokkaralega og svo rómantískari og hippalegri.
Hver er vinsælasta flíkin í búðinni þessa dagana?
Vinsælasta flíkin þessa dagana eru klárlega buxurnar
frá nýja danska merkinu okkar Second One - koma í
fullt af printum og eru allar á 9.995 kr. og svo netabolir í
svörtu og hvítu.
Hvaða flík er algjörlega ómissandi í sumar? Ómiss-
andi í sumar eru printaðar gallabuxur, hvítar flíkur,
speglasólgleraugu og góðir strigaskór.
GALLERÍ 17
Stíllinn ræddi við Hildi
Ragnarsdóttur, bloggara og
verslunarstjóra Gallerí 17
Hvað er mest áberandi í sumartískunni í ár?
Það er eiginlega bara allt leyfilegt í tískunni
núna. En það sem er svona mest áberandi
er „sporty“ klæðnaðurinn. Skater-stutt pils,
strigaskór og stuttir „sporty“ toppar. Það má
sjást í naflann, en það var fáránlegt fyrir
nokkrum árum. Gallasmekkbuxur, húfur,
derhúfur og skrautlegir kimono eru einnig
mjög áberandi.
Hvað einkennir úrvalið í búðinni? Við
erum með rosalega mikið af allskonar dóti í
búðinni hjá okkur. Leggjum áherslu að hafa
mikið af gallastuttbuxum, kjólum, skarti og
sjiffoni. Reynum að hafa eins mikið úrval
af fötum hjá okkur fyrir alla aldurshópa og
núna er að sjálfsögðu sumar svo við erum
með sumarlegar flíkur.
Hver er vinsælasta flíkin í búðinni þessa
dagana? Levis-gallastuttbuxurnar okkar eru
án efa vinsælastar. Maður verður að eiga
allaveganna eitt stykki af svoleiðis. Ég á
fjórar í misjöfnum litum. Mæli með að eiga
fjórar.
Hvaða flík er algjörlega ómissandi í sumar?
Ég segi einhver fáránlega fallegur kimono.
Annaðhvort stutt eða sítt. Passar við allt og
er svo fallegt og fínt.
SPÚÚTNIK
Stíllinn ræddi við
Rakeli Unni Thorla-
cius, verslunarstjóra
Spúútnik
Gallastuttbuxur
vinsælastar
Bland af
allskonar
merkjum