Monitor - 27.06.2013, Side 14

Monitor - 27.06.2013, Side 14
SMÁA LETRIÐ 14 MONITOR FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013 við færum að semja fyrir næstu Fresco-plötu. Við fórum síðan í kynningartúr þar sem maður fékk að syngja á sjúklega flottum stöðum með sinfóníuhljómsveit og það var ólýsanlegt. Þið eigið líka saman lag sem kemur í lok hvers þáttar af Broadchurch, sem slegið hafa í gegn í Englandi og verða sýndir í bandarísku sjónvarpi í haust. Já, Óli var fenginn í að semja tónlist fyrir þessa þætti sem eru geðveikir. Hann bauð mér að semja sönginn fyrir lagið og það gekk allt saman upp. Ég fékk reyndar ekki að semja textann, það var pínu leiðinlegt, en söngurinn minn kemur allavega alltaf í lok hvers þáttar. Þetta Óla- ferli hefur sem sagt verið algjört ævintýri og það hefur líka gefið mér frábær tækifæri og ég hef tekið eftir því á Facebook að Agent Fresco hefur eignast fleiri aðdáendur úti í heimi í gegnum þetta verkefni, sem er snilld. Sérð þú fyrir þér að framtíðin beri í skauti sér fleiri verkefni fyrir þig sem sólósöngvara? Ég sækist alltaf eftir áskorunum. Ég hef fengið mörg skemmtileg og óskemmtileg tilboð að undanförnu og ég stekk á þau skemmtilegu ef ég hef tíma. Þetta er samt mjög skýrt hjá mér, Agent Fresco er númer eitt hjá mér. Ég hef meira að segja þurft að taka það fram við fólkið sem stendur mér næst af því að tónlistin er lífið mitt. Talandi um áskoranir, þá sendi ég umsókn á Pegasus þegar það var verið að leita að sköllóttum Íslendingum fyrir Game of Thrones en hef ekki fengið svar. Ég elska Game of Thrones þannig að ég er sjúklega svekktur að hafa ekki fengið neitt svar. Ég vona bara innilega að þeir hafi þá fundið einhverja frábæra sköllótta gaura hérna á Íslandi, annars verð ég brjálaður. Talandi um áskoranir, þá sendi ég umsókn á Pegasus þegar það var verið að leita að sköllóttum Íslending- um fyrir Game of Thrones en hef ekki fengið svar. KVIKMYNDIR Myndin sem ég get horft á aftur og aftur: Wak- ing Life, ég held að ég hafi séð hana 15 sinnum. Myndin sem ég væli yfir: Vegna þess að ég missti pabba minn tengi ég mjög við myndir sem snúast um samband föður og sonar og græt yfir þeim, eins og til dæmis The Road og Big Fish. Svo verð ég að nefna Engla alheimsins. Myndin sem ég grenja úr hlátri yfir: This Is Spinal Tap. Uppáhaldsmyndin mín í æsku: Þegar ég var lítill þá langaði mig að vera Agent Molder í X-Files. Versta mynd sem ég hef séð: The Room, en hún er samt líka best. TÓNLIST Lagið í uppáhaldi þessa stundina: The Shame með The Blood Brothers. Lagið sem kemur mér alltaf í gott skap: Sjón- varpsþáttarstefið í Benny Hill, það er einkahúmor hjá mér og vini mínum í Danmörku. Lagið sem ég fíla í laumi: Ég „blasta“ öllu, en en ef ég þarf að nefna eitthvað þá er það bara eitthvað nu metal sem ég hef hlustað á frá því að ég var yngri. Lagið sem ég syng í karókí: Maniac með Michael Sembello og svo líka Take on Me með A-ha af því að ég er með dansspor við bæði lögin. Nostalgíulagið: Drive með The Cars. FORM OG FÆÐI Uppáhaldsmatur: Kebab. Maturinn sem ég fæ mér þegar ég ætla að taka mig á: Borða eins en hreyfi mig meira. Versti matur sem ég hef smakkað: Er alæta, bring it on! Líkamsræktin mín: Fótbolti (KF Mjöðm) og hot yoga. Stoltasta augnablikið á íþróttaferlinum mínum: Skoraði þrennu í bikarúrslitum með liðinu mínu Sorø Freyja í Danmörku.

x

Monitor

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.