Monitor - 27.06.2013, Side 16
16 MONITOR FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
Vita hvar þeir
eru getnir
M
yn
d/
Ár
ni
Sæ
be
rg
Í upphafi vikunnar birtist nýjasti
Vinsældalisti Rásar 2 þar sem
útgáfa ykkar Kaleo-manna af Vori í
Vaglaskógi trónir á toppnum. Kom
þetta þér í opna skjöldu?
Já, þetta kom mjög skemmtilega á
óvart. Það er að sjálfsögðu ánægju-
legt að þetta veki athygli og fólk á
öllum aldri virðist hafa skoðanir á
þessu, líklega vegna þess hvaða lag
þetta er, sem er mjög skemmtilegt.
Eruð þið forfallnir Villa Vill-menn
eða hvers vegna ákváðuð þið að
taka þetta fræga lag?
Ég er bara fyrst og fremst virkilega
hrifinn af þessu lagi og hef spilað
það í gegnum tíðina. Ég útsetti þessa
útgáfu fyrir svona ári og ber mikla
virðingu fyrir Jónasi Jónassyni, sem
samdi lagið, og Kristjáni frá Djúpa-
læk, sem samdi þennan fallega
texta. Auðvitað gef ég samt Villa líka
fullt kredit. Lagið er hrikalega fallegt
og má spila á margan hátt. Eins
og við segjum, gott lag má spila á
hvaða hátt sem er.
Nú er myndband í bígerð við lagið,
ekki satt?
Jú, öll síðastliðin helgi fór í að
taka upp myndband sem verður
frumsýnt á Gamla Gauknum á
föstudagskvöld. Við tókum upp alveg
fram undir morgna helgarinnar í
samstarfi við félaga okkar, Baldvin
Vernharðsson, sem var að klára
Kvikmyndaskólann, og Hörð sem
leikstýrir myndbandinu. Við fengum
leikara til liðs við okkur og það
unnu þetta allir af góðmennsku
og hjálpsemi og kunnum við þeim
bestu þakkir fyrir. Það verður að fá
að koma í ljós hvernig myndband
þetta er, en þetta verður einhvers
konar ástarsaga í íslenskri náttúru.
Fyrr á árinu senduð þið frá ykkur
lagið Rock n‘ Roller sem einnig var
leikið í útvarpi. Er plata á teikni-
borðinu?
Við stefnum á að gefa út EP-plötu
í ágúst. Við tökum plötuna upp hjá
Arnari Guðjónssyni úr Leaves og það
gengur svo sem ekkert alltof hratt
þar sem við fjármögnum hana sjálfir
og allt slíkt. Við öflum fjár með því
að spila jafnóðum en með aukinni
athygli og fleiri giggum gengur þetta
hraðar fyrir sig.
Tónlist ykkar virðist innblásin af
svokölluðu gullaldarrokki. Er það
hluti af dálæti þínu á menningu
fyrri tíma að vera ekki á Facebook?
Ég veit ekki alveg hvernig ég á
að svara þessu (hlær). Þó svo að
Facebook hafi vissulega sína kosti þá
nenni ég bara ekki að gefa mér tíma
í að vera hluti af þessari netmenn-
ingu, þetta höfðar bara ekki til mín.
En hvernig gengur að koma tónlist
sinni á framfæri án þess að vera á
Facebook?
Hljómsveitin er nú með Facebook-
síðu og ég læt þar við sitja. Ég kem
reyndar sem minnst að henni en
við notum hana auðvitað töluvert
til að auglýsa hvar við erum að spila
og svo framvegis. Þetta hefur ekki
bitnað á mér eða okkur til þessa að
minnsta kosti.
Hvað þýðir „Kaleo“?
Þetta er karlmannsnafn frá Hava-
íeyjum sem þýðir víst líka „hljóð“ á
havaísku. Í því samhengi má nefna
að Davíð, trommuleikarinn okkar, er
getinn á Havaíeyjum. Úr því að ég er
að nefna það, þá má fljóta með að ég
er getinn uppi á jökli.
Fer sumarið bara í að klára
plötuna eða verður nægur tími fyrir
tónleikaspilerí?
Hjólin eru skyndilega farin að
snúast svolítið hratt hjá okkur, það
er auðvitað frábært. Sumarið fer
vissulega í að klára plötuna, það á
að vera í forgangi, en annars reynum
við að vera sem duglegastir að spila.
Við erum að spila á Gamla Gauknum
á laugardaginn ásamt Vintage
Caravan og svo spilum við hátíðinni
Ólæti á Ólafsfirði.
JÖKULL Á
30 SEKÚNDUM
Fyrstu sex: 200390.
Uppáhaldshljóðfæri: Ég
spila á Fender Telecaster
en mig dreymir um að
eignast Gibson ES 335.
Uppáhaldstónlistarmaður:
Paul McCartney, ef ég
þyrfti að velja einn.
Draumatónleikastaðurinn:
Maður hefði ekkert á móti
því að spila á Glastonbury.
Besta plata íslenskrar
tónlistarsögu: Ágætis
byrjun með Sigur Rós.
Lagið Vor í Vaglaskógi í nýrri útsetningu hljómsveitarinnar
Kaleo hefur ómað í gríð og erg í útvarpi að undanförnu.
Monitor tók púlsinn á Jökli Júlíussyni söngvara.