Monitor - 27.06.2013, Page 19
19FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013 Monitor
Eurotrip
Sumarið 2012 ferðuð-
umst við um Evrópu að
mestu leyti í svokölluðum
tónleikaferðalagslang-
ferðabílum (e. tour bus).
Það er eiginlega ómögu-
legt að lýsa sumrinu í
nokkrum orðum en það
sem stendur upp úr eru
eflaust einkaþjónarnir í
Marokkó, danseftirpartý á
Spáni með Páli Óskars og
Stuðmannaþema, útilega
í tourbus í Pýraneafjöllun-
um, tónleikar í hringleika-
húsi í Nimes í Frakklandi
og Hróarskelda sem var
mögnuð upplifun, 90.000
manns, hellirigning, sól og
flugeldar.
Vetrartúr
Síðastliðinn vetur var sá
kaldasti í París í 100 ár. Það
hefði verið ágætt að vita það
fyrirfram þar sem við sungum
ferna tónleika í sirkustjaldi.
Búningsherbergin okkar
voru hjólhýsi sirkusfólksins
og þar var að finna alls kyns
misáhugaverða hluti eins
og geitaskít og hárbrúska.
Síðustu tvennir tónleikarnir
okkar voru í hefðbundnara
tónleikahúsnæði, Le Zenith.
Þar var Sigur Rós einnig með
tónleika sem við kíktum á.
Við tók svo eftirpartý þar
sem hápunktur kvöldsins var
án efa þegar Jónsi rasskellti
hálfan kórinn með risasvöxn-
um plasthamar.
California dreaming...
Úr kuldanum í París og kuldanum á Íslandi með tilheyrandi vorprófum
og veseni var himneskt að komast til San Francisco núna í maí. Við heim-
sóttum vin okkar Zuckerberg í höfuðstöðvar hans, kíktum í hippahverfið og
hommahverfið áður en við flugum yfir til borgar englanna. Þar tóku Robert
Pattinson og Katy Perry á móti okkur en slúðurblöðin í Hollywood túlkuðu
það þannig að þar sem meira en helmingurinn kórmeðlima er ljóshærður
sé það víst nýja týpan hans. Það stóð ekki orð um tónleikana. Eftir þrenna
tónleika í Hollywood Palladium lá leið okkar á einn merkasta tónleikastað í
heimi: Hollywood Bowl.
Nú tekur við stutt pása á Íslandi áður en lokahnykkur Biophilia-túrsins
hefst. Þar ætlum við okkur m.a. að syngja á tónleikahátíðum í Ottawa,
Toronto og Chicago, fara í fjallgöngu og borða sushi í Tokyo auk þess sem
við munum syngja fyrir framan ca. 140.000 manns á Fuji Rock Festival. Það
verður að viðurkennast að það er frekar stórt stökk á þremur árum fyrir
litla dömukórinn Graduale Nobili. Við erum ótrúlega þakklátar fyrir þetta
tækifæri og munum búa að því það sem eftir er, það er nokkuð ljóst.
STÚLKURNAR HOPPUÐU
AF KÆTI Í HOLLYWOOD
ROBERT PATTISON DJAMMAÐI
MEÐ STELPUNUM Í L.A.
HÓPURINN BÆÐI FERÐAÐIST
OG SVAF Í RÚTUNNI GÓÐU
GRADUALE NOBILI KOM EINNIG FRAM Á SÓLÓTÓNLEIKUM
TROMMARA BJARKAR, MANU DELAGO