Monitor - 27.06.2013, Síða 22
Saga Richards Ku-
klinski hefur verið vel
skrásett en tvær bækur
og tvær heimildar-
myndir hafa komið út
sem segja sögu þessa
svæsna leigumorðingja.
Nú hefur bæst í hópinn
leikin kvikmynd um
afdrif fjölskylduföðurins
frá New Jersey, sem
stundaði iðju sínu af miklum
móði á austurströnd Bandaríkj-
anna. Það sem er merkilegast við
The Iceman er að hún er byggð á
sönnum atburðum og er það með
ólíkindum hversu lengi honum
tókst að stunda iðju sína án þess
að vera gómaður.
Kuklinski segist sjálfur hafa
myrt á milli 100 – 250 manns á
þeim rúmum tuttugu árum sem
hann var í bransanum og lagði
hann mikið upp úr fjölbreytni í
drápunum, en meðal þeirra tækja
og tóla sem hann notaði
má nefna skotvopn,
barefli, víra, blá-
sýru, eggvopn og
hendurnar.
Í aðalhlut-
verkið var
Michael
Shannon
fenginn í verkið en
hann á að mínu mati
stórleik sem illmennið
Kuklinski. Shannon
ferst ótrúlega vel úr
verki að leika annars
vegar elskulegan
fjölskylduföður og hins-
vegar miskunarlausan
morðingja og sýna svo
hvernig þessi tvö líf
tvinnast saman þegar á dregur.
Shannon er þó ekki einn á ferð
því stórstjörnulið leikara mannar
vaktina í The Iceman og ber þar
helst að nefna Winona Ryder,
Ray Liotta og Chris Evans, að
ógleymdum James Franco sem á
fína innkomu.
Sagan gerir Kuklinski góð skil
og veitir nokkra sýn í fortíð hans
og hvað stuðlaði að því að hann
varð að þeirri ófreskju sem raun
ber vitni. Af því efni sem ég hef
lesið og skoðað um hann þá
virðist sem leikstjóranum Ariel
Vromen hafi tekist vel til með að
koma sögunni frá sér á spenn-
andi og skilmerkilegan hátt.
Fyrir þá sem eru komnir með
aldur til mæli ég hiklaust með
henni en þeir sem eru viðkvæm-
ar sálir ættu að fara varlega
því hún verður
ansi óhugnanleg á
köflum.
Ískaldur ísmaður
K V I K M Y N D
THE ICEMAN
HJÁLMAR
KARLSSON
John Cale (Channing Tatum) er lögreglumaður sem sinnir þingvörslu
í alríkisþinghúsinu í Washington. Honum hefur verið neitað um
draumastarfið að gæta forseta Bandaríkjanna, James Sawyer (Jamie
Foxx). Hann vill ekki bregðast dóttur sinni og segja henni fréttirnar,
og hann fer því með hana í skoðunarferð um Hvíta húsið. Skyndilega
ræðst vel vopnuð sérsveit hryðjuverkamanna inn í Hvíta húsið og
tekur það á sitt vald. Stjórnsýsla landsins fer úr skorðum og tíminn er
á þrotum, og því verður Cale að taka á honum stóra sínum og bjarga
forsetanum, dóttur sinni og sjálfu landinu áður en það er um seinan.
skjámenning
„Hann er ekkert skrímsli. Hann er bara strákur eins og ég.”
Ikíngut (2000)
FRUMSÝNING HELGARINNAR
White House Down
Leikstjóri: Roland Emmerich.
Aðalhlutverk: Channing Tatum, Jamie
Foxx og Maggie Gyllenhaal.
Lengd: 137 mínútur.
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára.
Kvikmyndahús: Smárabíó, Háskólabíó,
Laugarásbíó og Borgarbíó.
22 MONITOR FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2013
VILTU
VINNA
MIÐA?
facebook.com/monitorbladid
Ein af skemmtilegri hasarhetjum Marvel-
fyrirtækisins er Deadpool, en hér er á
ferðinni spandexklæddur egóisti sem
vinnur fyrir sér sem málaliði og veit fátt
skemmtilegra en að höggva menn í herðar
niður með sverðum eða fylla þá af blýi úr
hinum ýmsu skotfærum sem hann ber.
Deadpool fær vandasamt verkefni upp
í hendurnar og þurfa leikmenn að stýra honum í
gegnum það. Á leið sinni talar hann bæði við sjálfan
sig og leikmennina og gerir mjög óhefðbundna hluti,
enda er Deadpool uppfullur af sjálfum sér og engum
öðrum. Hann er gjörsamlega óútreiknanlegur, fer
sínar eigin leiðir og gerir grín að öllum.
Spilun leiksins minnir bæði á Transformers- og
Spiderman-leikina sem hafa komið út síðustu árin,
enda er leikurinn gerður af High Moon Studios sem
gerðu fyrrnefnda leiki. Leikmenn geta barist við
óvinina í leiknum í návígi með sverðum og svo úr
fjarlægð með byssum. Oftar en ekki dugar bara að
hamra á alla takkana og vona það besta, en það getur
reyndar orðið svolítið leiðigjarnt þegar líður
á leikinn. Fyrir utan bardaga leiksins er bara
verið að labba og hoppa um og keyra þannig
söguþráðinn áfram. Þannig að spilunin er
í eðli sínu mjög einföld líkt og margir aðrir
þriðju persónu hasarleikir.
Grafíkin í Deadpool er ágæt, ekkert stórkost-
leg, það sama má segja um tónlist
leiksins. Talsetningin er hinsvegar ágæt
og nær persónan að skila húmornum
og ruglinu vel frá sér og hlær maður
nokkrum sinnum að vitleysunni.
Deadpool er leikur sem er uppfullur
af sjálfum sér. Hann spilar á mjög
öruggri línu, allt er eins og það á
að vera, engir sénsar teknir og lítið
um frumleika. Nokkrar X-Men-
persónur koma fram í leiknum, en
aðeins stuttlega og aðeins svo að
virðist sem Deadpool geti urðað
yfir þær og gert grín að þeim.
Tegund:
Hasarleikur
PEGI merking: 18+
Útgefandi:
Activision
Dómar:
6 af 10 – Gamespot
6 af 10 – IGN.com
6 af 10 – Official Xbox
Magazine
Deadpool
ÓLAFUR ÞÓR
JÓELSSON
TÖ LV U L E I K U R
Uppfullur af sjálfum sér