Morgunblaðið - 09.07.2013, Side 1
ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013
ÍÞRÓTTIR
Fyrirlesari Vésteinn Hafsteinsson leiðbeinir þjálfurum í mörgum íþróttagreinum um allan heim.
Langar til að deila reynslunni og þekkingunni á Íslandi. Guðmundur vildi fá hann til Löwen. 3
Íþróttir
mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lærmeiðsli Þóra B. Helgadóttir tognaði aftan í læri í
leik með Malmö fyrir tæpum mánuði.
EM2013
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu kom til Kalmar í Svíþjóð í gær
en þar mætir það Norðmönnum í
fyrsta leiknum í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins á fimmtudaginn. Sá leikur
hefst klukkan 16 að íslenskum tíma.
Liðið æfir tvisvar í dag og á fyrri æf-
ingunni ætti að koma í ljós hverjar
horfurnar verða á að þær Þóra B.
Helgadóttir markvörður og Sif Atla-
dóttir verði tilbúnar í fyrsta leikinn
gegn Noregi. Þær hafa báðar glímt við
meiðsli undanfarnar vikur og verið í
kapphlaupi við tímann um að ná að
spila í Kalmar.
Alls eru 23 leikmenn með í för en ein
breyting var gerð á hópnum fyrir
helgina þegar Katrín Ásbjörnsdóttir
heltist úr lestinni vegna meiðsla og
Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir var
valin í hennar stað.
Ísland leikur þrjá leiki í riðlakeppni
Evrópumótsins en hinir tveir fara fram
í Växjö, á heimavelli Öster. Þar spilar
liðið við Evrópumeistara Þýskalands á
sunnudaginn kemur og loks við Hol-
lendinga miðvikudaginn 17. júlí.
Tvö lið fara örugglega áfram úr
hverjum riðlanna þriggja og einnig tvö
af þeim þremur sem hafna í þriðja
sæti.
Morgunblaðið og mbl.is munu fjalla
mjög ítarlega um Evrópukeppnina og
viðamikil umfjöllun verður í blaðinu á
morgun.
Fyrstu æfingar í dag
Fyrsti leikur Íslands á EM kvenna í knattspyrnu í Kalmar á fimmtudaginn
Sif Atladóttir og Þóra B. Helgadóttir í kapphlaupi við tímann vegna meiðsla
Morgunblaðið/Eggert
Grindargliðnun Sif Atladóttir glímir við grindargliðnun
Tryggvi Guð-
mundsson er
hættur í Fylki
en Tryggvi og
stjórn knatt-
spyrnudeildar
Fylkis hafa kom-
ist að samkomu-
lagi um að rifta
samningi leik-
mannsins.
Í yfirlýsingu
frá Fylki sem birt er á vef stuðn-
ingsmanna Fylkis segir;
„Knattspyrnudeild Fylkis og
Tryggvi Guðmundsson hafa kom-
ist að samkomulagi um að rifta
samningi hans við félagið.
Knattspyrnudeild Fylkis þakkar
Tryggva fyrir hans framlag fyrir
klúbbinn og óskar honum velfarn-
aðar í komandi verkefnum.
Tryggvi þakkar einnig Fylki fyrir
samstarfið og vonar að félagið
muni rétta úr kútnum það sem eft-
ir er af tímabilinu. Fyrir hönd
knattspyrnudeildar Fylkis, Ásgeir
Ásgeirsson, formaður.“
Tryggvi gekk í raðir Árbæjar-
liðsins í vetur. Hann kom við sögu
í 9 leikjum Fylkismanna í Pepsi-
deildinni í sumar og skoraði í
þeim tvö mörk. Á undanförnum
vikum hefur Tryggvi þurft að
sætta sig við að sitja töluvert á
bekknum og það fór illa í þennan
mikla keppnismann sem getur nú
leitað sér að nýju liði en opnað
verður fyrir félagaskipti eftir
viku.
Tryggvi lék sinn síðasta leik
með Fylkismönnum í gær þegar
þeir töpuðu fyrir Stjörnumönnum,
3:2, í framlengdum leik. Tryggvi
var í byrjunarliðinu en var tekinn
af velli á 75. mínútu þegar Árbæj-
arliðið var 2:0 yfir.
Tryggvi náði þeim áfanga á
dögunum að komast í hóp tíu
leikjahæstu leikmanna í efstu
deild frá upphafi en hann er í 10.
sæti með 240 leiki. Þessa leiki hef-
ur hann spilað með KR, ÍBV, FH
og Fylki. gummih@mbl.is
Samningi
Tryggva við
Fylki rift
Tryggvi
Guðmundsson
Eysteinn Húni
Hauksson er
hættur sem þjálf-
ari 2. deildarliðs
Hattar í knatt-
spyrnu karla.
Frá þessu var
greint á netmiðl-
inum Fótbolti.net
í gærkvöldi þar
sem Gunnlaugur
Guðjónsson,
stjórnarmaður í Hetti, staðfesti að
Eysteinn hefði látið af störfum. Lið
Hattar féll naumlega úr 1. deild í
fyrra en illa hefur gengið í 2. deild-
inni í sumar þar sem liðið er í
neðsta sæti. kris@mbl.is
Eysteinn Húni
er hættur
Eysteinn Húni
Hauksson
Skúli Jón Friðgeirsson, varnarmaður Svíþjóðarmeistara Elfs-
borg í knattspyrnu, verður að öllum líkindum lánaður frá félag-
inu þegar félagaskiptaglugginn verður opnaður í mánuðinum
en Skúli er í frystinum hjá þjálfara liðsins og hefur ekki verið í
leikmannahópnum síðan í maí.
„Það eru lið sem hafa sýnt áhuga þannig við munum reyna
koma honum á lán einhverstaðar úti,“ segir Magnús Agnar
Magnússon, umboðsmaður Skúla Jóns, sem virðist ekki vera á
heimleið á láni út tímabilið. Magnús segir það ekki bókað að
Skúli Jón yfirgefi Elfsborg þegar glugginn verður opnaður en
ítrekar að honum verði líklega komið fyrir á láni.
Skúli Jón meiddist fljótlega eftir að hann gekk í raðir Elfs-
borg í fyrra og spilaði því ekki mikið á síðasta tímabili. Á þessu
tímabili hefur Skúla ekki verið veitt sanngjarnt tækifæri að
hans mati en í viðtali við Morgunblaðið í lok maí sagði hann:
„Mér finnst þetta ósanngjarnt. Mér finnst þessir gaurar sem
eru að spila ekkert betri en ég. Ég fékk líka lítið að spila á und-
irbúningstímabilinu. Ég spilaði einhvern einn leik í æfingaferð í
febrúar og svo vorum við í vandræðum rétt fyrir mót þannig að
ég spilaði síðasta æfingaleikinn áður en deildin hófst og það
gekk mjög vel. Þá hélt ég að ég myndi spila en um leið kom ein-
hver annar leikmaður upp úr meiðslum.“ tomas@mbl.is
Reyna að koma
Skúla Jóni á lán
Væntanlega ekki á heimleið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tæplega á heimleið Skúli Jón Friðgeirsson
verður líklega ekki lánaður til íslensks félags.
Ari Freyr Skúla-
son, landsliðs-
maður knatt-
spyrnu og
leikmaður
Sundsvall, er bú-
inn að semja við
danska úrvals-
deildarfélagið
OB frá Óðins-
véum um að
ganga til liðs við
það að loknu þessu keppnistímabili
í Svíþjóð, samkvæmt SportExpress-
en.se. Netmiðillinn kveðst hafa
heimildir fyrir þessu í Danmörku,
sem og að Ari gæti farið til OB
strax í sumar ef félögin ná sáttum
um kaupverð. Þar kemur auk þess
fram að samningur Ara gildi frá og
með 1. janúar 2014.
Ari er fyrirliði og lykilmaður í
liði Sundsvall og hefur spilað með
liðinu undanfarin ár. Hann hefur
lengi reynt að losna, sérstaklega
eftir að liðið féll úr sænsku úrvals-
deildinni síðasta haust. vs@mbl.is
Ari Freyr á
leið til OB
Ari Freyr
Skúlason