Morgunblaðið - 09.07.2013, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 2013
BogdanWenta, þjálf-
ari Vive Kielce,
sem Þórir Ólafs-
son, landsliðs-
maður í hand-
knattleik, leikur
með, var valinn
þjálfari ársins í
Meistaradeild
Evrópu í handknattleik karla á síð-
ustu leiktíð. Handknattleikssamband
Evrópu stóð fyrir kjörinu á heimasíðu
sinni. Kielce kom á óvart á síðasta
keppnistímabili með því að komast í
undanúrslit Meistaradeildar í fyrsta
sinn og hafna í þriðja sæti. Pólskt fé-
lagslið hefur aldrei áður komist í und-
anúrslit í Evrópukeppni meistaraliða
í handknattleik karla.
Spánarmeistarar Barcelona stað-festu í gær að framherjinn David
Villa sé á leið til Atlético Madrid en
hann mun kosta Atlético 4,4 milljónir
punda verði hann hjá félaginu til árs-
ins 2016. Börsungar fá svo helming-
inn af söluverðinu fari Villa frá Atlé-
tico. Frakkinn Éric Abidal er einnig
farinn frá Barcelona og gekk í gær
frá eins árs samningi við franska liðið
Mónakó en þar hóf hann sinn at-
vinnumannaferil.
Þýska hand-knattleiks-
liðið Rhein-
Neckar Löwen
sem Guðmundur
Þórður Guð-
mundsson þjálf-
aði, hefur krækt í
serbneska miðju-
manninn Nikola
Manojlovic frá RK Cimos Koper í
Slóveníu. Manojlovic, sem er 31 árs,
hefur skrifað undir árs samning við
Löwen. Honum er ætlað að koma í
stað annars Serba, Zarko Sesum,
sem verður frá keppni fram undir
áramót.
Svíinn Patrik Liljestrand, semþjálfaði TV Emsdetten sem
Ólafur Bjarki Ragnarsson og Ernir
Hrafn Arnarson leika með á síðustu
leiktíð, hefur verið ráðinn þjálfari
pólska handknattleiksliðsins, NMC
Powen Zabrze.
Pétur Már Sigurðsson, fráfarandiþjálfari karlaliðs KFÍ, er tekinn
við þjálfun kvennaliðs Fjölnis í körfu-
knattleik. Pétur mun auk þess verða
yfirþjálfari yngri flokka í Grafarvog-
inum en hann tekur við kvennaliðinu
af Ágústi Jenssyni. Fjölnir féll úr
Dominos-deild kvenna í vor og leikur
því í 1. deild á næsta tímabili.
Þrír serbneskirleikmenn,
Dejan Pesic,
Marko Blagojevic
og Vladica
Djordjevic, hafa
fengið samningi
sínum rift hjá Völ-
sungi. Pesic er
markvörður sem
valinn var besti
leikmaður 2. deildar á síðustu leiktíð
en Völsungur bar sigur úr býtum í 2.
deildinni í fyrra og leikur í 1. deildinni
í sumar. Þjálfari liðsins, Dragan Stoj-
anovic, hætti störfum síðastliðið
föstudagskvöld en liðið vermir botn-
sætið með aðeins tvö stig eftir níu
umferðir. Öllum leikmönnunum
þremur er frjálst að finna sér annað
félag þegar félagaskiptaglugginn
verður opnaður á sunnudaginn.
Framherjinn Mario Gómez hefurverið seldur frá Evrópumeist-
urum Bayern München til ítalska
liðsins Fiorentina. Gómez tjaldar
ekki til einnar nætur í Flórens því
hann gerir fjögurra ára samning við
Fiorentina. Talið er að kaupverðið sé
um 20 milljónir evra. Gómez fór sjálf-
ur fram á sölu frá félaginu.
Fólk sport@mbl.is
VIÐTAL
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Ég myndi gjarnan vilja halda fyr-
irlestra um þjálfun hér á landi og
tala við íslenska þjálfara almennt,“
sagði Vésteinn Hafsteinsson, Ís-
landsmethafi í kringlukasti og frjáls-
íþróttaþjálfari, þegar Morgunblaðið
hitti hann að máli á Selfossi fyrir
helgina. Þar var hann í heimsókn hjá
fjölskyldu sinni en faðir hans, Haf-
steinn Þorvaldsson, fyrrverandi for-
maður Ungmennafélags Íslands, býr
m.a. í bænum.
Vésteinn flutti fyrirlestur á föstu-
dagskvöldið í tengslum við Lands-
mót UMFÍ, þar sem fullt var út úr
dyrum. „Að beiðni HSK fjallaði ég
um ferilinn frá níu ára aldri og til
dagsins í dag og kom m.a. inn á
hverjir væru mínu helstu áhrifavald-
ar, jafnt sem íþróttamaður og síðar
sem þjálfari. Það er svolítið erfitt að
setja saman fyrirlestur af þessu tagi
þar sem gestirnir eru frá tíu ára
aldri og upp í áttrætt, en ég hafði
gaman af því og þessu fylgir mikil
áskorun. Það er allt annað að setja
saman fyrirlestur af þessu tagi en
þegar ég held fyrirlestur um
kringlukastsþjálfun. Vissulega vildi
ég gera meira af þessu og ekki síst
ræða við íslenska þjálfara en ég hef
bara ekkert verið beðinn um það,“
segir Vésteinn sem er svo eftirsóttur
fyrirlesari um þjálfun um allan heim
að nú orðið fer ekki minni tími hjá
honum í fyrirlestra en þjálfun frjáls-
íþróttamanna.
„Ég vildi gjarnan ræða meira við
íslenska þjálfara og fara yfir með
þeim hvernig reikna skal úr form-
topp hjá íþróttamönnum svo dæmi
sé tekið. Ég hef ekkert verið beðinn
um það sem mér finnst svolítið
skrýtið það sem ég hef mikið verið í
slíkum reikningum,“ segir Vésteinn
sem m.a. hefur þjálfað ólympíu- og
heimsmeistara í kringlukasti auk
fleiri kastara sem náð hafa fram-
úrskarandi árangri á heimsvísu.
Fyrirlestrar í Brasilíu og Sviss
„Ég er beðinn um að halda fyr-
irlestra úti um allan heim en ekki
hér heima. Enginn hefur óskað eftir
að ég deili reynslu minni og þekk-
ingu með íslenskum þjálfurum.
Ég held mikið af fyrirlestrum um
líkamlega þjálfun því það er mín
sterka hlið að reikna út hvernig
maður nær árangri þegar það skipt-
ir máli. Auk þess þá er ég menntað-
ur í sálfræði,“ segir Vésteinn sem
fer í haust í fyrirlestraferð til Bras-
ilíu, Kanada, Bandaríkjanna, Þýska-
lands og Sviss.
„Í þessum fyrirlestrum mun ég
ekki aðeins tala til kastsþjálfara
heldur einnig við þjálfara í öðrum
íþróttagreinum. Í Svíþjóð, þar sem
ég bý, hef ég mikið haldið fyrirlestra
fyrir þjálfara í íshokkíi, fótbolta,
handbolta og körfubolta. Einnig hef
ég verið með námskeið fyrir þjálfara
í þessum íþróttagreinum meðal ann-
ars síðustu 14 ár.“
Talsvert í sambandi við Þóri
Mér finnst sjálfsagt að deila með
öðrum þeirri þekkingu sem maður
hefur viðað að sér í gegnum tíðina,
þekkingu sem hefur skilað miklum
árangri,“ segir Vésteinn sem hefur
t.d. mikinn áhuga á handknattleik
m.a. vegna þess að sonur hans æfir
þá íþrótt í Svíþjóð. „Af þeim sökum
hef ég verið í talsverðu sambandi við
Þóri og skoðað mikið hvernig hann
hagar þjálfun sinni,“ segir Vésteinn
og upplýsir að hann hafi fyrir fáein-
um árum fengið óvænt tilboð um að
gerast þrekþjálfari handknattleiks-
liðsins Rhein-Neckar Löwen í
Þýskalandi.
„Gummi [Guðmundur Þórður Guð-
mundsson, þjálfari Löwen] bað mig
fyrir tveimur árum um að sjá um lík-
amlega þjálfun leikmanna Löwen.
Ég afþakkaði það starf vegna þess
að ég er fyrst og fremst frjáls-
íþróttaþjálfari. Það starf kann ég og
vil vinna.
Mín sérfræðiþekking liggur í
þjálfun kringlukastara og að hluta til
kúluvarpara, ekki síst þar sem ég
hef verið svo lengi í kringum þessar
íþróttagreinar.
Hinsvegar tel ég mig geta haldið
námskeið í hvernig handboltamenn
eigi að byggja sig upp líkamlega en
fengið síðan einhvern annan í að
fylgja þeirri vinnu eftir,“ segir Vé-
steinn sem þekkir aðeins til eftir að
hafa þjálfað Róbert Gunnarsson,
landsliðsmann í handknattleik, um
skeið fyrir átta árum þegar Róbert
og Vésteinn bjuggu báðir í Árósum í
Danmörku þar sem Vésteinn var
landsliðsþjálfari Dana í kastgreinum
og Róbert lék með Århus GF. „Ég
bylti líkamlegu formi Róberts á einu
ári og í framhaldinu var hann valinn
besti leikmaður dönsku úrvalsdeild-
arinnar,“ segir Vésteinn.
Vésteinn þjálfar um þessar mund-
ir sex kastara en segist hafa dregið
mjög úr þjálfun því hann er mjög
eftirsóttur til fyrirlestrahalds auk
þess sem hann er ráðgjafi við upp-
byggingu á frjálsíþróttamiðstöð í
Vaxjö þar sem hann býr.
Síðan er ég mikið bókaður í fyr-
irlestra. Ég hef gaman af því og hef
í hyggju að fara út kvíarnar á þeim
vígstöðvum. Þar með er ég meira í
að þjálfa aðra þjálfara í stað þess að
þjálfa nokkra kastara.
Finnur fyrir viðingu
Spurður um hugsanlega ástæður
fyrir að ekki er meira óskað eftir því
við Véstein að hann miðli úr brunni
reynslu sinnar hér á landi segist
hann ekki alveg gera sér grein fyrir
hver ástæðan getur verið.
„Þegar ég kem heim til Íslands
finn ég fyrir mikilli virðingu í minn
garð og margir þekkja mig. Ég er
mjög stoltur af því og hef ekki yfir
neinu að kvarta þannig lagað enda
hef ég nóg að gera.
Ég held bara að það sannist fyrst
og fremst gamla máltækið um að
enginn sé spámaður í sínu föð-
urlandi.
Um þessar mundir vinn ég mikið í
Svíþjóð og er m.a. að byggja upp
nýtt kastkerfi. Það er eitthvað sem
ég gæti ekki gert á Íslandi vegna
þess að hér á landi er ég bara litli
Véddi en í Svíþjóð er ég Vésteinn
Hafsteinsson, toppþjálfari úti í
heimi. Þar er mikið hlustað á það
sem ég segi.
Kannski er ástæðan sú að hér
heima er mikið vinasamfélag, en ég
held að það sé samt ekkert illa meint
gangvart mér persónulega. Sann-
arlega lenti ég í mínu lyfjamáli fyrir
30 árum. Kannski hafa einhverjir
eitthvað á móti mér af þeim sökum.
En það eru nú liðin 30 ár frá því
máli. Ég lærði mína lexíu og hef síð-
an talað fyrir lyfjalausum íþróttum
alla tíð síðan í hverjum einasta fyr-
irlestri frá þeim degi. Sumir gleyma
hinsvegar aldrei neinu.
Ég hef það hinsvegar mjög gott,
hef meira en nóg að gera en vildi
gjarnan leggja meira til málanna Ís-
landi því ég er rosalega mikill Ís-
lendingur, hjarta mitt er hér heima,“
segir Vésteinn Hafsteinsson.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gull Vésteinn ásamt lærisveini sínum til margra ára, Gerd Kanter, heims- og ólympíumeistara í kringlukasti.
Vil gjarnan deila reynslu og
þekkingu minni hér heima
Vésteinn leiðbeinir þjálfurum í mörgum íþróttagreinum um allan heim Enginn
er spámaður í sínu föðurlandi Guðmundur sóttist eftir kröftum hans hjá Löwen
Morgunblaðið/Ívar Benediktsson
Fyrirlesari Vésteinn var gestur á 27. Landsmóti UMFÍ á Selfossi um helgina og
hélt vel sóttan fyrirlestur og tendraði landsmótseldinn við mótssetningu.