Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.07.2013, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. JÚLÍ 2013 3
ForstöðumaðurTæknideilar
Vesturbyggðar ogTálknafjarðarhrepps
Vesturbyggð ogTálknafjarðarhreppur auglýsa eftir kröftugum einstaklingi til þess
að veita tæknideildum sveitarfélaganna forstöðu. Leitað er eftir verkfræðingi eða
tæknifræðingi með mikla reynslu á sviði skipulags- og byggingarmála.
ForstöðumaðurTæknideildar Vesturbyggðar ogTálknafjarðarhrepps hefur yfirumsjón með
skipulags- og byggingarmálum og öllum verklegum framkvæmdum og viðhaldi á vegum
sveitarfélaganna. Forstöðumaðurinn hefur forystu um faglegan undirbúning við mótun stefnu
sveitarfélagsins á sviði skipulags- og byggingamála á hverjum tíma og er skipulags- og bygg-
ingarnefndum, bæjar- og sveitarstjóra og sveitarstjórnum til ráðgjafar á því sviði og sér um að
lögum um mannvirki nr. 160/2010, skipulagslögum nr. 123/2010 og öðrum lögum og reglu-
gerðum varðandi byggingarmál í sveitarfélaginu sé framfylgt. Hann ber m.a. ábyrgð á
skráningu mannvirkja, eftirliti með viðhaldi, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku,
skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun á sviði skipulags- og byggingarmála, sbr. 8 gr. mannvirkjalaga nr.
160/2010 og 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er skilyrði.
Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum, byggingarreglugerð er æskileg.
Reynsla af stjórnun er æskileg.
Þekking á starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu er æskileg.
Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, framsýni og skipulagshæfni.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund.
Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
Góð almenn tölvukunnátta.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi fagfélags og launanefndar sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí nk.
Umsækjendur eru beðnir að senda umsókn til baejarstjori@vesturbyggd.is. Umsókninni þarf
að fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf þar sem umsækjandi gerir sérstaklega grein fyrir
hæfni til starfans út frá ofangreindum hæfnikröfum. Umsækjendur eru beðnir að tilgreina
a.m.k. 2 umsagnaraðila í umsókn sinni. Nánari upplýsingar veitir Ásthildur Sturludóttir,
bæjarstjóri Vesturbyggðar, s. 450 2300.
Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar:
Á sunnanverðum Vestfjörðum búa ríflega 1300 manns í tveimur sveitarfélögum, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi. Íbúum hefur fjölgað
töluvert undanfarin ár og er mikil uppbygging og umsvif í sveitarfélögunum. Stærstu byggðakjarnarnir eru: Patreksfjörður,Tálknafjörður og
Bíldudalur.
Í sveitarfélögunum eru mjög góðir grunnskólar, leikskólar, tónlistarskólar og framhaldsdeild Fjölbrautarskóla Snæfellinga. Þrjú nýleg
íþróttahús eru á svæðinu, tvær sundlaugar og frábær líkamsræktaraðstaða. Öflugt íþróttastarf er í sveitarfélögunum sem og menningar- og
tónlistarstarf. Auðvelt er njóta útivistar þar sem ægifögur náttúra Vestfjarða er alls staðar innan seilingar, s.s. Rauðasandur, Látrabjarg, Ketil-
dalir og Barðaströnd.
Flugfélagið Ernir flýgur alla daga nema laugardaga til Bíldudals frá Reykjavík og Breiðafjarðarferjan Baldur fer alla daga nema laugardaga
yfir vetrartímann frá Stykkishólmi að Brjánslæk en tvisvar á dag alla daga vikunnar yfir sumartímann. Mannlífið er gott og íbúarnir eru sam-
stiga um að byggja kröftug, samheldin og framsækin sveitarfélög.
Deild iðjuþjálfunar og félagsstarfs Hrafnistu í Hafnarfirði
óskast til starfa 1. september 2013
Iðjuþjálfi
Helstu verkefni:
! " #$
%
&
'
( %
%
Menntunar- og hæfniskröfur:
)
$
%
*
+/'035
$
6
7 6
$ 8
%
$ %9
Markmið Hrafnistu er að:
% $
%
8 $
:
% $
;
9
% 6
<
#
% =
: >
?
$ 9
*
=
: >
A B 6 % C
$ 8
:
$ $D EHE IJKJ " NNO KONP
Umsóknarfrestur er til 22. júlí.
Vinsamlegast sendið umsóknir á netfangið
gudrun.hallgrimsdottir@hrafnista.is
Starfskraftur óskast
- Hlutastarf
Sjálfstæður starfskraftur með brennandi áhuga
á barnafatnaði og ríka þjónustulund óskast til
afgreiðslu- og sölustarfa. Vinnutími kl. 12-18
og laugardaga eftir samkomulagi.
Íslenskukunnátta skilyrði.
Áhugasamir geta sent umsókn og
meðmæli á olig26@torg.is
Orkubú Vestfjarða ohf.
Starf við
Mjólkárvirkjun
Orkubú Vestfjarða auglýsir hér með starf við
Mjólkárvirkjun í Arnarfirði laust til umsóknar.
Föst búseta á staðnum eða í nærliggjandi
byggðarlögum skilyrði.
Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf
1. september eða eftir nánari samkomulagi.
Gerðar eru kröfur um vélfræðings- eða raf-
virkjamenntun.
Umsóknarfrestur er til 23. júlí.
Frekari upplýsingar veitir undirritaður, sími
450 3230, eða stöðvarstjóri, sími 450 3290.
Framkvæmdarstjóri orkusviðs,
Sölvi R. Sólbergsson.
Deild iðjuþjálfunar og félagsstarfs Hrafnistu í Hafnarfirði
óskast til afleysinga frá ágúst 2013
Aðstoðarmaður iðjuþjálfa
Helstu verkefni:
<
% $
#9 8 %
% %
<
%
:
3 $
B
%
$ % %
Menntunar- og hæfniskröfur:
&
%
Markmið Hrafnistu er að:
% $
%
8 $
:
% $
;
9
% 6
<
#
%
?'Q
A B 6 % C
$ 8
:
$ $D EHE IJKJ " NNO KONP
Umsóknarfrestur er til 15. júlí.
Vinsamlegast sendið umsóknir á netfangið
gudrun.hallgrimsdottir@hrafnista.is
Bakaranemi
Óska eftir mjög áhugasömum bakaranema í
Reykjavík.
Umsóknir sendist á box@mbl.is, merktar:
,,N - 25420”.