Morgunblaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.08.2013, Blaðsíða 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ D úndrandi flugeldar og fim- legar danshreyfingar eru ekki endilega eitthvað sem maður tengir saman, en það ætlar Sigríður Soffía að gera á Menningarnótt. Hvernig kom það eiginlega til að dansarinn ákvað að spreyta sig á flugeldum? „Vodafone hafði upp- haflega samband við mig þar sem þau vildu fá listamann inn í ferlið og gera eitthvað nýtt með flugeldasýn- ingu Menningarnætur í ár. Mitt nafn barst í tal og í framhaldi var ég beðin að koma með kynningu fyrir Reykja- víkurborg, lögreglustjóra, Vodafone og þá aðila sem koma að sýningunni,“ segir Sigríður. „Fyrir tveimur árum byrjaði ég reyndar að vinna að drög- um að sýningu sem innihélt einmitt flugelda svo það var skemmtileg til- viljun,“ bætir hún við. Flugeldar eru galdrar Það kemur upp úr dúrnum að áhugi Sigríðar Soffíu er ekki nýtilkominn. Þvert á móti hafa þeir hrifið hana um langan aldur. „Já, ég hef alltaf verð heilluð af flugeldum, þessi blanda af reyk, ljósi og sprengingum höfðar til mín. Í leikhúsinu er maður oft að vinna með reykvélar og ljós að reyna að búa til töfra en flugeldar eru galdrar; pappakassi sem breytist í stórfenglegt ljós á himninum,“ út- skýrir Soffía og brosir við. „Það er eitthvað við reyk og sprengingar sem heillar mig sem listamann og þetta er klárlega byrjunin á vinnu minni með flugelda því möguleikarnir eru svo margir. Í þessu verkefni sem sýnt verður á Menningarnótt, Eldar – dansverk fyrir þrjú tonn af flug- eldum, vildi ég færa flugeldana eins nálægt fólkinu og hægt væri, á sama tíma og öryggismál áhorfenda eru í fyrirrúmi. Það verður mikið um lok- anir, ljósin í miðbæ Reykjavíkur verða öll slökkt og margir eru að leggja hönd á plóg til að gera þetta eftirminnilegt,“ segir Soffía og það er ekki laust við eftirvæntingarglampa í augum hennar. „Svo er gaman frá því að segja að verkið Eldar er einmitt partur af Reykjavík Dans Festival sem er að byrja.“ Að stjórna flugeldum Í huga flestra eru flugeldar ótemjur sem æða stjórnlaust áfram og því blasir kannski ekki við hvernig hægt er að stjórna þeim með áþekkum hætti og danshöfundur skipuleggur hreyfingar dansaranna. Sigríður seg- ir þetta þó ekki eins frábrugðið og ætla mætti. „Dansverk og flug- eldasýningar eiga margt sameig- inlegt,“ bendir hún á. „Dansarar hafa eytt mörgum árum í leik við þyngd- araflið og framkvæma það sem virð- ist ómannlegir gerningar. Öflug sam- hæfing áralangrar þjálfunar gerir þeim kleift að framkvæma hópdansa þar sem allir hreyfast eins og full- komin vél, allar línur beinar, flæði, hraði og öndun samhæfð. Sömu regl- ur gilda um uppbyggingu á dans- smíðum og smíði á flugeldasýningu. Flugeldasýning er í eðli sínu hljóð og hreyfing sem er einmitt efniviður danssmíða: tónlist og dans. Ljós tek- ur einfaldlega stöðu dansarans og sprengingarnar eru tónlistin. Ljósið er látið hreyfast eða dansa eftir fyr- irfram ákveðnum ferlum rétt eins og í dansverki sem samið er spor fyrir spor og endurtekið þar til hinum full- komnu línum er náð með líkama og í rýminu. Dýnamík er mynduð með hraðabreytingum og reynt að ná fram blæbrigðum mannlegra tilfinn- inga með nákvæmni í tímasetningum og litavali.“ Fleiri en einn skotstaður Það er auðheyrt að sýningin sem fyr- ir höndum er á hug Sigríðar allan. „Alveg eins og þegar ég sem fyrir dansflokk er erfiðasti parturinn að sleppa takinu, horfa á sýninguna og geta ekki gripið inn í sjálfur,“ út- skýrir hún. „Að sitja og vona að öll undirbúningsvinnan skili sér og að allir dansarar dansi rétt, ljósamað- urinn setji rétt ljós á og hljóðmað- urinn klikki ekki á tónlistinni. Það er eins með þessa sýningu, þetta er risavaxið samvinnuverkefni. Voda- fone, eldvarnareftirlitið, Reykjavík- urborg, lögreglan og HSSR hafa staðið að undirbúningnum. Frábært fólk á öllum vígstöðvum en þegar á hólminn er komið þarf að treysta á flugeldana og Hjálparsveit skáta í Reykjavík sem sér um skotið sjálft, að allir púðurþræðir séu heilir, að all- ar tívolíbombur séu heilar, að tíma- setningar haldist og mikilvægast af öllu – að veðurguðirnir verði með okkur í liði.“ Þegar Sigríður er svo spurð að því hvar best megi njóta sýningarinnar kemur fyrst í ljós hverju gestir Menningarnætur mega eiga von á. Andstætt við hefðbundnar flug- eldasýningar þar sem öllu tundrinu er skotið upp af einum stað verður sýningu Sigríðar skotið upp af hvorki meira né minna en fimm stöðum! „Með punktunum fimm er reynt að ná hring í kringum miðbæjarsvæðið til að umkringja áhorfendur. Að- alskotið er af Faxagarði þar sem tí- volíbomburnar verða þar, þökin þola ekki mikið magn af sprengiefni en við erum búin að fara eins langt og við komumst,“ segir Sigríður. „Sýning- unni verður einnig skotið upp af þök- um þekktra bygginga, meðal annars Þjóðleikhússins og Tollhússins.“ Í framhaldinu mælir Sigríður Soffía með því að fólk komi sér fyrir á Arn- arhóli, á bílastæðinu hjá Kolaportinu og í kringum grunninn hjá Hörpu og reyni þannig að hafa sjónlínu á skot- staðina. „Ekki vera inni í bíl eða inni í einhverju húsi – verið úti! Komið inn í mannmergðina í stemninguna og heyrið sprengingarnar!“ Sigríður Soffía minnir þó fólk á að mjög mik- ilvægt sé að virða takmarkanir lög- reglu. „30 metra, 50 metra eða 100 metra öryggissvæði þurfa að vera mörkuð kringum byggingarnar sem notaðar eru undir sprengiefni og þar sem sýningarsvæðið er miðborgin er í mörg horn að líta fyrir þá sem sjá um gæsluna.“ Dans í sínu hreinasta formi Eins og Sigríður Soffía bendir á er áhersla danssýningarinnar Elda á upplifunina, formin og litina, ekki að sýningin sé sú stærsta eða dýrasta. „Frekar er hugsunin að fólk upplifi eitthvað annað, eitthvað sem það bjóst ekki við. Ég vil að áhorfendur finni fyrir handverkinu og vinnunni sem liggur að baki.“ Hún heldur áfram. „Verkið sameinar fólk, ekki til að keppa, metast eða græða heldur í þeim tilgangi að njóta í sameiningu. Áhorfandinn fær að njóta danssmíða í sínu hreinasta formi. Mannslíkam- inn er tekinn úr jöfnunni svo ferl- arnir standa einir eftir og mynda grind verksins. Þannig fá áhorfendur að upplifa fegurð hreyfingar, kraft einfaldra forma, blæbrigði lita, þyngd og stemningu hrynjandi. Fólki er gefinn kostur á að finna hugarró í að standa með 80 þúsund manns og hugsa einungis um kraft og fegurð Reykjavíkur og Íslands í sjö mínútur og 45 sekúndur.“ Nóg um að vera í ágúst Eins og hin fyrirhugaða flugeldasýn- ing sé ekki nóg þá er Sigríður Soffía með ýmis önnur járn í eldinum. „Já, ágúst er mikill uppskerumánuður. Ég er með fjórar frumsýningar á ell- efu dögum. Lífið býður ekki oft upp á álagsdreifingu svo maður verður bara að stökkva inn í ruglið og stemninguna,“ bætir hún við og kím- ir. „Ég frumsýndi sóló 16. ágúst í Hallgrímskirkju þar sem ég sleppti 15 dúfum inni í kirkjunni, en það var samvinnuverkefni með einum besta organista landsins, Birni Steinari Sólbergssyni. Það vakti mikla ánægju og kátínu áhorfenda og komst í fréttirnar þar sem ein dúfan settist á höfuð bandarísku sendi- herrafrúarinnar og sat þar restina af sýningunni,“ rifjar Sigríður upp og hlær. „Ég er líka að frumsýna nýja stutt- mynd sem nefnist Requiem og er leikstýrt af mér og ljósmyndaranum Marinó Thorlacius.“ Þess má geta að þetta er þriðja stuttmyndin sem Sig- ríður Soffía gerir en fyrri stutt- myndir hennar hafa verið sýndar á yfir 30 alþjóðlegum kvikmyndahátíð- um og unnið til verðlauna. „Requiem verður frumsýnd í Hafnarhúsinu kl. 16:00 þriðjudaginn 27. ágúst þar sem allir eru velkomnir og frítt inn. Myndin var tekin í Patreksfirði en í henni reynum við að fanga hugar- ástand í stað sögulegrar framvindu. Jóhann Friðgeir semur tónlistina en Hildur Yeoman sá um stíliseringu,“ bætir hún við. Sigríður og Marinó hafa unnið saman áður en þau gerðu dansauglýsinguna fyrir Lyfju með Íslensku auglýsingastofunni sem sýnd hefur verið í sjónvarpi í sumar. „Auk þess dansa ég í nýju verki Ernu Ómarsdóttur sem nefnist „To the bone“, en það er frumsýnt daginn fyrir Menningarnótt svo það er nóg að gera,“ segir Sigríður Soffía að endingu. Nánari upplýsingar um komandi sýningar má finna á vefnum www.siggasoffia.com. jonagnar@mbl.is Dansandi flugeldar Það er óhætt að segja að flugeldasýningin sé ákveðinn hápunktur á Menningarnótt hvers árs. Í þetta sinn kveður við nýjan tón hvað framsetningu flugeldanna varðar, svo ekki sé fastar að orði kveðið, en dansarinn og danshöfundurinn Sigríður Soffía Níelsdóttir skipuleggur sýninguna sem verður með talsvert öðru sniði en venjulega. Morgunblaðið/Kristinn Himnadans „Flugeldasýning er í eðli sínu hljóð og hreyfing sem er einmitt efniviður danssmíða: tónlist og dans. Ljós tekur einfaldlega stöðu dansarans og sprengingarnar eru tónlistin. Ljósið er látið hreyfast eða dansa eftir fyrirfram ákveðnum ferlum rétt eins og í dansverki,“ segir Sigríður Soffía Níelsdóttir, dansari og danshöfundur. Danstöfrar Sigríður Soffía fer gjarnan með dansinn í óvæntar áttir eins og glöggt mátti sjá þann 16.ágúst sl. þegar hún sleppti 15 hvítum dúfum lausum í Hallgrímskirkju. Hvort flugeldarnir láta jafnvel að stjórn og dúfurnar kemur í ljós.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.