Morgunblaðið - 22.08.2013, Síða 20
Samtaka „Herrann stýrir og daman fylgir. Líklega er þetta samspil stærsta áskorunin, þ.e. að daman láti stýra sér og herr-
ann valdi verkefninu,“ segir Edda Blöndal um hinn seiðandi takt salsadansins sem nýtur sífellt meiri vinsælda.
Salsa „Dansinn er bæði einfaldur og skemmtilegur og gaman að sleppa fram af
sér beislinu undir fjörugri suðrænni tónlist, segir Edda Blöndal salsakennari.
V
ið hvetjum alla áhugasama til að koma og dansa
með okkur á Lækjartorgi á Menningarnótt,“
segir Edda Blöndal, kennari hjá SalsaIceland.
„Boðið er upp á ókeypis byrjendakennslu í
salsadansi milli kl. 14.00 og 16.00 og allir geta
tekið þátt. Dansinn er bæði einfaldur og skemmtilegur
og gaman að sleppa fram af sér beislinu undir fjörugri
suðrænni tónlist. Það verður líka opið dansgólf fyrir alla
salsadansara á torginu og hluti af kennarateymi SalsaI-
celand mun sýna salsa.“
Edda segir hollt og gott að gleyma sér um stund úti á
dansgólfinu. „Flestir þekkja hvað það getur verið snúið
að lifa í núinu; slökkva á eftirsjá fortíðar og áhyggjum
framtíðar. Salsadansinn er þriggja mínútna gleðistund í
núinu með dansfélaga, þar sem eina verkefnið er að
skemmta sér og njóta augnabliksins. Ég hef kynnst mín-
um bestu vinum í salsa og hitti vikulega alls konar fólk
sem kryddar tilveru mína. Ég óska þess að sem flestir
geti upplifað það sama og uppákoman á Menningarnótt
er frábær leið til að kynnast salsamenningunni á Ís-
landi.“
Erlendir kennarar
Edda er upphafskona og yfirkennari í SalcaIceland,
sem hún segir eina sérhæfða salsadansskólann hér á
landi. „Ég hef alltaf haft mikla hreyfiþörf og keppti fyrir
Íslands hönd í karate á erlendum mótum í 15 ár. Ég
kynntist salsa þegar ég var búsett í Stokkhólmi fyrir
nokkrum árum. Þá upplifði ég Marinu Prada og Ibirocay
Regueira á gólfinu en þau eru margverðlaunaðir heims-
meistarar í salsadansi og stórkostlegir kennarar. Ég
gekk í salsaskólann þeirra og féll fyrir dansforminu.
Mig grunaði ekki að nokkrum árum síðar myndu þau
vera með mér í að stofna salsaskóla á Íslandi. Salsa-
Iceland varð að veruleika 2003 og síðan höfum við unnið
að því að byggja upp salsamenningu á Íslandi með nám-
skeiðum fyrir byrjendur og lengra komna, kynning-
arkvöldum, danssýningum o.fl. Marina og Ibi koma
reglulega hingað og kenna en starfsemin er drifin áfram
af SalsaIceland-fjölskyldunni; hópi dansunnenda sem
líta á það sem forréttindi að hafa uppgötvað salsa.“
Stærsta áskorunin
Salsadansinn er upprunninn frá Suður-Ameríku en
oftast kenndur við Kúbu og Púertó Ríkó. Edda segir
salsa falla vel í kramið hjá Íslendingum og hjá SalsaIcel-
and hafi skapast skemmtilegt andrúmsloft strax í byrj-
un. „Enda þótt suðræn tónlist og menning sé ólík okkar
menningu þá erum við skemmtanaglöð og opin fyrir nýj-
ungum. Það reyndist því ekki erfitt að kveikja áhuga Ís-
lendinga á salsa í upphafi og með árunum hafa sífellt
fleiri bæst í hópinn.“
Hún útskýrir að salsa sé spunadans og samspil döm-
unnar og herrans. „Herrann stýrir og daman fylgir. Lík-
lega er þetta samspil stærsta áskorunin, þ.e. að daman
láti stýra sér og herrann valdi verkefninu. Í byrjun voru
herrarnir tregir til að koma enda einhver ímynd-
arskekkja sem hefur fylgt karlmönnum í dansi. Þetta er
þó sem betur fer að breytast, körlunum fer fjölgandi og
núna er engin þörf lengur fyrir konur að mæta með
dansfélaga á námskeið til okkar.“
Frítt á fimmtudögum
Edda bætir við: „Við erum með frábæran hóp kenn-
ara, íslenska og erlenda, í dansstúdíói SalsaIceland og
bjóðum upp á fjölbreytt námskeið. Þeir sem koma til
okkar hafa fæstir dansað nokkuð áður og flestir mæta
einir, enda þarf ekki dansfélaga með sér. Í salsa dansa
allir við alla og við sjáum til þess að kynjahlutföll á nám-
skeiðum séu jöfn.
Svo höldum við afar vinsæl salsadanskvöld öll fimmtu-
dagskvöld og það besta af öllu er að það kostar ekkert
inn. Markmiðið með salsakvöldunum er að gefa öllum
möguleika á að kynnast salsa og æfa sig án endurgjalds.
Boðið er upp á ókeypis prufutíma fyrir byrjendur kl. 20
og svo er dansað til ca. hálf eitt. Það er alltaf ótrúlega
góð stemming og það sér enginn eftir því að mæta.“
beggo@mbl.is
Suðrænt í sumarlok
Áhugi „Það reyndist því ekki erfitt að kveikja áhuga Íslendinga á salsa í upphafi
og með árunum hafa sífellt fleiri bæst í hópinn,“ segir Edda Blöndal.
Stemning Dansað á fimmtudagskvöldum með SalsaIceland. Á salsakvöldunum er öllum gefið tækifæri á að kynnast salsa.
Lækjartorg breytist í dansgólf á Menningarnótt þar sem áhugasömum verður
boðið upp á kennslu í salsadansi undir seiðandi tónlist.
20 | MORGUNBLAÐIÐ