Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28.9. 2013
HEIMURINN
ÞÝSKALAND
BERLÍN Angela num í Þýskalandi, en fyn stórsig
il að fá hreinan meí Bæjaralandi þó ekki tkristilegum demó
el, frjálsir demókratar, náði þvískalandi. Samstarfsflokkur Merkng í Þý% fylgi þarf til a
ustjórn með sósíaldemókrötum.alið að Merkel myndi samsteypastaf þikki og féll er t
s lémann tu lífið
verkamenn
lamista-
Sh b
armið
t hry
BANDARÍKIN
NEWYORK setar ÍransFor
og Bandaríkjanna, Hassan
Rohani ama,og Barack O
ðumgreindu frá því í ræ
allsherjarþingi Same
þ
a
m
orkuáæ
vikunna
Írana á
orkumá nu
það fyrs
stofnun
varð forseti.
ISPAK
WAA
un
ðu að
í miklum
tií Pakistan ef
aðkján jarðsmannskæða
fiðð rúmlega
anhíafskekktum sló
Mikilog 100 þúsund ma
eiði ríkir í garð st
mangs í björgunar
unda n
en
Rúanda er langt frá hafi og
getur því ekki farið þá leið að
nota ódýrt vinnuafl til að
keppa við framleiðslu á ódýr-
um fötum og rafmagnsvörum
við framleiðendur nær út-
flutningshöfnum. Þar er hins
vegar gróskumikið land. Þeg-
ar núverandi stjórnvöld kom-
ust til valda var kraftur settur
í kaffirækt. Staðan var þannig
að kaffið var svo lélegt að
enginn vildi vinna það. Kaffi-
ræktendur höfðu hins vegar
enga ástæðu til að bæta sig
vegna þess að enginn vildi
kaffið þeirra. Stjórnvöld sett-
ust niður með
ræktendum og
framleiðendum
og fengu þá til
að snúa bök-
um saman. Nú
eru kaffibaunir
frá Rúanda
sælkerakost-
ur hjá kaffi-
húsakeðjunni
Starbucks.
Þróunaraðstoð í Afríku hefuryfirleitt verið spyrt samanvið lýðræðisvæðingu, upp-
byggingu réttarríkis og innviða í
líkingu við það sem gerist í vest-
rænum ríkjum. Viðkvæðið hefur
verið að slíkar umbætur og vel-
megun fari saman. Einræði hamli
hins vegar þróun og sé ávísun á
versnandi kjör. Í þremur löndum
Austur-Afríku hefur stoðunum ver-
ið kippt undan slíkum kenningum.
Í Rúanda er gagnrýnendum
stjórnvalda stungið í fangelsi.
Stjórn Úganda hótar þeim, sem
krefjast borgaralegra réttinda, með
banni. Stjórnvöld í Eþíópíu loka
netsíðum stjórnarandstæðinga.
Slíkar fréttir heyrast helst frá
þessum löndum í vestrænum fjöl-
miðlum, en það er fleira að frétta
þaðan þótt ekki fari hátt. Í Rúanda
hefur hagvöxtur að meðaltali verið
8,1% undanfarin fimm ár, 7,4% í
Úganda og 9,7% í Eþíópíu. Með-
altalið í löndunum fyrir sunnan
Sahara er 4,6% á sama tímabili.
Í Rúanda hefur Föðurlandsfylk-
ing Rúanda verið við völd frá því
að þjóðarmorðið var stöðvað fyrir
tæpum 20 árum og Paul Kagame
stjórnað harðri hendi á stóli for-
seta síðan 2000. Rúanda var í rúst
1994 eftir að hútúar slátruðu rúm-
lega 800 þúsund manns, sem flestir
voru af þjóðflokki tútsa.
Á tveimur áratugum hafa orðið
alger umskipti í landinu. Einka-
geirinn blómstrar, spilling hefur að
miklu leyti verið upprætt og veru-
lega dregið úr glæpum. Alþjóða-
bankinn hefur sett Rúanda á stall
sem eitt af bestu löndunum í Afr-
íku til að eiga í viðskipti. Kagame
eru þökkuð þessi umskipti og fyrr
í þessum mánuði vann flokkur
hans stórsigur í kosningum. And-
stæðingar Kagames mega hins
vegar gæta sín. 2011 var blaða-
maðurinn Charles Ingabire, sem
gagnrýnt hafði stjórnina, skotinn
til bana í Úganda og fyrir ári var
Victoire Ingabire, leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar, dæmd í átta ára
fangelsi.
Yoweri Museveni komst til valda
í Úganda árið 1986. Hann var með-
al þeirra, sem börðust gegn ein-
ræðisherranum Idi Amin og
steyptu honum af stóli 1979.
Úganda hefur ef til vill eink-
um verið í fréttum vegna
Josephs Konys, leiðtoga
Andspyrnuhers drottins,
sem klófesti börn og
vígbjó. Kony hraktist
hins vegar frá Úganda fyrir löngu.
Í tíð Musevenis hefur komist á
stöðugleiki og vöxtur í landinu.
Museveni hefur hlotið lof, en af-
skipti hans af stríðinu í Kongó, af-
nám takmarkana á hversu lengi
forsetar megi sitja við völd og
harkalegar aðgerðir gegn stjórn-
arandstöðunni hafa vakið gagnrýni.
August Meles Zenawi lést í
ágúst í fyrra eftir að hafa verið
forsætisráðherra frá 1995. Myndir
frá hungursneyðinni fyrir tveimur
áratugum koma enn í huga margra
þegar Eþíópía er nefnd. Nú stunda
Eþíópíumenn útflutning á kjöti og
grænmeti. Enn eru þeir þó ekki
lausir við vandamál hungurs og
vannæringar. Umsvifin ná til Ís-
lands. Í gær var tilkynnt um
samning eþíópskra stjórnvalda við
íslensk-bandaríska fyrirtækið
Reykjavík Geothermal um að reisa
allt að 1.000 MW jarðvarmaorku-
ver í Eþíópíu, sem gæti kostað 500
milljarða króna. Stjórn Zenawis
var gagnrýnd fyrir að hrekja tug-
þúsundir manna af landi sínu til að
hleypa að erlendum fjárfestum í
landbúnaði. Ekki er ljóst hvort arf-
taki hans, Hailemariam Desalegn,
mun halda uppi svipuðum stjórn-
arháttum, en það þykir góðs viti að
valdataka hans eftir andlát Zenaw-
is fór friðsamlega fram og hann
þykir hafa verið fljótur að festa sig
í sessi. Hann hefur sagst engu
ætla að breyta frá valdatíð forvera
síns.
Efnahagsframfarir í Kína hafa
grafið undan fullyrðingunni um að
lýðræði sé forsenda velmegunar.
Kínverjar hafa látið að sér kveða í
Afríku og þykir mörgum leiðtogum
í álfunni léttir að ólíkt vestrænum
fjárfestingum og aðstoð fylgi kín-
verskri athafnasemi engar kvaðir.
Ofantaldir leiðtogar hafa verið
nefndir afrísku ljónin. Einræðis-
herrar í Afríku hafa hins vegar
ekki ávallt fært með sér velsæld
og hamingju. Nægir þar að nefna
Idi Amin í Úganda, Jean Bedel
Bokassa í Mið-Afríkulýðveldinu,
Mobutu Sese Seko í Zaír eða
Kongó eins og það heitir nú og
Charles Taylor í Líberíu, sem í
vikunni var dæmdur í hálfrar aldar
fangelsi fyrir stríðsglæpi.
Vandi afrískra lýðræðisríkja er
sá að þar eru haldnar kosningar,
en umgjörð lýðræðisins er of veik
til að koma í veg fyrir misnotkun
valds og spillingu. Fyrir vikið get-
ur lýðræðið virst dragbítur á þró-
un og velmegun.
Er lýðræði
dragbítur á
hagvöxt?
VESTRÆNNI ÞRÓUNARAÐSTOÐ Í AFRÍKU HEFUR ÁVALLT
FYLGT KRAFA UM LÝÐRÆÐI OG FRELSI. ÞRJÚ AFRÍKURÍKI
ÞAR SEM EINRÁÐIR LEIÐTOGAR HAFA ÝTT UNDIR HAG-
VÖXT OG UPPGANG Í EFNAHAGSLÍFI HAFA VAKIÐ MENN
TIL UMHUGSUNAR UM HVORT LÝÐRÆÐI SÉ MUNAÐUR,
SEM FÁTÆK LÖND GETI EKKI LEYFT SÉR.
Paul Kagame,
forseti Rúanda.
BAUNABYLTING
Byggingarkrani ber vitni framkvæmdum í hverfi, sem hefur tekið stakkaskiptum í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu. Mikill
uppgangur er í viðskiptalífi landsins og þess sér greinileg merki í höfuðborginni.
AFP
* Sköpum heimsálfu sem er laus við fátækt og átök og Afríkuþar sem borgararnir afla sér millistéttartekna.
Hailemariam Desalegn, forsætisráðherra Úganda,
á 50 ára afmæli Einingarsamtaka Afríku í sumar.
Alþjóðamál
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is