Morgunblaðið - 29.10.2013, Page 1

Morgunblaðið - 29.10.2013, Page 1
ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2013 BÍLAR Reynsluakstur Nýr Honda Accord Tourer er lag- legur bíll með sportlegar línur, útsýni ökumanns er gott sem og hljóðeinangrun, og verðið er hag- stætt. Alpine margmiðlunartæki með leiðsögukerfi fyrir þá sem víða rata Reykjavík - Raufarhöfn - Róm NÝ TT Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is F ræðslufundur um blönd- un endurnýjanlegs elds- neytis í bensín var hald- inn í húsakynnum Bílgreinasambandsins (BGS) síðastliðinn fimmtudag. Til fund- arins var boðað af BGS, Félagi íslenskra bifreiðaeigenda og Carbon Recycling International (CRI). Á sjötta tug mætti á fundinn. „Lög um notkun endurnýj- anlegs eldsneytis í samgöngum taka gildi um næstu áramót. Þau kveða á um skyldu olíufé- laganna um að tryggja að hluti af eldsneyti verði af endurnýj- anlegum uppruna,“ segir Ólafur E. Jóhannsson, upplýsinga- fulltrúi CRI. „Á árinu 2014 verð- ur hlutfall endurnýjanlegs elds- neytis af heildarsölu sem selt er hér á landi að lágmarki 3,5% af heildarorku í eldsneyti. Á árinu 2015 hækkar hlutfallið í 5%. Ol- íufélögin geta mætt kvöðinni með sölu eldsneytis eins og metangass eða íblöndun alkó- hóla í bensín og lífdísils í dísil- olíu. Sambærilegar reglur hafa verið í gildi í öðrum ríkjum Evr- ópska efnahagssvæðisins frá því á árinu 2009.“ Margvísleg erindi á fundi Á fundinum fjallaði Erla Sig- ríður Gestsdóttir, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytinu, um nýtt laga- umhverfi á þessu sviði. Lög um endurnýjanlegt eldsneyti í sam- göngum á landi nr. 40/2013 voru samþykkt á Alþingi í apríl. Jafnframt hafa verið settar tvær reglugerðir byggðar á lögunum, sem fjalla um eftirlit og reglur um sjálfbærni. Benedikt Stefánsson, fram- kvæmdastjóri viðskiptaþróunar CRI, fjallaði um íblöndun alkó- hóla í eldsneyti í Evrópu. Kom m.a. fram hjá honum að þótt etanól væri algengasta lífelds- neyti í bensíni í Evrópu, væri í Hollandi og Bretlandi notað bensín blandað metanóli og et- anóli. Fyrirtækið framleiðir vist- vænt metanól í verksmiðju í Svartsengi undir vörumerkinu Vulcanol. Glúmur Jón Björnsson efna- fræðingur hjá Fjölveri fjallaði um EN228 bensínstaðalinn og reglugerð um gæði eldsneytis. Staðallinn og reglugerðin setja m.a. mörk varðandi magn alkó- hóls, gufuþrýsting og súrefn- isinnihald bensíns. Loks fjallaði Ómar Sigur- björnsson, rannsóknastjóri CRI, um tilraunaverkefni sem CRI stóð að ásamt Brimborg, Borg- arholtsskóla og fleiri, þar sem svonefndir fjölbendisbílar (e: Flex Fuel) voru prófaðir á hárri blöndu metanóls og bensíns. Niðurstöðurnar sýndu að þessi blanda metanóls og bensíns hafði sömu virkni og blanda et- anóls og bensíns. Eknir voru yf- ir 20.000 km í prófunum og komu engin vandkvæði fram. Íblöndun ekki skaðleg Að fyrirlestrunum loknum vöknuðu fjölmargar spurningar hjá fundarmönnum sem frum- mælendur leituðust við að svara. „Einkum beindist áhugi fundarmanna að því hvaða áhrif alkóhól hefði á bílana, endingu bílvéla, eldsneyt- iseyðslu, hvort munur væri á metanóli eða etanóli í eldsneyti og þar fram eftir götunum. Á fundinum kom fram að ekki væri ástæða til að óttast afleiðingar íblöndunar met- anóls eða etanóls í bensín, enda er þegar komin löng reynsla af blöndun í Bandaríkj- unum og Evrópu,“ bendir Ólaf- ur á. „Þá eru allir bílar sem fluttir eru til landsins miðaðir við bensín sem uppfyllir EN228 bensínstaðalinn. Staðallinn og opinber reglugerð heimila íblöndun metanóls að 3% að rúmmáli og etanóls allt að 5% að rúmmáli.“ jonagnar@mbl.is Ný lög um notkun endurnýjanlegs eldsneytis væntanleg Fjölmenni á fræðslufundi um endurnýjanlegt eldsneyti Morgunblaðið/Ómar „Á árinu 2014 verður hlutfall endurnýjanlegs eldsneytis af heildarsölu sem selt er hér á landi að lágmarki 3,5% af heildarorku í eldsneyti. Á árinu 2015 hækkar hlutfallið í 5%,“ segir Ólafur E. Jóhannsson, upplýsingafulltrúi CRI. Fjölmenni sótti fræðslufundinn en tilefnið var gildistaka laga um íblönd- un endurnýjanlegs eldsneytis sem taka gildi um næstu áramót.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.