Morgunblaðið - 29.10.2013, Side 3

Morgunblaðið - 29.10.2013, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2013 BÍLAR 3 H ugtakið milliakreina- akstur eða það sem kallað er erlendis Fil- tering eða Lane splitt- ing er svo nýtt að ekkert nýtilegt nafn er til fyrir það á íslensku. Milliakreinaakstur á mótorhjóli er að keyra milli akreina, til þess að komast fram fyrir umferð halda eflaust flestir. Sannleik- urinn er þó sá að í þéttri stór- borgarumferð getur það að keyra milli akreina verið talsvert öruggara fyrir mótorhjólið. Ástæðurnar eru nokkrar, eins og til dæmis sú staðreynd að mót- orhjólið hefur lengri línu fyrir framan sig til að bregðast við heldur en ef það er milli tveggja bíla. Útsýnið verður líka betra svo að sá sem er á mótorhjólinu situr er fljótari að bregðast við aðstæðum. Ekki má heldur gleyma því að mótorhjólið tefur þannig ekki fyrir annarri umferð og léttir frekar á henni. En skyldi mega þetta alls staðar og þá til dæmis á Íslandi? Í sjálfu sér er ekkert í umferðarlögunum sem bannar þetta sérstaklega. Sam- kvæmt gildandi umferðarlögum segir í 41. grein að eigi megi aka bifhjóli samhliða öðru ökutæki. Samkvæmt 22. grein umferð- arlaganna frá 1987 er ekki heim- ilt að aka fram úr öðru ökutæki á eða við gatnamót, en tiltekið í undirmáli að ákvæðið eigi ekki við um akstur fram úr reiðhjóli eða léttu bifhjóli. Að lokum segir umferðarmerkið sem bannar framúrakstur að það eigi við ökutæki, nema tvíhjóla ökutæki, þar á meðal bifhjól. Þrátt fyrir greinagóðar lýsingar á akstri á akreinum í umferðarlögum er ekkert sem bannar þar akstur á milli akreina. Ökumaður skal þó, áður en hann skiptir um akrein eða ekur á annan hátt til hliðar, ganga úr skugga um að það sé unnt án hættu eða óþarfa óþæg- inda fyrir aðra. Sama er, ef öku- maður ætlar að stöðva ökutæki eða draga snögglega úr hraða þess. Víða leyft í Evrópu Nokkrar borgir í Evrópu, Japan og Kaliforníuríki hafa leyft milli- akreinaakstur mótorhjóla með lögum eða reglugerðum. Sum ríki í Bandaríkjunum eins og Ut- ah og Nebraska hafa þó bannað það sérstaklega, en þá aðeins fyrir mótorhjól. Þeir sem hafa orðið vitni að umferðinni eins og hún er í París eða Barcelona á háannatíma skilja betur hvernig akstur mótorhjóla milli akreina er nauðsynlegur. Þar þykir sjálf- sagt að mótorhjólið fái að aka milli akreina í þéttri borg- arumferðinni eða inni í fjöl- akreina hringtorgi. Í Barcelona er beinlínis gert ráð fyrir að mót- orhjól og létt bifhjól geti ekið milli bíla á ljósum og komið sér fyrir á sérstöku svæði rétt fyrir gatnamótin. Að mati stjórnar Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Snigla, er orðið tímabært að þessi mál séu skoðuð hérlendis með umferðaröryggi bif- hjólafólks í huga. Eiríkur Hans Sigurðsson, ökukennari og í varastjórn Snigla, hefur sterkar skoðanir á þessu máli. „Þetta er mál sem löngu er tímabært að hreyfa við hér á landi. Ég hef aldrei skilið hvers vegna það fer svona í taugarnar á hérlendum ökumönnum bíla ef mótorhjól fer fram fyrir þá við gatnamót. Ég varð fyrir því sumarið 2010 þegar ég hjólaði gætilega á milli bíla sem biðu við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Suður- landsbrautar að einn ökumaður bíls í h.m. í röðinni gerði sér lítið fyrir og reyndi að loka fyrir mig með því að sveigja til vinstri að næsta bíl. Það varð til þess að hliðartaskan vinstra megin á hjólinu straukst við hægra aft- urhorn bílsins við hliðina. Af þessu urðu engar skemmdir, en svona hegðun segir hvernig sumir hugsa okkur þegjandi þörfina. Ég hef einnig orðið fyrir því að menn sendi mér puttann eða aki flautandi á eftir mér. Þegar maður hjólar í Suður- Evrópu leggja ökumenn bíla sig fram um að maður komist á milli bíla sem eru að bíða við gatna- mót og jafnvel breikki bilið á milli bíla á ferð í umferð svo mótorhjólin eigi greiða leið á milli þeirra. Að þessu þarf að vinna. Það þarf einnig að kynna það fyrir almenningi að mót- orhjól sem fer fram fyrir er að létta á umferðinni en ekki að tefja hana,“ segir Eiríkur Hans. njall@mbl.is Milliakreinaakstur á mótorhjóli: Leyfilegur eða ekki? Mótorhjól þurfa að smjúga gegnum umferðina ef þau eiga að komast leiðar sinnar í stórborgum Austurlanda eins og Bangkok. Eiríkur Hans Sigurðsson ökukennari hefur ekið Ducati-hjóli sínu hérlendis sem erlendis og telur að leyfa eigi milliakreinaakstur umbúðalaust. Mótorhjólið verður sýnilegra á milli akreina heldur en inni á milli bílanna sjálfra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.