Morgunblaðið - 29.10.2013, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2013
BÍLAR 3
H
ugtakið milliakreina-
akstur eða það sem
kallað er erlendis Fil-
tering eða Lane splitt-
ing er svo nýtt að ekkert nýtilegt
nafn er til fyrir það á íslensku.
Milliakreinaakstur á mótorhjóli
er að keyra milli akreina, til þess
að komast fram fyrir umferð
halda eflaust flestir. Sannleik-
urinn er þó sá að í þéttri stór-
borgarumferð getur það að
keyra milli akreina verið talsvert
öruggara fyrir mótorhjólið.
Ástæðurnar eru nokkrar, eins og
til dæmis sú staðreynd að mót-
orhjólið hefur lengri línu fyrir
framan sig til að bregðast við
heldur en ef það er milli tveggja
bíla. Útsýnið verður líka betra
svo að sá sem er á mótorhjólinu
situr er fljótari að bregðast við
aðstæðum. Ekki má heldur
gleyma því að mótorhjólið tefur
þannig ekki fyrir annarri umferð
og léttir frekar á henni. En skyldi
mega þetta alls staðar og þá til
dæmis á Íslandi? Í sjálfu sér er
ekkert í umferðarlögunum sem
bannar þetta sérstaklega. Sam-
kvæmt gildandi umferðarlögum
segir í 41. grein að eigi megi aka
bifhjóli samhliða öðru ökutæki.
Samkvæmt 22. grein umferð-
arlaganna frá 1987 er ekki heim-
ilt að aka fram úr öðru ökutæki
á eða við gatnamót, en tiltekið í
undirmáli að ákvæðið eigi ekki
við um akstur fram úr reiðhjóli
eða léttu bifhjóli. Að lokum segir
umferðarmerkið sem bannar
framúrakstur að það eigi við
ökutæki, nema tvíhjóla ökutæki,
þar á meðal bifhjól. Þrátt fyrir
greinagóðar lýsingar á akstri á
akreinum í umferðarlögum er
ekkert sem bannar þar akstur á
milli akreina. Ökumaður skal þó,
áður en hann skiptir um akrein
eða ekur á annan hátt til hliðar,
ganga úr skugga um að það sé
unnt án hættu eða óþarfa óþæg-
inda fyrir aðra. Sama er, ef öku-
maður ætlar að stöðva ökutæki
eða draga snögglega úr hraða
þess.
Víða leyft í Evrópu
Nokkrar borgir í Evrópu, Japan
og Kaliforníuríki hafa leyft milli-
akreinaakstur mótorhjóla með
lögum eða reglugerðum. Sum
ríki í Bandaríkjunum eins og Ut-
ah og Nebraska hafa þó bannað
það sérstaklega, en þá aðeins
fyrir mótorhjól. Þeir sem hafa
orðið vitni að umferðinni eins og
hún er í París eða Barcelona á
háannatíma skilja betur hvernig
akstur mótorhjóla milli akreina
er nauðsynlegur. Þar þykir sjálf-
sagt að mótorhjólið fái að aka
milli akreina í þéttri borg-
arumferðinni eða inni í fjöl-
akreina hringtorgi. Í Barcelona
er beinlínis gert ráð fyrir að mót-
orhjól og létt bifhjól geti ekið
milli bíla á ljósum og komið sér
fyrir á sérstöku svæði rétt fyrir
gatnamótin. Að mati stjórnar
Bifhjólasamtaka lýðveldisins,
Snigla, er orðið tímabært að
þessi mál séu skoðuð hérlendis
með umferðaröryggi bif-
hjólafólks í huga. Eiríkur Hans
Sigurðsson, ökukennari og í
varastjórn Snigla, hefur sterkar
skoðanir á þessu máli. „Þetta er
mál sem löngu er tímabært að
hreyfa við hér á landi. Ég hef
aldrei skilið hvers vegna það fer
svona í taugarnar á hérlendum
ökumönnum bíla ef mótorhjól
fer fram fyrir þá við gatnamót.
Ég varð fyrir því sumarið 2010
þegar ég hjólaði gætilega á milli
bíla sem biðu við gatnamót
Kringlumýrarbrautar og Suður-
landsbrautar að einn ökumaður
bíls í h.m. í röðinni gerði sér lítið
fyrir og reyndi að loka fyrir mig
með því að sveigja til vinstri að
næsta bíl. Það varð til þess að
hliðartaskan vinstra megin á
hjólinu straukst við hægra aft-
urhorn bílsins við hliðina. Af
þessu urðu engar skemmdir, en
svona hegðun segir hvernig
sumir hugsa okkur þegjandi
þörfina. Ég hef einnig orðið fyrir
því að menn sendi mér puttann
eða aki flautandi á eftir mér.
Þegar maður hjólar í Suður-
Evrópu leggja ökumenn bíla sig
fram um að maður komist á milli
bíla sem eru að bíða við gatna-
mót og jafnvel breikki bilið á
milli bíla á ferð í umferð svo
mótorhjólin eigi greiða leið á
milli þeirra. Að þessu þarf að
vinna. Það þarf einnig að kynna
það fyrir almenningi að mót-
orhjól sem fer fram fyrir er að
létta á umferðinni en ekki að
tefja hana,“ segir Eiríkur Hans.
njall@mbl.is
Milliakreinaakstur á mótorhjóli:
Leyfilegur
eða ekki?
Mótorhjól þurfa að smjúga gegnum umferðina ef þau eiga að komast
leiðar sinnar í stórborgum Austurlanda eins og Bangkok.
Eiríkur Hans Sigurðsson ökukennari hefur ekið Ducati-hjóli sínu hérlendis
sem erlendis og telur að leyfa eigi milliakreinaakstur umbúðalaust.
Mótorhjólið verður sýnilegra á
milli akreina heldur en inni á milli
bílanna sjálfra.