Morgunblaðið - 29.10.2013, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2013
4 BÍLAR
N
íunda kynslóð Honda Ac-
cord er nú komin fram á
sjónarsviðið en þessi
vinsæli fjölskyldubíll
hefur verið hér á meðal okkar í
bráðum fjóra áratugi. Síðasta kyn-
slóð kom á markað árið 2008 og
eins og Honda er lagið með alveg
nýjum bíl en ekki aðeins andlits-
lyftingu. Það sama á við nú, fimm
árum síðar og það sem meira er
að Honda gerir tvo nýja Accord
bíla, annan fyrir Ameríku og Asíu
og hinn fyrir Evrópumarkað. Bíla-
blaðamaður Morgunblaðsins
hafði nýja Accordinn í lang-
baksútfærslu til reynsluaksturs í
síðustu viku.
Styttri og mjórri
Evrópugerð Honda Accord er
minni en Ameríku/Asíu bíllinn og
hann er líka minni en 2008 kyn-
slóðin. Langbakurinn er nú byggð-
ur á sama undirvagni og stallbak-
urinn og þess vegna er sú gerð
líka talsvert minni en áður. Að því
sögðu er ekki hægt að segja að
Accord sé lítill bíll, langt í frá.
Hann hefur reyndar styst aðeins
og mjókkað en hann er samt
4.726 mm á lengd og 1.840 mm á
breidd sem er gott í þessum
flokki. Það er helst að styttingin
bitni á fótarými í aftursætum sem
mætti vera meira ef um fullorðna
er að ræða. Hjólhafið er aðeins
2.705 mm af lengd bílsins svo að
skögun hans er þónokkur, sem
bitnar aðeins á honum að framan
þegar ekið er yfir misvel hannaðar
hraðahindranir í Reykjavík. Ef
maður gætti sín ekki á þeim
stærri skrapaði svuntan undir
stuðaranum malbikið.
Bestur í framsætum
Að innan er Accordinn nokkuð
vel heppnaður, með fáeinum und-
antekningum þó. Útsýni er gott
fram á við þökk sé frekar mjóum
A-bitum og stórir hliðarspeglar
bæta mikið fyrir lítið útsýni um
afturrúðu. Best fer um farþega í
framsætum sem eru stór og
þægileg og gefa góðan stuðning
langt fram með fótleggjum. Ekki
skemmir heldur fyrir þægind-
unum að þau eru bæði rafstýrð og
ökumannssætið nú með minni.
Mælaborðið hefur ekki breyst
mikið, ekki einu sinni fyrir þann
sem átti svona bíl fyrir 10 árum.
Allt er nánast eins fyrir utan þann
búnað sem bætt hefur verið í
hann, eins og fjarlægðarskynjarar
og upplýsingaskjár. Blátann-
arbúnaður fyrir farsíma er líka
staðalbúnaður en því miður er
notast við raddstýrðan búnað
sem gerir notkunina flóknari því
að erfitt er að láta tölvuna skilja
nöfnin í símaskránni. Tvennt í upp-
setningu takka í mælaborði hefði
mátt hugsa betur, en staðsetning
á rafstýrðri opnun afturhlera er
fyrirkomið nánast ofan í hólfi
framhurðar sem gerir það erfitt
að nálgast hann, sé eitthvað í hólf-
inu. Eins þótti undirrituðum skrít-
ið að sjá að þegar barnalæsing
fyrir afturrúður var virkjuð, virkaði
ekki að stjórna því úr ökumanns-
sæti eins og eðlilegt er. Eins og
komið hefur fram er fótarými aft-
ur í ekkert til að hrópa húrra fyrir
en sætin þar eru þægileg líka. Ör-
yggisbelti fyrir miðjufarþega er í
loftinu sem er allt í lagi þegar um
fullorðinn er að ræða, en ef barn
situr þarna eins og oft er nú stað-
reyndin er það ekki það heppileg-
asta. Farangursrými er þokkalegt
en aðalkostur þess er hversu lágt
er að lyfta upp í það og hversu vel
formað það er. Opnunin er raf-
stýrð bæði gegnum fjarstýringu
og svo er takki á lokinu sjálfu til að
auðvelda lokun þess.
Rásfastur en eyðslufrekur
Í akstri virkar Honda Accord vel
á mann í flesta staði. Hann liggur
vel á vegi þökk sé tvöfaldri klafa-
fjöðrun að framan og fjölliða fjöðr-
un að aftan, en fjöðrunin er samt
örlítið mýkri en áður. Stýrið gefur
ekkert sérstaklega góða tilfinn-
ingu og hann rásar aðeins í hjól-
förum. Nýi bíllinn er sérlega vel
hljóðeinangraður og því heyrist
ekki mikið hljóð frá vélinni, jafnvel
þegar reynt er á hana. Vélin er ör-
lítið öflugri en áður en vantar samt
sem áður aðeins meira tog á lægri
snúningi því að fara þarf með
hann hátt upp á snúningssviðið til
að kalla fram snerpu. Sjálfskipt-
ingin er þægileg í skiptingum en
aðeins fimm þrepa svo að eyðslu-
tölur líða aðeins fyrir það. Sam-
kvæmt aksturstölvu er eyðslan í
prófunarakstri innanbæjar í kring-
um 15 lítra sem er frekar mikið frá
uppgefinni eyðslu upp á 7,3 lítra á
hundraðið í blönduðum akstri.
Þegar fjölþrepa sjálfskiptingar
koma frá Honda á næstu miss-
erum má búast við að sjá þessar
tölur fara ört lækkandi.
Á góðu verði í dýrari útfærslu
Grunnverð á Honda Accord Tou-
rer er 4.890.000 kr. og sjálfskipt-
ingin bætir 300.000 kr. við þá
tölu. Í Executive-útfærslu eins og
við prófuðum hann byrjar hann í
5.690.000 kr. Hans helsti keppi-
nautur er eflaust Avensis en Wa-
gon-útfærsla hans með 1,8 lítra
bensínvél og sjálfskiptingu byrjar í
5.380.000 kr. Líklega þyrfti þó að
fara með Avensins í EXE-útgáfu til
að þeir verði meira sambærilegir í
búnaði. Þannig kostar Avensis
6.195.000 kr. Aðrir keppinautar
eru til dæmis Ford Mondeo og
Mazda 6 sem eru báðir hjá Brim-
borg. Mondeo Station er aðeins
fáanlegur með dísilvél en grunn-
verð hans með sjálfskiptingu er
4.840.000 kr. Grunnverð Mazda 6
er 4.790.000 kr sjálfskiptur í Sta-
tion-útfærslu svo hann er ódýr-
astur í grunninn en fara þarf í Op-
timum-útgáfu til að hann sé
sambærilegur við Executive en
Mazdan kostar þannig útbúin
5.790.000 kr. Af öllu þessu má
ráða að Accordinn er á góðu verði,
sér í lagi þegar teknar eru dýrari
útfærslur hans.
Njáll Gunnlaugsson reynsluekur Honda Accord Tourer:
Morgunblaðið/Tryggvi Þormóðsson
Sportlegur og vel búinn
Honda Accord Tourer Árgerð 2014
• 17 tommuálfelgur
• Eiginþyngdkg: 1.462bsk
• Farangursrými: 406 lítrar
• 0-100km/sek: 11,1 ssk
•Hámark: 210km/klst
• Framhjóladrif
•Verð frá: 4.890.000kr
• 7,3L/100km íbl akstri
• Umboð:Bernhard
•Mengunargildi:
173 gCO2/km
•2,0 lítrabensínvél
• 156hestöfl/192Nm
•5þrepasjálfskipting
Honda Accord Tourer er laglegur bíll, það
dylst engum. Línurnar eru sportlegar þótt
hjólin séu frekar innarlega.
Kostir: Hagstætt verð, hljóðeinangrun, útsýni.
Gallar: Eyðslufrekur, fótarými í aftursætum.